Andrew látinn laus Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 19. febrúar 2026 19:32 Andrew í aftursæti bílsins sem flutti hann af lögreglustöðinni. Getty Andrew fyrrverandi Bretaprins hefur verið látinn laus úr haldi lögreglu á sjöunda tímanum í dag. Hann var handtekinn á heimili sínu í Wolferton í morgun vegna rannsókna á meintum leka á trúnaðargögnum, meðal annars til milljarðamæringsins og barnaníðingsins Jeffrey Epstein.
BBC hefur eftir tilkynningu frá lögreglunni í Thames Valley að maður á sjötugsaldri hafi verið látinn laus eftir að hafa verið handtekinn fyrr í dag vegna gruns um misferli í opinberu starfi. Sem fyrr vill lögregla ekki nafngreina Andrew þó að fyrir liggi að um hann ræði. Í tilkynningunni segir jafnframt að húsleitum í Norfolk vegna málsins sé nú lokið. Samkvæmt heimildum BBC standa húsleitir enn yfir í bústað konungsfjölskyldunnar í Berkshire. Á mynd sem fréttastofa Reuters hefur undir höndum sést Andrew yfirgefa Aylsham-lögreglustöðina í aftursæti svarts Range Rover bíls. Andrew á 66 ára afmæli í dag. Former Prince Andrew looks terrified as he leaves jail hours after arrest https://t.co/l8WG4bLKlS pic.twitter.com/Q4kEpCIzot— Page Six (@PageSix) February 19, 2026 Vísir hefur fylgst grannt með gangi mála í vaktinni í dag. Sex lögreglubílar og átta lögreglufulltrúar mættu fyrst á heimili hans í morgun til að afla gagna og handtaka prinsinn fyrrverandi vegna rannsóknar á hinum meinta leka. Rannsókn lögreglu snýr að tímanum sem Andrew gegndi hlutverki sérstaks erindreka Bretlands. Fyrrverandi prinsinn hefur áður verið sakaður um önnur brot í tengslum við Epstein, meðal annars að hafa nauðgað Virginiu Guiffre auk þess sem fullyrt hefur verið að önnur kona á þrítugsaldri hafi verið send til Bretlands af Epstein fyrir Andrew. Hann hefur ávallt neitað sök. Fjallað var um málið í kvöldfréttum Sýnar, fréttina má sjá hér að neðan. Fréttin hefur verið uppfærð.
Mál Andrésar prins Kóngafólk Bretland Mál Jeffrey Epstein England Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Fleiri fréttir Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Sjá meira