Varð landsfræg á einni nóttu: „Hefur alveg mótað mig í gegnum lífið“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 31. mars 2026 09:00 Lovísa Thompson leikur í dag með Val og hefur gert undanfarin ár. Hún sló hins vegar í gegn hjá Gróttu meðan hún var enn í grunnskóla. sýn sport Handboltakonan Lovísa Thompson segir að það hafi verið krefjandi að verða allt í einu landsfræg á einni nóttu eftir að hún tryggði Gróttu sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil, þá aðeins fimmtán ára.
Mark Lovísu í fjórða leik Stjörnunnar og Gróttu um Íslandsmeistaratitilinn 2015 er til umfjöllunar í öðrum þætti Augnablikanna sem nefnist „Stjarna verður til.“ Þrátt fyrir að vera enn í 10. bekk var Lovísa í stóru hlutverki hjá Gróttu sem vann alla þrjá titlana sem í boði voru tímabilið 2014-15. Liðið tryggði sér sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil í Garðabænum 12. maí 2015. Lovísa skoraði sigurmark Seltirninga í þann mund sem leiktíminn rann út. „Þetta er kerfi sem heitir Köben, það átti að draga frá og ég held einmitt að ég hafi átt fara á en svo byrjar eitthvað klafs og við förum í smá panikk,“ sagði Lovísa er hún rifjaði þessa lokasókn leiksins fyrir ellefu árum upp. Klippa: Augnablikin - Stjarna verður til „Svo kom þetta mark hjá Lovísu upp úr þurru. Ég held að það hafi verið þrír varnarmenn á móti henni. Samt skýtur hún í varnarmannshornið og Flora átti í röð í hana jafnvel þótt hún væri frábær markvörður. Hún var komin í sitt horn og ætlaði að taka það,“ sagði Anna Úrsúla Guðmundsdóttir sem sneri aftur heim í Gróttu fyrir tímabilið 2014-15. Smá ósanngjörn pressa Lovísa segir að þetta augnablik hafi haft mikil áhrif á hana. „Þetta hefur alveg mótað mig í gegnum lífið. Ég myndi alveg segja það. Að vera kannski þekkt nafn út frá þessu og finna fyrir aukinni pressu mikið út frá sjálfri mér en kannski líka eitthvað frá umhverfinu,“ sagði Lovísa. „Ég held að þetta hafi mest komið frá mér sjálfri og það er kannski smá ósanngjörn pressa því þú ert ekki einn í handboltaliði. Þetta er liðsíþrótt og þetta á ekki að vera á einum einstaklingi.“ Lovísa hefur unnið fjölmarga titla á ferlinum, bæði með Gróttu og Val. Hún var meðal annars í sigurliði Valskvenna í EHF-bikarnum í fyrra. Þá hefur Lovísa verið lengi í landsliðinu og lék með því á EM á síðasta ári. Innslagið úr Augnablikunum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan og þáttinn í heild sinni má svo nálgast á efnisveitu Sýnar Sports.
Olís-deild kvenna Grótta Augnablikin Tengdar fréttir Draugamarkið í Eyjum: Kastaði medalíunni út í hraun Tómas Ingi Tómasson á enn erfitt með að sætta sig við markið sem var dæmt af honum í úrslitaleik ÍBV og ÍA um Íslandsmeistaratitilinn í fótbolta karla fyrir aldarfjórðungi. 30. mars 2026 08:02 Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland | Strákarnir okkar í Tókýó Fótbolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Körfubolti Fleiri fréttir Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Rúnar sigraði á móti sínum gömlu íslensku lærisveinum Donni og félagar komnir í úrslit Allt jafnt í úrslitaeinvíginu Einar Rafn snýr aftur í Fjörðinn Haukur mikilvægari en Gidsel Sjá meira
Draugamarkið í Eyjum: Kastaði medalíunni út í hraun Tómas Ingi Tómasson á enn erfitt með að sætta sig við markið sem var dæmt af honum í úrslitaleik ÍBV og ÍA um Íslandsmeistaratitilinn í fótbolta karla fyrir aldarfjórðungi. 30. mars 2026 08:02