Viðskipti erlent

Tim Cook stígur til hliðar

Samúel Karl Ólason skrifar
Fimmtán ár eru liðin frá því Tim Cook tók við keflinu af hinum víðfræga Steve Jobs.
Fimmtán ár eru liðin frá því Tim Cook tók við keflinu af hinum víðfræga Steve Jobs. Getty/Kimberly White, Corbis

Tim Cook, forstjóri tæknirisans Apple, mun stíga til hliðar úr starfi sínu seinna á þessu ári og þess í stað verða stjórnarformaður. Cook hefur stjórnað Apple frá því hann tók við starfinu af Steve Jobs, skömmu fyrir andlát hans, árið 2011. 

John Ternus, einn deildarstjóra fyrirtækisins, mun taka við sem forstjóri og einnig taka sæti í stjórn fyrirtækisins. Breytingarnar munu eiga sér stað þann 1. september næstkomandi.

Apple er eitt verðmætasta fyrirtæki heims en frá því Cook tók við sem forstjóri, fyrir um fimmtán árum síðan, hefur virði Apple aukist um einhver 2.400 prósent, samkvæmt frétt CNBC, en við lok markaða í dag var það metið á rétt rúma fjóra billjóna dala. Það samsvarar um 487 billjónum króna (tólf núll).

Til samanburðar má benda á það að landsframleiðsla Íslands árið 2025 var tæplega fimm billjónir króna.

Cook er sagður hafa hagnast um 74,6 milljónir dala í fyrra, þar af um þrjár milljónir í laun og fjölda milljóna í hagnað af hlutabréfum. Forbes metur virði hans á tvo milljarða dala, um 244 milljarða króna.

Í yfirlýsingu segir Cook að það hafi verið gífurleg forréttindi að stjórna fyrirtækinu, sem hann elski mjög mikið. Hann segist þakklátur fyrir að hafa fengið að starfa með svo frábæru fólki í gegnum árin og segir þar að auki að Ternus sé rétti maðurinn til að taka við keflinu.

Ternus segist sömuleiðis þakklátur fyrir tækifærið til að stjórna Apple, fyrirtæki sem hann hafi unnið hjá nánast allan sinn feril. Hann segist heppinn að hafa haft bæði Jobs og Cook sem lærifeður og segist fullur jákvæðni um framtíðina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×