„Tannlæknirinn hefur fengið sinn séns og nú verður hann að fara“ Aron Guðmundsson skrifar 27. mars 2026 10:02 Lærisveinar Heimis Hallgrímssonar lutu í lægra haldi gegn Tékkum í umspili fyrir HM í gær. HM draumurinn orðinn að engu. Vísir/Getty Eamon Dunphy, fyrrverandi landsliðsmaður Írlands og opinber andstæðingur Heimis Hallgrímssonar hefur endanlega fengið nóg af Eyjamanninum eftir að HM draumur Íra varð að engu í gær. Hann vill að Heimir verði rekinn úr starfi landsliðsþjálfara Írlands, ekki í fyrsta skipti sem hann lætur það út úr sér.
HM-draumur Írlands og Heimis Hallgrímssonar er úti eftir tap í vítaspyrnukeppni gegn Tékklandi í Prag í gærkvöld. Írar komust tveimur mörkum yfir í leiknum en glutruðu niður forustu sinni og töpuðu á endanum í vítaspyrnukeppni. Írar voru farnir að sjá fyrir sér HM draum í uppsiglingu og úrslitaleik um sæti á mótinu gegn Dönum á heimavelli en sitja nú eftir með sárt enni. Brostna drauma. „Í svona stöðu sem þjálfarinn á að stíga inn“ Eamon Dunphy verður seint talinn stuðningsmaður Heimis. Hann hefur reglulega í gegnum tíðina tætt Eyjamanninn í sig í pistlum á írska miðlinum Irish Mirror og það varð engin breyting þar á eftir leik gærkvöldsins. „Írland hafði sigurinn í höndum sínum en kastaði honum frá sér,“ skrifar Dunphy í pistli sem birtist á vef Irish Mirror. „Glutruðu niður tveggja marka forystu, leikurinn fer í framlengingu og tapast í vítaspyrnukeppni. Þetta er ekki óheppni. Þetta er óstjórn.“ Skömmu eftir seinna markið, í stöðunni 2-0, hafi írska landsliðið verið með stjórn á leiknum. „Góð lið drepa klára leikinn í svoleiðis stöðu. Vel þjálfuð lið stjórna slíkjum leikjum. Írland gerði hvorugt.“ Írska landsliðið hafi brotnað undir pressu þegar að Tékkland minnkaði muninn með marki úr vítaspyrnu. „Mistök eiga sér stað en það sem skilgreinir lið er hvernig það bregst við. Viðbrögð Írlands voru kaotísk. Það er í svona stöðu sem þjálfarinn á að stíga inn. Þú þarft strúktúr, skýrleika og leiðtogahæfni frá hliðarlínunni. Í stað þess að fá þetta, fengum við ringulreið.“ Heimir ræðir við sína menn í gær.Vísir/Getty „Landsliðsfótbolti er ekki flókinn“ Dunphy verður seint talinn aðdáandi Heimis. Í raun hefur hann aldrei gefið Eyjamanninum tækifæri eftir að hann var ráðinn landsliðsþjálfari Írlands. Írland hefur ekki komist á HM síðan árið 2002. Nokkrum sinnum hefur liðið komist í umspil um sæti á mótinu síðan þá en aldrei tekist að komast alla leið. Heimi hafði tekist að ná upp mikilli stemningu í kringum írska landsliðið á nýjan leik, eitthvað sem hafði ekki verið raunin í mörg ár en Dunphy hefur séð nóg. „Landsliðsfótbolti er ekki flókinn. Hann snýst um skipulag og að taka réttar ákvarðanir á réttum tíma. Það gekk allt upp hjá Írlandi snemma leiks en svo glataðist allt. Spurningin er: Af hverju? Leitin að svarinu leiðir mann alltaf á sama stað. Þjálfarinn. Það eru jákvæð teikn á lofti í þessum landsliðshópi. Parrot er alvöru hæfileikabúnt og aðrir leikmenn geta staðið sig á þessu gæðastigi en leikkerfið er að bregðast þeim. Eða skortur á leikkerfi sem spilar á styrkleikum þeirra.“ Tapið sé ekki aðeins glatað tækifæri heldur merki um djúpstætt vandamál. „Fyrir mitt leiti er lokaniðurstaðan óumflýjanleg. Þetta hefur verið reynt til hins ítrasta. Sönnunargögnin eru til staðar, ekki bara í þessum leik. Tannlæknirinn hefur fengið sitt tækifæri. Nú verður hann að fara.“ Heimir Hallgrímsson skrifaði nýverið undir nýjan samning við írska knattspyrnusambandið sem gildir fram yfir Evrópumót landsliða árið 2028. Írar verða gestgjafar næsta Evrópumóts, ásamt Englandi, Skotlandi og Wales, og því ljóst að Heimi er ætlað að stýra írska liðinu á heimavelli sumarið 2028.
Heimir Hallgrímsson þjálfar landslið Írlands HM 2026 í fótbolta Mest lesið Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Enski boltinn „Er dómarinn á því getustigi sem þarf í undanúrslitum HM?“ Fótbolti Bónorð strax eftir leik í Garðabæ Íslenski boltinn Tvenna Daníels tryggði Víkingi meira en hundrað milljónir Fótbolti Sjáðu Víkinga fagna lokaflautinu og sæti í næstu umferð Fótbolti Kæra forseta FIFA til Alþjóðaólympíunefndarinnar Fótbolti Landsliðsmiðverðirnir skiptu báðir um lið í dag Fótbolti Urðu að sofa úti á svölum á hótelherberginu Sport Fleiri fréttir Maður dagsins á HM: Byrjaði hjá Barcelona en nú kominn til Real Madrid Sjáðu Stjörnuna stimpla sig í titilslag og Hamlett koma Fram af botninum Tvenna Daníels tryggði Víkingi meira en hundrað milljónir Bónorð strax eftir leik í Garðabæ Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik „Er dómarinn á því getustigi sem þarf í undanúrslitum HM?“ Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Landsliðsmiðverðirnir skiptu báðir um lið í dag „Ekkert af þessu gekk og þá líður manni ömurlega“ „Hvað viljið þið að Jude Bellingham segi?“ „Minn stærsti draumur“ Uppgjör og viðtöl: Þróttur-Fram 0-1 | Unnu aftur og komust af botninum Spánverjar í úrslitaleikinn eftir sannfærandi sigur á Frökkum Kæra forseta FIFA til Alþjóðaólympíunefndarinnar Sjáðu Víkinga fagna lokaflautinu og sæti í næstu umferð Uppgjör: Stjarnan-Þór/KA 3-2: Stjörnukonur aftur á sigurbraut Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United Uppgjörið: Györ ETO - Víkingur 2-2 | Tvö mörk Daníels komu Víkingi áfram í næstu umferð Fimm HK-ingar á skotskónum í stórsigri KSÍ ætlar ekki að láta gervigreindina koma í stað starfsfólks „Mikilvægasti leikurinn minn og ég er ekki hræddur“ City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar „Fólk meiðist og aðrir þurfa að taka við“ Virkar eins og forfallakennari Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann Sakar lækni landsliðsins um loddaraskap Mbappé klár í slaginn en Spánverjar líklegri til sigurs Bróðir Yamals slær í gegn á HM Sjáðu dramatíkina í endurkomusigri Blika Sjá meira