Annar tónn í Trump sem ráðleggur Íran að halda sig fjarri HM Ágúst Orri Arnarson skrifar 12. mars 2026 18:00 Trump er sagður hafa látið Infantino vita af breyttri afstöðu sinni. Alex Grimm/Getty Images Bandaríkjaforsetanum Donald Trump hefur snúist hugur og segir hann nú að það sé ekki viðeigandi fyrir íranska landsliðið að mæta á HM í sumar.
Trump birti færslu á samfélagsmiðli sínum sem stangast verulega á við ummæli hans í síðustu viku, þar sem hann sagði að honum væri „alveg sama“ hvort íranska landsliðið myndi mæta til leiks á HM. „Íranska landsliðið í fótbolta er velkomið á heimsmeistaramótið, en ég tel það í raun ekki viðeigandi að það sé þar, lífs þeirra og öryggis vegna. Þakka ykkur fyrir að veita þessu máli athygli!“ skrifar Trump á Truth Social. Fyrr í vikunni sagði íþróttamálaráðherra Íran að Bandaríkjastjórn hefði gert landsliðinu ómögulegt að taka þátt á HM. Íran hefur ekki enn formlega dregið sig úr keppni en allt stefnir í að það gerist. Samkvæmt upplýsingum AP fréttaveitunnar innan úr Hvíta húsinu hefur Trump átt í samskiptum við Gianni Infantino, forseta FIFA, um breytta afstöðu sína. Ekki kemur fram hvað Trump átti nákvæmlega við þegar hann sagði „lífs þeirra og öryggis vegna.“ Íran er ein af 48 þjóðum sem tekur þátt á HM í fótbolta í sumar en yfirstandandi innrás Bandaríkjanna og Ísraels í landið gerir íranska knattspyrnusambandinu erfitt fyrir. Fleiri þjóðir eru í hættu á að missa af mótinu vegna stríðsins. Írak gæti þurft að gefa umspilsleik sinn gegn Bólivíu eða Súrínam, sem á að fara fram í Mexíkó þann 31. mars, ef lofthelgi landsins helst lokuð. Þá eru þjóðir eins og Senegal, Fílabeinsströndin og Haítí sem sæta farbanni til Bandaríkjanna, sem landsliðin sjálf eru undanskilin, en munu ekki njóta stuðnings síns fólks.
HM 2026 í fótbolta FIFA Bandaríkin Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Íran Donald Trump Fótbolti Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti „Guð morning!“ Enski boltinn Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Fleiri fréttir Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Siggi Raggi getur gert NSÍ að Færeyjameisturum í dag Infantino segist njóta gríðarlegs stuðnings Sjá meira