Hversu oft þarf að kveikja í? Olga Cilia skrifar 19. febrúar 2026 09:16 Á Alþingi árið 2021 fékk ég samþykkta þingsályktunartillögu um alhliða úttekt á starfsemi vist- og meðferðarheimila á Íslandi. Þingsályktunartillögur eru eins konar viljayfirlýsing af hálfu löggjafarvaldsins. Með tillögunni var lagt til að ráðherra myndi setja á fót sérstaka nefnd sem myndi framkvæma alhliða úttekt á starfsemi vist- og meðferðarheimila á Íslandi. Nefndin átti að framkvæma rannsókn á öllum vist- og meðferðarheimilum barna og fatlaðra einstaklinga sem starfrækt hafa verið af ríkinu, sveitarfélögum, félagasamtökum og einkaaðilum svo langt aftur sem fyrirliggjandi gögn og upplýsingar gæfu tilefni til. Fyrrverandi vistfólki átti að vera gert kleift að koma til nefndarinnar ábendingum og kvörtunum vegna meðferðar sem þau urðu fyrir á slíkum heimilum. Í greinargerð með ályktuninni sagði svo: „Liðna öld hafa á Íslandi verið starfrækt mörg vistheimili fyrir börn og fatlaða einstaklinga. Á undanförnum árum og áratugum hafa ítrekað verið sagðar fréttir af því að vistfólk á slíkum heimilum hafi þurft að þola slæma meðferð og oft verið beitt ofbeldi af hálfu þeirra sem störfuðu þar. Vegna fjölda frétta af slæmri meðferð og ofbeldi í garð vistfólks verður að líta svo á að um kerfislægt vandamál hafi verið að ræða frekar en einstök og afmörkuð tilvik.” Málið um Bakkakot hefur eflaust ekki farið fram hjá neinum síðastliðnar vikur. Og öll virðast vera rosalega hissa. Hissa á hvernig svona geti eiginlega gerst og afhverju sagði enginn neitt. Svo eru sumir sem gjörsamlega afneita að nokkuð slíkt hafi yfirhöfuð átt sér stað. Sannleikurinn er sá að það voru mörg sem sögðu frá, en það var þaggað niður til þess að tryggja að tilteknir aðilar innan kerfisins myndu halda vinnunni sinni eða að einhverjir pólitíkusar gæti haldið áfram að fara með völdin. Börn fengu ekki að njóta vafans því að fullorðna fólkið vildi halda í völdin. Ráðafólk horfir nú sorgmætt inn í myndavélarnar og segja að nú verði allt gert til þess að komast til botns í þessu máli og að nú skuli sko aldeilis tekið á málunum. En ætti þetta í raun að koma ráðafólki svona mikið á óvart? Árið var 2021 þegar þessi þingsályktun var lögð fram. Á þeim tíma voru það mörg mál komin fram er vörðuðu vistheimili að þáverandi ríkisstjórn eða þeirri sem kom á eftir hefði verið í lófa lagið að taka þessa þingsályktun til sín og byrja rannsókn strax. Hversu mörg líf þurfum við að missa, hversu margar barnæskur þarf að eyðileggja og hversu oft þarf fullorðið fólk að stíga fram og lýsa hræðilegum aðbúnaði í úrræðum sem áttu að vera til þess að veita þeim og foreldrum þeirra stuðning. Það hefur legið fyrir nægilega lengi að um kerfislægt vandamál sé að ræða. Það ætti ekki að dyljast neinum sem vill sjá það. Hvað ætlar ríkið og sveitarfélög að gera í því? Þetta mun allt koma upp á yfirborðið fyrr en seinna, ætla ríki og sveitarfélög að taka ábyrgð á því núna eða halda áfram að vera í afneitun? Hægt er að nálgast þingsályktunartillöguna hér. Höfundur er frambjóðandi í prófkjöri Pírata í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Píratar Olga Margrét Cilia Mest lesið Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar