Áfram húsleit á fyrra heimili Andrews Lovísa Arnardóttir skrifar 20. febrúar 2026 08:01 Andrew var látinn laus í gær. Vísir/Getty Breska lögreglan mun halda áfram húsleit sinni á fyrra heimili Andrews Mountbatten Windsor sem handtekinn var í gær grunaður um spillingu í opinberu embætti. Andrew bjó um árabil í Royal Lodge en var gert að flytja þaðan fyrr á árinu.
Greint var frá því fyrr í mánuðinum að í Epstein-skjölunum væri að finna skjöl sem bentu til þess að Andrew hafi deilt opinberum og leynilegum skjölum með barnaníðingnum Jeffrey Epstein og gögnum um Icesace með viðskiptamógúlnum Jonathan Rowland. Andrew hefur áður verið sakaður um að brjóta kynferðislega á tveimur konum en hefur ávallt neitað sök. Prinsinum fyrrverandi, sem er bróðir Karls Bretakonungs, var sleppt á sjöunda tímanum í gærkvöldi en rannsókn málsins heldur áfram. Húsleit verður áfram haldið í Royal Lodge í Berkshire þar sem Andrew bjó ásamt fjölskyldu sinni þar til fyrir nokkrum vikum þegar hann flutti í hús á Sandringham-landareigninni sem er í eigu Karls konungs. Lögregla fyrir utan fyrra heimili Andrews, Royal Lodge. Þar fer áfram fram húsleit í dag.Vísir/Getty Greint var frá því í gær að konungurinn hefði ekki verið látinn vita áður en bróðir hans var handtekinn og leit hófst á landareign hans. Í yfirlýsingu frá lögreglunni í gær kom þó fram að innanríkisráðuneytið hefði verið látið vita með 30 mínútna fyrirvara. „Í samræmi við hefðbundið verklag lét nefnd lögreglustjóra starfsfélaga sína innan innanríkisráðuneytisins vita af handtökunni. Þetta var gert með 30 mínútna fyrirvara áður en lögreglan í Thames Valley framkvæmdi handtökuna,“ sagði í yfirlýsingunni. Í yfirlýsingu frá konunginum sagði hann réttlætið verða að hafa sinn gang. Vísir fylgdist grannt með gangi mála á vaktinni í gær. Sex lögreglubílar og átta lögreglufulltrúar mættu fyrst á heimili hans til að afla gagna og handtaka prinsinn fyrrverandi vegna rannsóknar á hinum meinta leka. Rannsókn lögreglu snýr að tímanum sem Andrew gegndi hlutverki sérstaks erindreka Bretlands.
Mál Andrésar prins Mál Jeffrey Epstein Efnahagsbrot Kynferðisofbeldi Tengdar fréttir „Mjög, mjög sorglegt“ Donald Trump Bandaríkjaforseti var stuttorður þegar blaðamenn vestanhafs spurðu hann út í nýjustu vendingar í tengslum við mál Andrews fyrrverandi Bretaprins fyrr í kvöld. 19. febrúar 2026 22:06 Andrew látinn laus Andrew fyrrverandi Bretaprins hefur verið látinn laus úr haldi lögreglu á sjöunda tímanum í dag. Hann var handtekinn á heimili sínu í Wolferton í morgun vegna rannsókna á meintum leka á trúnaðargögnum, meðal annars til milljarðamæringsins og barnaníðingsins Jeffrey Epstein. 19. febrúar 2026 19:32 Andrew sviptur síðustu hernaðartigninni Varnarmálaráðuneyti Breta vinnur að því að svipta Andrew Mountbatten Windsor síðustu hernaðartign sinni. Andrew, sem var áður þekktur sem Andrés prins, var sviptur prins-titli sínum fyrr í vikunni. 2. nóvember 2025 13:20 Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Fleiri fréttir Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Sjá meira
„Mjög, mjög sorglegt“ Donald Trump Bandaríkjaforseti var stuttorður þegar blaðamenn vestanhafs spurðu hann út í nýjustu vendingar í tengslum við mál Andrews fyrrverandi Bretaprins fyrr í kvöld. 19. febrúar 2026 22:06
Andrew látinn laus Andrew fyrrverandi Bretaprins hefur verið látinn laus úr haldi lögreglu á sjöunda tímanum í dag. Hann var handtekinn á heimili sínu í Wolferton í morgun vegna rannsókna á meintum leka á trúnaðargögnum, meðal annars til milljarðamæringsins og barnaníðingsins Jeffrey Epstein. 19. febrúar 2026 19:32
Andrew sviptur síðustu hernaðartigninni Varnarmálaráðuneyti Breta vinnur að því að svipta Andrew Mountbatten Windsor síðustu hernaðartign sinni. Andrew, sem var áður þekktur sem Andrés prins, var sviptur prins-titli sínum fyrr í vikunni. 2. nóvember 2025 13:20