Biðlar til Løkke að mynda með sér miðhægristjórn Samúel Karl Ólason skrifar 24. mars 2026 23:34 Troels Lund Poulsen vill alls ekki aftur í ríkisstjórn með Mette Frederiksen. EPA/Mads Claus Rasmussen Hvorki rauða né bláa blokkin náði hreinum meirihluta í þingkosningunum í Danmörku. Rauða blokkin fékk 84 þingsæti en sú bláa fékk 77. Moderaterne-flokkur Lars Løkke Rasmussen fékk fjórtán sæti og er í lykilstöðu fyrir stjórnarviðræður, sem gætu reynst flóknar en Troels Lund Poulsen, leiðtogi Venstre, hefur útilokað áframhaldandi ríkisstjórnarsamstarf með Sósíaldemókrataflokki Mette Frederiksen.
Troels Lund kallar eftir því að Lars Løkke, sem stýrir þriðja flokkinum í fyrrverandi ríkisstjórn Danmerkur, gangi til liðs við sig og aðra til að mynda mið-hægri ríkisstjórn. Annars muni Venstre fara í stjórnarandstöðu. Sósíaldemókrataflokkur Mette Frederiksen fékk 21,9 prósent atkvæða og 38 þingsæti, samkvæmt danska ríkisútvarpinu. Hann er því stærsti flokkurinn á nýju þingi. Á milli kosninga er flokkurinn að tapa 6,5 prósentustigum og tólf þingsætum. Þar á eftir kom Socialistisk Folkeparti með 11,6 prósent atkvæða og tuttugu þingsæti en flokkurinn er að bæta við sig fimm þingsætum. Því næst komu Venstre með 10,1 prósent atkvæða og átján þingsæti. Það er 3,2 prósentustigum minna en í síðustu kosningum og er flokkurinn að missa fimm þingsæti. Meðlimir Venstre eru borubrattir eftir kosningarnar, þótt að flokkurinn hafi aldrei fengið færri atkvæði og hafi tapað fimm þingsætum.AP/Sergei Grits Liberal Alliance er fjórði stærsti flokkurinn með 9,4 prósent og sextán þingsæti. Í fimmta sæti er svo Dansk Folkeparti með 9.1 prósent atkvæða og sextán þingsæti. Moderaterne eru sjötti stærsti flokkurinn með 7,7 prósent atkvæða og fjórtán þingsæti. Svo er Íhaldsflokkurinn með 7,6 prósent atkvæða og þrettán þingsæti. Enhedslisten fékk 6,3 prósent og ellefu þingsæti. Radikale fékk 5,8 prósent og tíu þingsæti. Danmarksdemokraterne fékk einnig 5,8 prósent og tíu þingsæti. Alternativet fékk svo 2,6 prósent og fimm þingsæti og þar á eftir var Borgernes Parti með 2,1 prósent og fjögur þingsæti. Kjörsókn var 83,7 prósent.
Danmörk Þingkosningar í Danmörku Tengdar fréttir Útgönguspá: Ríkisstjórninni refsað en Løkke í lykilstöðu Dönsku ríkisstjórnarflokkarnir, allra helst Sósíaldemókrataflokkur Mette Frederiksen forsætisráðherra, tapa fylgi í þingkosningum í kvöld samkvæmt útgönguspám. Samt er Lars Løkke Rasmussen úr Moderaterne í lykilstöðu hvað varðar stjórnarmyndun, þar sem hvorki rauða né bláa blokkin fær hreinan meirihluta. 24. mars 2026 19:08 Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira
Útgönguspá: Ríkisstjórninni refsað en Løkke í lykilstöðu Dönsku ríkisstjórnarflokkarnir, allra helst Sósíaldemókrataflokkur Mette Frederiksen forsætisráðherra, tapa fylgi í þingkosningum í kvöld samkvæmt útgönguspám. Samt er Lars Løkke Rasmussen úr Moderaterne í lykilstöðu hvað varðar stjórnarmyndun, þar sem hvorki rauða né bláa blokkin fær hreinan meirihluta. 24. mars 2026 19:08