Ísland spilar í Tókýó í sumar Sindri Sverrisson skrifar 18. mars 2026 08:14 Hákon Arnar Haraldsson er væntanlega á leið til Asíu í byrjun sumars. Getty/Catherine Steenkeste Íslenska karlalandsliðið í fótbolta heldur til Asíu í lok maí og mun þar spila vináttulandsleik við Japan, í Tókýó.
KSÍ staðfesti þetta í dag en unnið er að því að landsliðið spili einnig gegn öðrum mótherja í sama landsleikjaglugga. Leikurinn við Japan fer fram 31. maí. Japan er í 19. sæti heimslistans og mun nýta leikinn við Ísland til að undirbúa sig fyrir komandi HM. Japanar byrja HM á leik við Holland 14. júní. Á meðal þekktra leikmanna japanska landsliðsins má nefna fyrirliðann Wataru Endo, leikmann Liverpool, Kaoru Mitoma hjá Brighton, Daichi Kamada sem spilar með Crystal Palace, og Takefusa Kubo, kantmanninn sem spilar með Orra Óskarssyni hjá Real Sociedad. Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari tilkynnir í dag íslenska hópinn sem mæta mun Kanada og Haítí í vináttulandsleikjum í lok þessa mánaðar. Fundurinn verður í beinni útsendingu á Vísi klukkan 13:15. Fram undan eru því alls fjórir vináttulandsleikir, tveir í mars og tveir í byrjun sumars, áður en Ísland hefur svo keppni í C-deild Þjóðadeildarinnar í haust. Japan unnið alla þrjá leikina KSÍ bendir á það í tilkynningu að Ísland og Japan hafi mæst þrisvar sinnum og Japan unnið alla þrjá leikina. Síðasta mættust liðin í Osaka í febrúar 2012 og var það jafnframt fyrsti leikur Íslands undir stjórn Lars Lagerbäck. Leiknum lauk með 3-1 sigri heimamanna og mark Íslands skoraði Arnór Smárason. Heiðar Helguson skoraði tvö mörk þegar japanska liðið vann 3-2 sigur á City of Manchester Stadium árið 2004. Brynjar Björn Gunnarsson fékk rautt spjald seint í leiknum. Fyrsta viðureign liðanna var svo á Laugardalsvelli árið 1971 og unnu gestirnir þá tveggja marka sigur fyrir framan tæplega 6 þúsund áhorfendur. Ríkharður Jónsson var þjálfari íslenska liðsins. Við þetta má bæta að A landslið karla lék æfingaleik við japanska félagsliðið Hitachi Reysol í mars 1994 og vann 2-1 sigur með mörkum frá Ólafi Þórðarsyni og núverandi þjálfara A landsliðs karla, Arnari Gunnlaugssyni. Fram kemur í bók Víðis Sigurðssonar, Íslensk knattspyrna 1994, að íslenska liðinu hafi verið „boðið til Japans af þarlendu fjölmiðlafyrirtæki og áhorfendur voru um 18 þúsund, sem var vallarmet í bænum Nishikawada”.
Landslið karla í fótbolta Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Engin uppalin spilaði með Fram Íslenski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Fleiri fréttir „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjá meira