Jón Ásgeir fær ekki meira frá ríkinu Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 12. mars 2026 20:59 Jón Ásgeir Jóhannesson er stjórnarformaður Dranga, samstæðu sem heldur utan um Orkuna, Löður, Samkaup, Lyfjaval og Atlögu. Landsréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjavíkur í máli sem Jón Ásgeir Jóhannesson fjárfestir höfðaði gegn íslenska ríkinu. Jón Ásgeir krafðist tæplega 45 milljóna króna endurgreiðslu ásamt vöxtum og miskabótum en fær ekki. Má telja líklegt að Baugsmálinu svonefnda sé endanlega lokið.
Baugsmálið má rekja aftur til upphafs aldarinnar og sneri að málaferlum ríkissaksóknara og á hendur eigendum fjárfestingafélagsins Baugs Group hf. sem rak matvælaverslanir og stundaði verðbréfaviðskipti. Jón Ásgeir, þáverandi stjórnarformaður Baugs, var meðal sakborninga og var eftir langa rannsókn og málaferli dæmdur fyrir skattalagabrot og til skilorðsbundinnar fangelsisrefsingar og sektar í Hæstarétti árið 2013. Málið var síðar endurupptekið og árið 2022 féll dómur í Hæstarétti þar sem hluta sakargifta var vísað frá héraðsdómi en hann þó áfram sakfelldur fyrir meiri háttar skattalagabrot. Í þeim dómi var ákveðið að Jóni Ásgeiri skyldi ekki gerð sérstök refsing. Gestur Jónsson, verjandi Jóns Ásgeirs, skrifaði grein á Vísi árið 2022 þar sem hann taldi dóminn marka endalok Baugsmálsins. „Jón Ásgeir fæddist árið 1968 og var því þrítugur við upphaf þessarar sögu. Af reynslu get ég sagt að fátt reynist manni erfiðara í lífinu en að vera borinn sökum um refsivert brot. Að meðferð refsimáls á hendur einstaklingi taki meira en tuttugu ár vona ég að gerist aldrei aftur,“ sagði Gestur Jónsson í greininni. Málinu var þó ekki alveg lokið því í kjölfarið krafðist Jón Ásgeir þess að ríkið endurgreiddi honum stærri hluta þeirrar sektar sem hann hafði greitt samkvæmt dómnum frá 2013. Hann taldi jafnframt að hann ætti rétt á frekari vöxtum af endurgreiðslunni og krafðist einnig 10 milljóna króna í miskabætur.. Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði kröfum Jóns Ásgeirs og taldi hann ekki hafa sýnt fram á að hann ætti rétt á frekari endurgreiðslu. Landsréttur komst að sömu niðurstöðu í dómnum sem kveðinn var upp í dag. Í dómi réttarins segir að Jóni Ásgeiri hafi ekki tekist að sanna að hann ætti rétt á frekari greiðslum frá ríkinu umfram það sem þegar hafði verið endurgreitt. Sama átti við um kröfu hans um frekari vexti. Þá var íslenska ríkið einnig sýknað af kröfu hans um miskabætur. Jafnframt var áréttað að um væri að ræða almennt einkamál sem félli undir lög um meðferð einkamála en ekki mál sem lyti að innheimtu sektar. Með dómnum fyrir Landsrétti má telja líklegt að Baugsmálinu sé lokið þó ekki megi útiloka að Jón Ásgeiri óski eftir áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar sem veitir þau aðeins í einstaka tilfellum.
Dómsmál Mest lesið Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Viðskipti erlent Fleiri fréttir Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Sjá meira