Reka þjálfarann 78 dögum fyrir fyrsta leik á HM Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 31. mars 2026 14:00 Otto Addo stýrði Gana í síðasta sinn í 2-1 tapi fyrir Þýskalandi í vináttulandsleik í Stuttgart í gær. getty/Alex Grimm Knattspyrnusamband Gana hefur sagt Otto Addo upp störfum sem þjálfara karlalandsliðs þjóðarinnar. Aðeins 78 dagar eru þar til Gana leikur sinn fyrsta leik á HM í Kanada, Bandaríkjunum og Mexíkó.
Gana tapaði fyrir Þýskalandi í vináttulandsleik í gær, 2-1. Það var kornið sem fyllti mælinn fyrir forráðamenn ganverska knattspyrnusambandsins. Þetta var fimmta tap Gana í röð en á föstudaginn steinlá liðið fyrir Austurríki, 5-1. Ganverjar geta ekki drollað við leitina að nýjum þjálfara því eftir aðeins 78 daga mæta þeir Panamamönnum í fyrsta leik sínum á heimsmeistaramótinu. Auk Gana og Panama eru England og Króatía í L-riðlinum á HM. Addo tók í annað sinn við Gana í mars 2024 og stýrði liðinu í 22 leikjum. Átta þeirra unnust, níu töpuðust og fimm enduðu með jafntefli. Addo stýrði Gana einnig stærstan hluta ársins 2022, meðal annars á HM í Katar. Ganverjar komust þar ekki upp úr riðlinum. Gana spilar tvo vináttuleiki fyrir HM sem verða fyrstu leikirnir undir stjórn nýs þjálfara. Ganverjar mæta Mexíkóum 22. maí og Walesverjum 2. júní. Fyrsti leikur liðsins á HM er svo 17. júní.
Fótbolti HM 2026 í fótbolta Gana Mest lesið Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Enski boltinn Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ Íslenski boltinn Er búinn að glíma við þunglyndi Fótbolti Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Enski boltinn „Þetta hefur verið ótrúlega erfitt“ Sport „Stúkan er of þögul“ Fótbolti Ögmundur laus allra mála hjá Val Íslenski boltinn „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Körfubolti Jelena kölluð inn í landsliðið Fótbolti Fleiri fréttir Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Ögmundur laus allra mála hjá Val HM-minning: Leið yfir móður hans þegar hún fékk fréttirnar Jelena kölluð inn í landsliðið Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Er búinn að glíma við þunglyndi Nottingham Forest hafnar tilboði Manchester City „Stúkan er of þögul“ ÍBV riftir samning Filip Stuparevic Tryggði sigurinn með glæsimarki Danir andlausir gegn Kongó Lofar nýjum stjörnuleikmanni í Real Madrid á morgun Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur Messi æfði einn viku fyrir Íslandsleikinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield „Allar spár kolrangar og vitlausar“ HM-minning: Þegar Norður-Kórea komst lengra en Brasilía á HM Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Listamaður lögsækir FIFA fyrir að mála yfir myndina sína Norðmenn mæta með nýja útgáfu af Víkingaklappinu á HM í sumar Manchester United kaupir Ederson Ný rangstöðutækni á HM Samkomulag náðst milli Iraola og Liverpool John Barnes greindist með krabbamein Wales jafnaði metin í lokin Kláruðu leikinn með síðustu spyrnu leiksins Sjá meira