Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Jón Þór Stefánsson skrifar 19. apríl 2026 22:31 Landsréttur féllst á að maðurinn myndi sæta gæsluvarðhaldi. Vísir/Vilhelm Einn og sami maðurinn hefur verið ákærður af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu fyrir 59 mismunandi brot og þar að auki liggur undir rökstuddum grun í átján öðrum málum.
Þetta kemur fram í úrskurði Héraðdóms Reykjaness, sem Landsréttur staðfesti, þar sem fallist var á að maðurinn myndi sæta gæsluvarðhaldi til loka mánaðar. Flest brotanna sem maðurinn er ákærður og/eða grunaður um eru vegna umferðarlagabrota, eignaspjalla eða þjófnaðarmála, en þá er hann einnig grunaður um alvarlegri brot. Gekk berserksgang og hafði með sér milljóna þýfi Hann er til dæmis ákærður fyrir rán og nytjastuld sem hann á að hafa framið ásamt tveimur öðrum í október 2022. Í ákæru segir að maðurinn hafi brotist inn á heimili þess sem varð fyrir ráninu með því að sparka upp hurðinni að íbúðinni. Síðan hafi hann lamið húsráðandann allt að fimm sinnum með krepptum hnefa í andlitið, með þeim afleiðingum að hann hlaut ýmsa áverka. Þar á eftir hafi maðurinn hótað húsráðandanum og fjölskyldu hans lífláti og sagst ætla að kveikja í hundi hans. Síðan hafi hann hent síma húsráðandans í jörðina og þar með brotið hann. Svo hafi maðurinn, ásamt hinum ræningjunum, tekið ýmsa muni af heimilinu: tölvu, bíllykla, fjórtán karata gullhálsmen, gullkeðju, gullarmband, tvö pör af eyrnarlokkum með hálfs karats demöntum, stálkeðju, Apple Watch, þrjú Airpods pro-heyrnartól, reiðufé og ýmsa aðra muni, sem munu hafa verið bornir inn í bíl húsráðandans og síðan ekið með þá burt. Samtals var þetta þýfi metið á tæplega 5,5 milljónir króna. Ógeðfelldar hótanir Um miðjan febrúar á þessu ári er maðurinn talinn hafa brotist inn á heimili móður sinnar og hótað henni lífláti, en fram kemur að hann neiti sök. Þá er maðurinn sagður hafa hótað lögreglumanni lífláti og sagst ætla að nauðga barni hans. Hann mun einnig hafa sagst hafa „óþarflega mikil löngun til þess að sparka í andlitið á honum.“ Kastaði konu til og tók hálstaki Maðurinn er einnig grunaður um tvær líkamsárásir. Annars vegar er hann sagður hafa rifið mann í jörðina, sem fyrir vikið er talinn hafa handleggsbrotnað. Hins vegar er hann grunaður um sérstaklega hættulega líkamsárás í lok marsmánaðar þar sem hann á að hafa kastað konu til og tekið hana hálstaki. Hann hefur neitað sök í því máli.
Dómsmál Lögreglumál Mest lesið Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Vance biðlar til ungra reiðra manna Erlent Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Fleiri fréttir Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Sjá meira