Andrew handtekinn á heimili sínu Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 19. febrúar 2026 10:08 Andrew er ekki lengur Andrés prins. EPA Breska lögreglan mætti í morgun heim til Andrew fyrrverandi Bretaprins við Sandringham höll og handtók hann. Vísir fylgist með málinu í vakt sem finna má neðst í fréttinni. Andrew á afmæli í dag og er 66 ára gamall. Sex lögreglubílar og átta lögreglufulltrúar mættu fyrst á heimili hans í morgun, að afla gagna að því er fyrst sagði í fréttum breskra miðla, vegna rannsókna á meintum leka prinsins á trúnaðargögnum, meðal annars til milljarðamæringsins og barnaníðingsins Jeffrey Epstein. Vísir fylgist með málinu í vakt neðst í fréttinni. Breska blaðið The Telegraph greinir frá málinu. Í nýjustu uppfærslum fréttar þess segir að fyrrum prinsinn hafi verið handtekinn. Áður hafði prinsinn nýverið flust af heimili sínu við Windsor kastala í London og að Sandringham höll. Miðilllinn segir einn lögreglubílanna hafa keyrt fyrir framan hús hans og segir að hinum fimm bílunum hafi verið lagt fyrir aftan húsið. Ómerktur lögreglubíll hafi svo yfirgefið svæðið þrjátíu mínútum síðar og tveir á eftir en Telegraph segir öryggisgæslu Andrew um borð í einum bílanna. Sagður hafa lekið trúnaðarupplýsingum Rannsókn lögreglu snýr að tímanum sem Andrew gegndi hlutverki sérstaks erindreka Bretlands og snúa ekki bara að meintum leka til Epstein. Nýjustu gögn vegna málsins eru sögð benda til þess að hann hafi meðal annars árið 2010 lekið trúnaðarupplýsingum frá breska fjármálaráðuneytinu, meðal annars í tengslum við eftirmál íslenska bankahrunsins. Tölvupóstsamskipti eru sögð benda til þess að hann hafi þetta ár lekið gögnum til vinar síns bankamannsins Jonathan Rowland. Hann var þá forstjóri Banque Havilland sem hafði þá nýlega keypt eignir af Kaupþingi eftir bankahrun. Á þessum tíma gegndi Andrew hlutverki sérstaks erindreka Bretlands á sviði viðskipta en Ísland og Bretland áttu þá í deilum í hinu svokallaða Icesave-máli, sem dregur nafn sitt af hávaxtareikningum sem Landsbankinn bauð upp á í Bretlandi og Hollandi í aðdraganda hrunsins en lokuðust þegar bankinn féll árið 2008 – og sparifjáreigendur komust því ekki í peningana sína. Breska blaðið Telegraph efur sagt að í febrúar 2010 hafi ritari hans beðið um minnisblað frá breska fjármálaráðuneytinu með uppfærslu um stöðu mála varðandi Icesave-deiluna. Tveimur klukkustundum eftir að Andrew fékk minnisblaðið í hendur hafi hann áframsent það á Jonathan Rowland. „Maður á sjötugsaldri handtekinn“ Lögregluyfirvöld í Bretlandi hafa sent frá sér yfirlýsingu vegna handtökunnar. Þar segir að vegna rannsóknar hafi „maður á sjötugsaldri frá Norfolk“ verið handtekinn vegna gruns um misferlis í opinberu starfi. Maðurinn sé í haldi. „Við munum ekki nafngreina manninn sem var handtekinn,“ segir í yfirlýsingunni. Tekið er fram að lögregla átti sig á því að mikill áhugi sé á málinu og að yfirlýsingar vegna málsins verði gefnar út á viðeigandi tíma. Fyrrverandi prinsinn hefur áður verið sakaður um önnur brot í tengslum við Epstein, meðal annars að hafa nauðgað Virginiu Guiffre auk þess sem fullyrt hefur verið að önnur kona á þrítugsaldri hafi verið send til Bretlands af Epstein fyrir Andrew. Hann hefur ávallt neitað sök. Hér að neðan má sjá beina útsendingu frá bresku sjónvarpsstöðinni Sky News vegna málsins. Neðst í fréttinni er svo vakt Vísis. Ef vaktin birtist ekki hér beint fyrir neðan er ráð að endurhlaða síðuna.
Mál Andrésar prins Kóngafólk Bretland England Tengdar fréttir Prinsinum hafi verið hent út á miðnætti Andrési Bretaprins var hent út af heimili sínu á miðnætti í vikunni og gert að flytja í annað húsnæði á vegum konungshallarinnar. Þetta fullyrða bresk götublöð en flutningarnir eru sagðir hafa átt sér stað aðfaranótt mánudagsins. 8. febrúar 2026 15:47 Vilhjálmur og Katrín hafi „djúpar áhyggjur“ vegna Epstein-afhjúpunar Vilhjálmur prins af Wales og kona hans Katrín prinsessa eru sögð hafa miklar áhyggjur vegna nýjustu afhjúpana í tengslum bandaríska kynferðisbrotamanninn Jeffrey Epstein. 9. febrúar 2026 10:36 Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Fleiri fréttir Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Sjá meira
Prinsinum hafi verið hent út á miðnætti Andrési Bretaprins var hent út af heimili sínu á miðnætti í vikunni og gert að flytja í annað húsnæði á vegum konungshallarinnar. Þetta fullyrða bresk götublöð en flutningarnir eru sagðir hafa átt sér stað aðfaranótt mánudagsins. 8. febrúar 2026 15:47
Vilhjálmur og Katrín hafi „djúpar áhyggjur“ vegna Epstein-afhjúpunar Vilhjálmur prins af Wales og kona hans Katrín prinsessa eru sögð hafa miklar áhyggjur vegna nýjustu afhjúpana í tengslum bandaríska kynferðisbrotamanninn Jeffrey Epstein. 9. febrúar 2026 10:36