Þau sem borga ekki Silja Sóley Birgisdóttir skrifar 10. apríl 2026 07:46 Það grasserar óréttlæti í íslenska skattkerfinu. Bilið milli hinna ríku og almennings breikkar ár eftir ár. Höfuðástæðan er sú að síðustu 30 ár hefur skattkerfið mótast af hagsmunum þeirra sem eiga mestu peningana í íslensku samfélagi. Þetta sést hvergi skýrar en í útsvari einstaklinga til sveitarfélaga sinna. Almenningur borgar 15% af launum sínum í útsvar til að halda uppi þjónustu nærsamfélagsins. Útsvar er m.a. tekið af launatekjum, elli- og örorkulífeyri, fæðingarorlofsgreiðslum og atvinnuleysisbótum en ekkert útsvar er tekið af fjármagnstekjum - helstu tekjulind þeirra sem eiga mest hér á landi. Lægsta skattbyrðin Fjármagnstekjuskattur á Íslandi er aðeins 22%, sá lægsti á öllum Norðurlöndunum. Skattbyrðin er því lægst meðal þeirra ríkustu þar sem um 70% fjármagnstekna liggja hjá efstu tekjutíundinni. Ef útsvar væri lagt á fjármagnstekjur myndi skattbyrði aukast í 37% sem er sambærilegt við skattlagningu þorra almennings en þeir sem eru með mánaðarlaun á milli 498.000 - 1.398.000 kr borga 38% í tekjuskatt. Þetta er sjálfsagt sanngirnis- og réttlætismál. Mikil umræða hefur átt sér stað um launahækkanir í tengslum við vaxandi verðbólgu en varla hefur verið minnst á hækkanir fjármagnstekna. Fjármagnstekjur hafa nefnilega aukist mun meira en launatekjur en frá 2020 til 2024 hækkuðu fjármagnstekjur um 172% á meðan launatekjur hækkuðu um 51%. Tekjurnar sem sveitarfélögin tapa Heimildin tók saman hátekjulista sem nær yfir tekjuhæsta 1% Íslendinga, eða samtals 3.542 einstaklinga. Ef við tökum aðeins þau tíu tekjuhæstu í Reykjavík árið 2024 voru þau samanlagt með 20,5 milljarða í tekjur en greiddu aðeins 68 milljónir í útsvar eða 0,003% af sínum heildartekjum. Þetta gífurlega lága hlutfall skýrist af því langstærsti hluti þeirra tekna eru fjármagnstekjur og ekkert útsvar er tekið af þeim. Ef þau tekjuhæstu hefðu borgað útsvar af sínum fjármagnstekjum hefðu 3 milljarðar til viðbótar runnið í sameiginlegan sjóð okkar allra og skattbyrði þessara einstaklinga hefði verið hlutfallslega jöfn við almennt launafólk. Til að setja þetta í samhengi þá höfðu þau tíu tekjuhæstu tekjur á við 2254 einstaklinga á meðallaunum, sem voru 758.000 kr á mánuði. Væri óeðlilegt að þessi hópur greiddi hlutfallslega jafn mikið og við hin? Ef útsvar væri lagt á fjármagnstekjur til jafns við launatekjur hefðu 52 milljarðar runnið til sveitarfélaganna árið 2023. Af þessum tekjustofni hefðu um 18 milljarðar farið til Reykjavíkurborgar. Ýmislegt gagnlegt mætti gera við þá upphæð í þágu borgarbúa. Hin raunverulegu breiðu bök Þegar talað er um að hækka skattlagningu á þau allra ríkustu vilja sumir afvegaleiða umræðuna. Reynt er að mála upp þá skökku mynd að verið sé að beina spjótum fyrst og fremst að tekjuháu launafólki. Þegar kemur að launatekjum erum við með þrepaskipta skattlagningu á Íslandi þannig að tekjuhæsta launafólkið er nú þegar að borga sinn hluta til nærsamfélagsins. Hér er hins vegar verið að ræða um þann tiltölulega fámennan hóp einstaklinga sem hafa svimandi háar fjármagnstekjur og leggja, ólíkt tekjuháu launafólki, ekki sitt af mörkum til nærsamfélagsins. Þetta eru hin raunverulegu breiðu bök sem við ræðum um hér. Reykjavíkurborg er stærsta og fjölmennasta sveitarfélag landsins. Að mati Sósíalista ætti Reykjavík að fara fram með þá skýru kröfu til Alþingis um að útsvar sé tekið af fjármagnstekjum - það er sjálfsögð og réttlát krafa sem mun nýtast samfélaginu öllu svo um munar. Höfundur er oddviti Sósíalistaflokksins í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Silja Sóley Birgisdóttir Mest lesið Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir Skoðun Til kall Drífa Snædal Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson Skoðun Skoðun Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason skrifar Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Til kall Drífa Snædal skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Atlaga að fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason skrifar Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson Skoðun
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar
Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson Skoðun