Ert þú nýr formaður vinstrisins? Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar 23. febrúar 2026 17:00 Eftir áratug af svikum í garð þjóðarinnar úr formannssæti VG er komið að því að velja nýjan formann vinstrisins á Íslandi. Hingað til hefur aðeins ein manneskja boðið sig fram í verkefnið sem er áhyggjuefni því að nú er tækifærið fyrir vinstrimenn á Íslandi að sækja langþráðan sigur í pólitík á Íslandi eftir að hafa verið hafnaðir með öllu í síðustu Alþingiskosningum á grunni fyrrnefndra svika. Tækifærið ætti með réttu að skapa mikinn fjölda formannsframboða til að leiðrétta síversnandi sýn Íslendinga á vinstri-sinnaða stjórnmálamenn og sannfæra alþjóð um að vinstrið er framtíðin fyrir fólk sem hrífst af hugmyndum um frið í alþjóðamálum, barnaverndarmálum, jöfnuði, fyrirtaks heilbrigðiskerfi, kvenréttindi, velferðarmál og baráttu gegn uppgangi fasisma, zíonisma og loftslagsvánni svo eitthvað sé nefnt. Ljóst þykir mér að jafnaðarmenn og kratar Samfylkingar og Viðreisnar hafa snúið baki við fyrrnefnd málefni í kjölfarið á andstöðu ríkisstjórnar sinnar á Palestínu og stríðsáróðri gegn Íran og tekið upp stefnu Evrópusambandsins um að ófriður, zíonismi og nýlendustefna séu framtíð okkar. Ég vill því hvetja friðarsinna í Samfylkingu til að segja skilið við hægriflokkinn og ganga til liðs við friðarsinnaða vinstriflokka á borð við VG frá og með komandi sveitarstjórnarkosningum. Ég er jafnframt þeirrar skoðunar að íslenskir vinstriflokkar geti ekki starfað undir forystu þeirra þingmanna VG sem tóku þátt í ríkisstjórnarsamstarfinu við Sjálfstæðisflokkinn í síðustu ríkisstjórn. Eina framboð til formanns VG hingað til er frá fyrrverandi þingmanninum Rósu Björk Brynjólfsdóttur. Ég er óviss um að Rósa sé rétti leiðtogakosturinn fyrir framtíð vinstrisins á Íslandi og vill nefna nokkur atriði þeim hugleiðingum til stuðnings. 1. Starfshópur sem Rósa leiddi nýverið hvatti til að Ísland tæki þátt í zíonista-hópnum International Holocaust Remembrance Alliance (IHRA), sem er í raun ekkert annað en skjöldur fyrir hernám, aðskilnaðarstefnu og þjóðarmorð Ísraels. (IHRA stefnir að því leynt og ljóst að gera alla gagnrýni á Ísraelsríki ólöglega. Um þetta má lesa víða, meðal annars í greininni Gordon, N. (2024). Antisemitism and Zionism: The Internal Operations of the IHRA Definition. Middle East Critique, 33(3), 345–360. https://doi.org/10.1080/19436149.2024.2330821 Friðarsinnar á Íslandi ættu allir að vera sammála um að styðja gyðinga en einnig að jafnframt gera skýran greinarmun á gyðingdómi og zíonisma en fjöldi samtaka friðarsinnaðra gyðinga á Vesturlöndum hefur lýst yfir andstöðu sinni á zíonisma og glæpum Ísraela í Palestínu og víðar. Starfshópurinn var skipaður af Katrínu Jakobsdóttur, öðrum fyrrverandi þingmanni sem hunsað hefur með öllu beiðnir uppkominna stofnanabarna um samtöl og samvinnu og hafði það að markmiði sínu í síðustu ríkisstjórn að gera lítið úr reynslusögum okkar. Vinna starfshópsins sýnir fram á að Rósu sé ekki treystandi þegar kemur að stuðningi við almennan frið eða réttlætisbaráttu Palestínumanna. 2. Leiðtogi vinstrisins þarf að bera hag barna í viðkvæmri stöðu fyrir brjósti en þegar ég leitaði um árið eftir samtali við þingmanninn Rósu um málefni fósturbarna og baráttu minni fyrir réttlæti í kjölfar illrar meðferðar Reykjavíkurborgar á mér sem barni þá beið mín ekkert nema hunsun, eitthvað sem við uppkomin stofnanabörn eigum því miður alltof vel að venjast. Rósa sýndi þar fram á áhugaleysi, hunsun og höfnun sína á málefninu. Getum við treyst kjörnu Alþingisfólki sem svarar ekki slíkum beiðnum um samtal? Ég tel svo ekki vera og ég er feiknasammála Líf Magneudóttir um að mikilvægt sé að vinstrið nái góðri kosningu í vor og er ekki endilega að sjá það gerast ef að formaður VG verður þessi týpa sem ríkisstjórnarhópur Vinstri grænna var í síðustu ríkisstjórn, fólk sem svarar ekki beiðnum og ákalli almennings í neyð um hjálp. 3. Katrín og Rósa störfuðu saman í kjörnefnd VG á dögunum vegna forvals flokksins til komandi borgarstjórnarkosninga. Samstarf við forsætisráðherrann fyrrverandi sem þjóðin hafnaði með öllu í síðastliðnum Alþingiskosningum ber merki þess að þær séu enn teymi sem munu vinna saman á sömu forsendum og áður - sem þjóðin hafnaði. 4. Þegar vinstri sinnaður almenningur hugsar til betri kosta heldur en það sem nú er í boði hugsa fáir sérstaklega til Rósu utan fámenns hóps sem hefur verið í VG á undanförnum árum. Því sé ég ekki að hún hafi þann stuðning á meðal þjóðarinnar sem til þarf sem þingmaður með langa sögu af Alþingi þarf að hafa á þessum tímapunkti. Við skulum einnig átta okkur á því að formennska í flokki jafngildir tímabundna stefnu viðkomandi flokks. Þannig hefur formennska hinnar stríðsóðu Kristrúnar Frostadóttur fært Samfylkinguna til hægri, til niðurskurðar- og einkavæðingarstefnu jafnaðarmanna á Landspítalanum og heilbrigðiskerfi landsmanna og til öfgazíonisma - ofbeldisfullrar hugmyndafræði sem hefur veruleg ítök í evrópskum krata- og íhaldsstjórnmálum. Nýleg tengsl Rósu við zíonisma gerir það að verkum að hið sama gæti orðið framtíð vinstrisins á Íslandi undir stjórn Rósu sem verður þá Palestínuhreyfingunni og öðrum friðarsinnum á Íslandi til frekari trafala. Á meðan ekki er betri kostur í boði fyrir framtíð vinstrisins er ég er reiðubúinn að taka við embætti formanns VG undir eins og halda í heiðri gildum á borð við kvenréttindamál og feminisma, baráttuna gegn loftslagsvánni, uppbyggingu heilbrigðiskerfisins, öruggu húsnæði fyrir alla landsmenn, að ráða niðurlögum erlendra zíonískra öfgafyrirtækja á Íslandi eins og Rapyd og berjast fyrir því að koma íslensku landi og auðlindum úr höndum erlendra kapítalískra auðkýfinga eins og Jim Ratcliffe, sem er orðinn fjórði stærsti landeigandinn á Íslandi og hefur ekkert gott í hyggju fyrir okkar þjóð. Stefnur mínar ríma að mestu ef ekki öllu leyti við stefnur Vinstri grænna og því tel ég mig vera á réttum stað í VG til að gera breytingar til batnaðar og efla ítök og vinsældir vinstrisins á Íslandi. Framboð mitt er jafnframt ákall til þjóðarinnar og kjörnum fulltrúum landsins um að hætta hunsun sinni á málefnum fósturbarna, uppkominna fósturbarna og uppkominna barna sem ólust upp á meðferðarheimilum og vöggustofum, hunsun eins og Rósa hefur sýnt. Það er sérlegt persónulegt baráttumál mitt sem ég mun einungis ljúka á minni ævitíð með sigri hinna uppkomnu stofnanabarna á forsendum velferðar og heilbrigðara samfélags. Stefnum hærra vinstrimenn, okkar bíður sú skylda nú að leiða þjóðina á betri braut. Höfundur er sjúkraliðanemi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Vinstrið Vinstri græn Mest lesið Halldór 29.08.26 Halldór Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff Skoðun Skoðun Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff skrifar Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Fullveldi er ekki stofustáss María Kristín Gylfadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar
Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar