„Hugsaði hvernig ég gæti réttlætt þennan lífstíl fyrir mér áfram“ Aron Guðmundsson skrifar 6. mars 2026 10:32 Halldóra Huld Ingvarsdóttir, hlaupakona og móðir Vísir/Bjarni Vinnubrögð og ósamræmi við val í utanvegahlaupalandslið Íslands milli ára var þess valdandi að einn fremsti hlaupari landsins, Halldóra Huld Ingvarsdóttir, taldi það óraunhæft fyrir sig að vinna sér aftur sæti í liðinu eftir barnsburð fyrir komandi Evrópumót. Hún segir umhverfið ekki mega vera þannig að það geri konum svona erfitt að koma til baka.
Halldóra eignaðist sitt fyrsta barn í apríl í fyrra og í færslu á samfélagsmiðlum vakti hún athygli á ósamræmi í valreglum í landsliðið í utanvegahlaupum milli ára. Í stað þess að líta á árangur einstaklinga í utanvegahlaupum þrjú ár aftur í tímann var greint frá því þann 19. desember síðastliðinn að áherslan yrði lögð á árangur hlaupara síðasta sumar. Þá var Halldóra nýkomin úr barneign. Fyrir HM í fyrra var horft fram hjá góðri stöðu Halldóru á svokölluðum ITRA lista sem farið hefur verið eftir þegar kemur að vali í landsliðið í utanvegahlaupum, þar sem hún var barnshafandi. Taldi hún að slíkt yrði gert aftur núna þar sem að hún var komin á fullt á nýjan leik. „Þegar að ég sá það hugsaði ég með mér að það hlyti að vera hægt að taka tillit til stöðu minnar síðasta sumar þar sem að ég átti barn bara um vorið,“ segir Halldóra í samtali við íþróttadeild Sýnar. „Það er kannski óraunhæft að ætla að ég geti verið að keppa til einhverra stiga svona stuttu eftir barneignir. Árið á undan horfðu þau fram hjá þessum ITRA stigum mínum sem notuð hafa verið til hliðsjónar í valinu. Á þeim tíma var ég barnshafandi og því endurspeglaði staða mín á þeim tímapunkti ekki valreglurnar þeirra. Ég hélt þau myndu geta gert það aftur í ár, sem þau ákváðu svo að gera ekki. Þrátt fyrir að ég væri komin í mjög gott stand. Ég hljóp til að mynda tíu kílómetra í Gamlárshlaupi ÍR á mínum langbesta tíma. Það kom mér mjög mikið á óvart að það hefði ekki verið hægt að sína mér tillit á þeim forsendum að ég hafi verið að koma úr barnseign.“ „Varð eiginlega til þess að ég missti áhugann“ Það var áfall fyrir Halldóru að komast bæði að nýtilkomnum valreglum og að komast ekki í landsliðið. Halldóra með syni sínumAðsend mynd „Ég horfði á listann og hugsaði hvernig ég gæti réttlætt þennan lífstíl fyrir mér áfram. Það að æfa á þessu afreksstigi er krefjandi. Svo þegar að maður bætir móðurhlutverkinu ofan á þá er það orðið enn erfiðara og enn meiri ástæða til að hætta. Mér finnst vinnubrögðin hafa verið þess eðlis að það hafi verið mjög erfitt fyrir mig að koma til baka. Það varð eiginlega til þess að ég missti áhugann. Mér fannst ég þurfa að opna á umræðuna um þetta. Umhverfið má ekki vera þannig að það geri konum svona erfitt fyrir að koma til baka og að þær jafnvel missi áhugann eins og gerðist í mínu tilviki.“ Ákall frá hlaupasamfélaginu Í samtali við Vísi sagði Friðleifur Friðleifsson, formaður Langhlaupanefndar enga algilda reglu ríkjandi varðandi landsliðsval. Ákveðið hafi verið í þetta skipti að hlusta á ábendingar frá hlaupasamfélaginu og að áherslan í landsliðsvali væri á árangur hlaupara sem næst Evrópumótinu og hægt væri. „Mér líður eins og þau hafi bara allt í einu ákveðið að láta síðasta sumar gilda,“ segir Halldóra. „Mér finnst þurfa að vera meiri fagmennska ríkjandi heldur en að maður standi eftir og hugsi með sér: „Ó ég hefði sem sagt átt að gera eitthvað síðasta sumar en fæ ekki að vita það fyrr en núna þegar það er orðið of seint fyrir mig að bregðast við.“ Sammála um að vera ósammála Friðleifur sagði Halldóru hafa fengið símtal frá sér eftir landsliðsvalið sem hafi staðið yfir í fjörutíu og fimm mínútur. Hún segist hins vegar enn þann dag í dag ekki hafa fengið fullnægjandi rök. „Við tölum saman heillengi en enduðum á að segjast þurfa vera sammála um að vera ósammála,“ segir Halldóra sem segist hafa fengið þau skilaboð frá Frjálsíþróttasambandi Íslands að málið yrði tekið upp á vorþingi sambandsins. „Sem er mjög gott. Það er vonandi að það verði einhverjar breytingar.“ Halldóra tekur það sérstaklega fram að núverandi landsliðsfólk eigi sín landsliðssæti fyllilega skilið. Hennar tilgangur með því að stíga fram og segja frá sinni upplifun er ekki til þess gerð að hefja stríð milli einstaklinga. En kveikir þessi óánægja með vinnubrögðin bál innra með henni um að sanna sig enn frekar? „Ég held það sé að koma að því. Að ég fari í þann gír að ætla sko að sýna þeim. Það sem kom mér samt mikið á óvart var að ég hefði haldið að ég hefði farið strax í þann gír. En þetta hafði þveröfug áhrif og ég fór að hugsa: „ég nenni þessu ekki lengur. En það hlýtur eiginlega að koma að því að ég setji í sjötta gírinn og gefi allt í þetta.“ Það hefur gefið henni mikið og hefur víkkað hennar sjóndeildarhring að standa í hlaupunum sem móðir. „Það er gaman að bæta litlu kríli við í þessa vegferð hjá sér. Hann gerir þetta með mér. Við höfum verið hér að taka æfingar saman. Hann nýtur góðs af því líka. Þetta er bara mjög skemmtilegt en líka alveg krefjandi. Það getur verið auðvelt að gefast upp og ætla að hætta en í heildina er þetta ofboðslega skemmtilegt.“
Hlaup Mest lesið „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Íslenski boltinn Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Enski boltinn Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Enski boltinn Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn Íslenski boltinn „Menn mega ekki vera of miklir töffarar“ Fótbolti Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Íslenski boltinn Sjáðu fund Arnars og Ísaks fyrir slaginn við Búlgaríu Fótbolti Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ Enski boltinn Mætti Ítölum tuttugu árum eftir að hafa skallað Materazzi Fótbolti ,,Mikið í gangi í hausnum núna” Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Myndbandsdómgæsla tekin upp í Olísdeildunum „Maður uppsker eins og maður sáir“ Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn ,,Mikið í gangi í hausnum núna” „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ „Það er ekkert högg, það er bara að rísa“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Mætti Ítölum tuttugu árum eftir að hafa skallað Materazzi Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Afmælisbarnið dregur sig úr landsliðinu Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Frakkland - Ítalía | Halda Frakkar sigurgöngunni áfram? Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ Browns byrjar óvænt með látum Arnar ekki lengur yfirlýsingaglaður Sjáðu hvernig Portúgalar fóru með Dani eftir brotthvarf Ronaldo „Menn mega ekki vera of miklir töffarar“ Þurfum að vera óþolandi eins og Aron og Gylfi Chelsea fylgist með 16 ára brasilískum varnarmanni Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Sjáðu fund Arnars og Ísaks fyrir slaginn við Búlgaríu „Held ég muni pakka henni saman“ City-menn búnir að áfrýja Óðinn heim í KR Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Daníel Tristan kallaður inn í A-landsliðið Sjá meira
Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Íslenski boltinn
Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Íslenski boltinn