Lífið

Páskar: Ef þú mættir velja ein­hvern til að kross­festa

Sif Sigmarsdóttir skrifar
Sif Sigmarsdóttir er með vikulega pistla á Vísi.
Sif Sigmarsdóttir er með vikulega pistla á Vísi. Vísir/Sara Rut

Á páskum fagna því væntanlega ýmsir að Guð hafi gefið son sinn eingetinn, svo að hver sem á hann trúir glatist ekki, heldur hafi eilíft líf. Þeir eru þó sennilega fleiri sem fagna því að fá frí í vinnunni, þar sem lífið virðist oft sannarlega eilíft.

Hvernig stendur á því að mannkynið gat smíðað gervigreind en okkur hefur ekki tekist að bæta prentarann síðan Ron Livingston rústaði honum með hafnaboltakylfu í kvikmyndinni Office Space árið 1999?

Ef ég mætti velja einhvern einn til að krossfesta væri það sessunautur minn á annars hljóðlátri skrifstofunni, sem stundar „manspreading“ með raddfærunum þar sem hann „dregur upp sviðsmyndir“ á Teams fundum liðlangan daginn, „hugsar út fyrir kassann“, „innleiðir ferla“, „lendir verkefnum“, „skalar upp“, „pivotar“ og „tekur samtalið“.

Pappakassalaga sálir

Skoðanakönnun sem var gerð í Bretlandi árið 2015 sýndi að 37% fólks á vinnumarkaði taldi starf sitt vera með öllu óþarft.

Ég trúi ekki á Guð, föður almáttugan, eða hans einkason Jesú Krist, sem getinn var af heilögum anda. Ég trúi hins vegar á þá kenningu að gagnsleysi starfs sé í réttu hlutfalli við hversu marga fundi sá sem sinnir því situr.

Skoðanakönnun sýnir að 37% fólks telur starf sitt vera með öllu óþarft.GETTY

Fundir eru eins og forgarður vítis; ekki himnaríki en ekki helvíti, ekki frí en ekki vinna, heldur hamingjusnautt einskismannsland, eins og rauf í parketi á mörkum þess að vera til, þar sem pappakassalaga sálir sveima á vængjum sniðnum úr kennslubókum úr Harvard Business School, dæmdar til að upplifa veruleikann aðeins á hugmyndafræðilegum forsendum, að eilífu, amen, eins og viðfangsefni skýrslu.

Óvinur þess góða

„Fullkomnun er óvinur þess góða,“ heyrði ég CTO tæknifyrirtækis segja starfsfólki sínu á fundi. Hann vitnaði ekki í Voltaire, sem venjulega er eignað spakmælið, heldur bíómyndina BlackBerry, sem segir sköpunarsögu símaframleiðandans, sem naut hylli upp úr síðustu aldamótum en fór svo næstum á hausinn.

Því næst skipaði CTO-inn tíu manna stýrihóp sem falið var að hanna hinn fullkomna takka fyrir smáforrit fyrirtækisins.

Óhrædd myndi ég veðja „tupperware“ lönsinum mínum á að takkans verði jafnlangt að bíða og endurkomu lausnarans.

Refsing fyrir erfðasyndina

En það er ekki aðeins vinnan mín og þín sem er stundum eins og refsing fyrir erfðasyndina.

Eftirfarandi eru dæmi um starfsmenn sem sinntu draumadjobbinu en stóðu samt í sama stappi og við hin:

1) Mary Anning

Mary Anning fæddist árið 1799 í Dorset á Englandi.

Aðeins tólf ára fann Anning beinagrind af risaeðlu rétt hjá heimili sínu.

Anning varð einn færasti steingervingafræðingur Breta. Hún uppskar þó ekki eins og hún sáði.

Sem fátæk kona af verkamannastétt var henni haldið utan við vísindasamfélagið.

Hún sá sér farborða með því að selja steingervinga sem hún fann í bakgarðinum hjá sér.

Í síðustu viku var selt á uppboði bréf, sem Anning sendi óþekktum viðtakanda. Í bréfinu kvartar hún undan vinnunni og viðskiptavinunum og segist hafa fengið sig „fullsadda af steingervingum“.

Árið 2020 fór Kate Winslet með aðalhlutverk í kvikmynd sem byggð var á ævi Anning.

2) Johann Sebastian Bach

Verk eftir þýska tónskáldið Johann Sebastian Bach eru á efnisskrá tónleika Víkings Ólafssonar í Hörpu í kvöld.

Þótt tónlist Bach teljist nú meistaraverk var Bach sjaldnast metinn að verðleikum af vinnuveitendum sínum.

Árið 1708 tók Bach við stöðu hirðorganista í Weimar. Þegar yfirmaður Bach, hertoginn Wilhelm Ernst, gekk framhjá organistanum í stöðu „capellmeister“, æðstu tónlistarstöðu við hirðina í Weimar, var Bach nóg boðið. Hann sótti um nýja vinnu og fékk hana.

Hertoginn tók hins vegar uppsögn Bach svo illa að hann stakk tónskáldinu í fangelsi. Taldi hann víst að Bach myndi snúast hugur við refsinguna.

Bach var hins vegar þekktur fyrir þrjósku. Eftir fjögurra vikna fangelsisvist átti hertoginn ekki annarra kosta völ en að láta hann lausan.

Sagt er að í prísundinni hafi Bach unnið að Das Wohltemperierte Klavier sem einmitt er á efnisskránni í kvöld.

3) Herman Melville

Skáldsagan Mobý Dick var að sögn innblásin af sönnum atburði en árið 1820 skallaði búrhvalur skip við Galapagoseyjar með þeim afleiðingum að það sökk.

Litlar vísbendingar höfðu fundist fyrir slíkri hegðun hjá búrhvölum þangað til í síðustu viku þegar vísindamenn birtu nýja rannsókn og drónamyndbönd af búrhvölum sem skölluðu hver annan við leik.

Höfund Mobý Dick, Herman Melville, dreymdi um frægð og frama sem rithöfundur. Þótt Mobý Dick þyki nú klassík fannst samtímamönnum Melville lítið til verka hans koma.

Eftir að Mobý Dick floppaði neyddist Melville til að fá sér það sem gárungarnir kalla „alvöru vinnu“. Hann varði ævinni við skriffinnsku sem tollvörður í New York.

4) Leonardo da Vinci

Í dag, skírdag, minnast menn síðustu kvöldmáltíðarinnar sem Jesú deildi með lærisveinum sínum.

Frægasta myndlýsing á samkomunni er veggmynd sem Leonardo da Vinci málaði í klaustri í Mílanó.

Leonardo da Vinci leiddist líka stundum í vinnunni.GETTY

Da Vinci gegndi draumastarfinu. Engu að síður var hann haldinn epískri frestunaráráttu.

Segir sagan, að hann hafi starað á Síðustu kvöldmáltíðina heilu og hálfu dagana þegar verkið var í vinnslu án þess svo mikið sem lyfta pensli.

Aðgerðaleysið gramdist príornum í klaustrinu, sem kvartaði undan da Vinci.

Á myndlistarmaðurinn að hafa sagst vera í vandræðum með að finna rétta andlitið á Júdas og hótað því að ef príorinn hefði sig ekki hægan notaði hann andlitið á honum sem innblástur.

Ef þú mættir velja ...GETTY

Ef þú mættir velja einhvern til að krossfesta, hver yrði fyrir valinu?

Gleðilegt páskafrí!


Tengdar fréttir

Sjálfskipaður Yoda okkar Íslendinga hefur rangt fyrir sér

Eitt má Donald Trump Bandaríkjaforseti eiga: Hann er góður landafræðikennari. Þótt gáfulegir stjórnmálaskýrendur tali eins og þeir hafi fæðst með vitneskjuna um hvar Hormús-sund er að finna á korti, höfðu fæst okkar heyrt af þessari lífæð nútímans fyrr en í síðasta mánuði – þar með talinn Trump sjálfur, af atburðum síðustu vikna að dæma.

Gagnrýni: Veruleikinn fær falleinkunn. Stóð upp í hléi

Ef veruleikinn hefði hlotið tilnefningu til Óskarsverðlaunanna, sem fram fóru á sunnudaginn, hefðu aðstandendur hans komið tómhentir heim. Klén tragikómedía um stríð, veðrið og verðbólgu vekur fáar aðrar tilfinningar en löngun til að labba út í hléi. Hvernig nokkrum datt í hug að leggjast í gerð verksins sætir furðu.

Þegar fólk var skotmarkið í safaríferð

Fyrrverandi sjónvarpsmaðurinn, Pete Hegseth, sem nú fer með hlutverk varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, tjáði sig glaðhlakkalegur á fréttamannafundi í síðustu viku um stríðsaðgerðir Bandaríkjanna og Ísraels gegn Íran. Sagði hann Írani búna að vera – eða eins og upptendraður unglingur sem spilaði tölvuleiki með vinum sínum í stofunni hjá mömmu sinni myndi orða það eftir aðeins of margar dósir af Pepsi Max: Hann sagði að þeir væru „toast“.

Er Jón Gnarr búinn að horfa aðeins of oft á Pretty Woman?

Árið 2002 heyrði Andrew Norfolk, blaðamaður málefna Norður-Englands hjá The Times, orðróm um skipulagða misnotkun á ungum hvítum stúlkum af hálfu karlmanna af pakistönskum uppruna. Kvað þingkona í Yorkshire sjö mæður af svæðinu hafa sagt menn sitja um dætur þeirra, misnota þær kynferðislega og láta þær ganga á milli manna sem þeim var sagt að sofa hjá.

Klósettferðin sem getur bjargað þér frá því að brenna út í vinnunni

Að skrifa þessa pistla er stundum eins og að vera með harðlífi. Sama hvað ég rembist við að kreista fram hugmyndir koma þær ekki. Það verður því að teljast gráglettið, að fátt losar hraðar um ritstífluna en að þurfa að standa upp til að fara á klósettið.

Í sárum yfir brandara um hrossatyppi

Sagt er að hláturinn lengi lífið. Skotinn Michael Mcfeat mun hins vegar hugsa sig tvisvar um áður en hann segir brandara aftur.

Menn sem murka lífið úr öndunum á Tjörninni

Samkvæmt samfélagsmiðlanotanda í Garðabæ þorir fólk varla lengur út af heimilum sínum í London vegna yfirgangs glæpalýðs og innflytjenda. Ég leit af Twitter og út um gluggann heima hjá mér þar sem ég bý í London. Allt virtist með kyrrum kjörum. En hvað var þetta? Gat verið að þarna færi maður sem murkaði lífið úr svani og lagði hann sér svo til munns?

Drengurinn sem dó

Hinn 24. maí árið 1917 fæddist íslenskum foreldrum drengur. Á ljósmyndum blasir fegurð hans við; ómótstæðilegar bollukinnar; stór augu sem stara af varfærni eins og inn í óskrifaða framtíð; litlir fingur sem læsast um bangsa. Hefði barnið fæðst í dag deildu foreldrarnir eflaust myndunum á Facebook með blíðuhótum á borð við „gullmoli“ og uppskæru læk og heillaóskir.

Þess vegna ættir þú frekar að fara í partí en borða brokkolí

Klukkan var að ganga ellefu. Eins og metnaðarfullum sjálfstætt starfandi blaðamanni er lagið sat ég enn á náttfötunum í sófanum heima hjá mér og horfði á það besta sem sjónvarpsútsendingar um hábjartan dag hafa upp á að bjóða.

Ný skólína frá Nike: Air Inga – „just do it“

Ég ætlaði að byrja árið á jákvæðu nótunum. Staðreyndin er hins vegar sú að það borgar mér enginn laun fyrir að breiða út gleði. Eitt er það sem ég þoli verr við janúar en veðrið og Vísa-reikninginn. Ég hef skömm á öllum dálksentímetrum dagblaðanna sem fara undir völvu ársins.

Hvert er burðarþol íslensks almennings fyrir kjaftæði?

Í fyrra fóru fram sveitarstjórnarkosningar í Bretlandi. Við upphaf talningar blasti við að Íhaldsflokkurinn hafði beðið afhroð. Það aftraði þó ekki flokksjálkum frá því að halda öðru fram í kosningasjónvarpinu.

Erum við of heimsk til að nota gervigreind?

Ég var á leiðinni í göngutúr í vikunni og vantaði hlaðvarp til að hlusta á. Ég bað ChatGPT um meðmæli. Gervigreindarforritið var ekki lengi að grafa upp hlekki á fimm áhugaverð hlaðvörp um efni sem ég hafði tilgreint, birta um þau útdrátt og tilvitnanir í viðmælendur.

Er þetta hinn nýi hvíti karlmaður?

Árið 2015 greindi breski rithöfundurinn Matt Haig aðdáendum frá umfjöllunarefni næstu bókar sinnar á Twitter. Viðbrögðin urðu önnur en hann ætlaði.

Lögmálið um lítil typpi

Djúpvitur kona gaf mér eftirfarandi heilræði í kjölfar þess að ég greindi henni frá tilvistarlegri áskorun sem ég stend frammi fyrir: „Þú átt ekki að vera að elta lítil typpi,“ sagði hún.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.