Eiður flutti dapurleg tíðindi af Andra Lucasi Sindri Sverrisson skrifar 11. mars 2026 22:32 Andri Lucas Guðjohnsen spilar varla meira á þessari leiktíð, samkvæmt Eiði Smára pabba hans. Samsett/Getty Tímabilinu er lokið hjá framherjanum Andra Lucasi Guðjohnsen og hann missir því af komandi landsleikjum í Kanada. Frá þessu greindi pabbi hans, Eiður Smári Guðjohnsen, í kvöld.
Eiður var gestur í Doc Zone í kvöld og samkvæmt frétt Fótbolta.net greindi hann þar frá því hve alvarleg meiðsli Andra væru. Michael O‘Neill, þjálfari Andra hjá Blackburn, hafði sagt við enska miðla að um meiðsli í ökkla væri að ræða og að hann hefði áhyggjur af þeim. Andri meiddist í leiknum við Portsmouth um síðustu helgi og var sagður hafa yfirgefið völlinn á hækjum. „Hann er ekki að spila í dag, verður frá í 8-12 vikur. Fer væntanlega í aðgerð næsta þriðjudag, tímabilið er svolítið búið hjá honum,“ sagði Eiður í Doc Zone í kvöld en Blackburn tapaði 1-0 gegn Oxford Utd í kvöld í fjarveru Andra. Meiðsli Andra þýða að hann verður ekki með íslenska landsliðinu í leikjunum við Kanada og Haítí í Kanada 28. og 31. mars en gæti mögulega verið með þegar landsliðið kemur aftur saman í júní. Hann var áður frá keppni í vetur vegna meiðsla í læri, eftir að hafa verið sjóðheitur og skorað sjö mörk í ellefu leikjum í ensku B-deildinni. Ljóst er að Blackburn mun sakna Andra í þeirri hörðu baráttu sem liðið er í um að halda sér upp í deildinni. Liðið er í 20. sæti en aðeins stigi frá fallsæti þegar níu umferðir eru eftir.
Enski boltinn Landslið karla í fótbolta Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Engin uppalin spilaði með Fram Íslenski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Fleiri fréttir „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjá meira