Haukar stöðvuðu sigurgöngu Eyjakvenna Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 14. mars 2026 14:49 Rakel Oddný Guðmundsdóttir var markahæst í liði Hauka í sigrinum á ÍBV. vísir/anton Haukar lögðu ÍBV að velli, 25-23, í fyrsta leik 19. umferðar Olís-deildar kvenna í handbolta í dag. Þetta var þriðji sigur Hafnfirðinga í röð en með honum fóru þeir langt með að tryggja sér 3. sæti deildarinnar.
Haukar eru með 23 stig í 3. sæti Olís-deildarinnar, þremur stigum á undan ÍR sem er í 4. sætinu. Haukar mæta tveimur neðstu liðum deildarinnar, Selfossi og Stjörnunni, í síðustu tveimur umferðunum. Fyrir leikinn á Ásvöllum í dag hafði ÍBV unnið fjóra leiki í röð. Eyjakonur eru í 2. sæti deildarinnar með þrjátíu stig, tveimur stigum á eftir toppliði Valskvenna. Klukkan 15:00 hefst leikur Vals og Fram á Hlíðarenda. Rakel Oddný Guðmundsdóttir skoraði sjö mörk fyrir Hauka í dag og Sonja Lind Sigsteinsdóttir fimm. Sara Sif Helgadóttir varði fjórtán skot í marki heimakvenna sem voru þremur mörkum yfir í hálfleik, 15-12. Sandra Erlingsdóttir skoraði sex mörk fyrir ÍBV og Birna Berg Haraldsdóttir fimm. Amalia Froland varði fimmtán skot í marki gestanna. ÍBV mætir ÍR á heimavelli í næstsíðustu umferðinni og sækir svo Íslands- og bikarmeistara Vals heim í lokaumferðinni.
Olís-deild kvenna Haukar ÍBV Mest lesið UEFA hótar FIFA með lögsókn Fótbolti Donald Trump tók við verðlaunum sem klúbbmeistari á sínum eigin velli Golf Knattspyrnukona drukknaði á leið í betra líf Fótbolti Fjögur mörk og meiðsli í slæmum seinni hálfleik gegn Leeds Fótbolti Gaf puttann eftir að hafa skorað gegn Frey Fótbolti Leikmenn hafa neitað að koma til Juventus Fótbolti Klifraði upp í stúku og réðst á stuðningsmann eftir að hafa verið skipt af velli Fótbolti Svona er hægt að koma Infantino frá völdum Fótbolti Írskur hnefaleikakappi í „alvarlegu“ ástandi eftir að hafa rotast í bardaga Sport Freyr tapaði gegn sínu gamla félagi þar sem Kristall var á skotskónum Fótbolti Fleiri fréttir Costa-bræðurnir eftirsóttu völdu Flensburg Unnu leikina í riðlinum með samtals 32 mörkum og Króatar og Portúgalir bíða Strákarnir áfram með fullt hús Ungverjagrýlan hrjáir ekki U18 lið Íslands Yngsti Skipagötu-bróðirinn skoraði þrettán mörk í fyrsta leik á EM Fjórtán marka stórsigur í fyrsta leik Var sagt upp á stórafmælinu og er haldinn út í heim Besti handboltamaður heims fór í markið Hafnaði mörgum góðum tilboðum og fór frekar heim „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Sjá meira