Efins um að ráða Carrick til frambúðar: „Maður er brenndur af fyrri tíð“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 3. mars 2026 13:27 Michael Carrick ræðir við Matheus Cunha og Benjamin Sesko. getty/Mark Cosgrove Þrátt fyrir að Manchester United hafi náð í nítján stig af 21 mögulegu í ensku úrvalsdeildinni eftir að Michael Carrick tók við vill Aron Jóhannsson ekki að hann verði ráðinn þjálfari liðsins til frambúðar.
United kom til baka og vann 2-1 sigur á Crystal Palace á Old Trafford á sunnudaginn var. Þetta var sjötti sigur Rauðu djöflanna í sjö leikjum undir stjórn Carricks sem var ráðinn þjálfari liðsins til loka tímabilsins eftir að Ruben Amorim var rekinn. United er komið upp í 3. sæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir gott gengi í síðustu leikjum en þrátt fyrir það er Aron ekki sannfærður um að Carrick sé rétti maðurinn til að stýra Manchester-liðinu næstu árin. „Ég er ekki þar, ennþá allavega. Ástæðan fyrir því er að maður er brenndur af fyrri tíð,“ sagði Aron í Sunnudagsmessunni og vísaði þar til Ole Gunnars Solskjær sem var ráðinn stjóri United fyrir nokkrum árum eftir að hafa upphaflega tekið við liðinu til bráðabirgða. Klippa: Messan - umræða um Carrick Aroni finnst spilamennska United í allra síðustu leikjum ekki hafa verið nógu góð. „Auðvitað er hann [Carrick] að gera helvíti gott tilkall til starfsins en að sama skapi var leikurinn í dag [í fyrradag] ekkert frábær. Af hverju komu þeir svona út í fyrri hálfleikinn? Leikurinn á móti Everton var ekki sannfærandi en þeir unnu báða leikina. Leikurinn á móti West Ham var skelfilegur en þeir náðu samt jafntefli í lokin. Leikurinn gegn Tottenham var lala þar til Tottenham fékk rautt spjald,“ sagði Aron. „Þeir byrjuðu á flottum frammistöðum en þær hafa ekkert verið rosalega góðar að undanförnu. En þeir fá alltaf þrjú stig og það er það sem skiptir mestu máli í fótbolta. En framhaldið; ég vil aðeins meiri tíma til að ákveða mig.“ Næsti leikur United er gegn Newcastle United á St James' Park annað kvöld. Innslagið úr Messunni má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Enski boltinn Manchester United Messan Tengdar fréttir „Þarna áttu bara að taka yfir leikinn“ Arsenal vann 2-1 sigur gegn Chelsea en bæði mörk liðins voru skoruð úr hornspyrnu. Aron Jóhannsson vill sjá topplið ensku úrvalsdeildarinnar taka meiri stjórn á leikjum og skora með öðrum hætti en upp úr hornspyrnum. 2. mars 2026 17:16 Sesko-dagar á Old Trafford: „Vildum byggja upp sjálfstraustið hans“ Slóvenski framherjinn Benjamin Sesko er farinn að líta út fyrir að vera alvöru leikmaður og mjög góð kaup sem er um leið að reynast dýrmætt í endurreisn Manchester United undir stjórn Michael Carrick. 2. mars 2026 13:02 „Ég hef bara miklar áhyggjur af þessu“ Tottenham hefur ekki enn unnið deildarleik á árinu 2026 og nálgast nú hratt harða fallbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar. Sunnudagsmessan vildi heyra í þekktasta Tottenham-stuðningsmanni landsins, Hjálmari Erni Jóhannssyni og fá hans mat á stöðunni. 2. mars 2026 09:32 Sjóðheitur Sesko sendi United upp í þriðja sæti Manchester United lenti í miklum vandræðum gegn Crystal Palace en vann að lokum 2-1 sigur, eftir rautt spjald og víti í seinni hálfleiknum. Sigurinn kemur United upp í 3. sæti ensku úrvalsdeildarinnar. 1. mars 2026 15:54 Mest lesið Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Falko farinn frá ÍR Körfubolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Fótbolti ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Íslenski boltinn Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Handbolti Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Framarar skoruðu 38 mörk og unnu Handbolti Fleiri fréttir Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Sjá meira
„Þarna áttu bara að taka yfir leikinn“ Arsenal vann 2-1 sigur gegn Chelsea en bæði mörk liðins voru skoruð úr hornspyrnu. Aron Jóhannsson vill sjá topplið ensku úrvalsdeildarinnar taka meiri stjórn á leikjum og skora með öðrum hætti en upp úr hornspyrnum. 2. mars 2026 17:16
Sesko-dagar á Old Trafford: „Vildum byggja upp sjálfstraustið hans“ Slóvenski framherjinn Benjamin Sesko er farinn að líta út fyrir að vera alvöru leikmaður og mjög góð kaup sem er um leið að reynast dýrmætt í endurreisn Manchester United undir stjórn Michael Carrick. 2. mars 2026 13:02
„Ég hef bara miklar áhyggjur af þessu“ Tottenham hefur ekki enn unnið deildarleik á árinu 2026 og nálgast nú hratt harða fallbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar. Sunnudagsmessan vildi heyra í þekktasta Tottenham-stuðningsmanni landsins, Hjálmari Erni Jóhannssyni og fá hans mat á stöðunni. 2. mars 2026 09:32
Sjóðheitur Sesko sendi United upp í þriðja sæti Manchester United lenti í miklum vandræðum gegn Crystal Palace en vann að lokum 2-1 sigur, eftir rautt spjald og víti í seinni hálfleiknum. Sigurinn kemur United upp í 3. sæti ensku úrvalsdeildarinnar. 1. mars 2026 15:54