Innlent

Vendingar í borginni og tón­leikar í heima­húsum

Sunna Sæmundsdóttir skrifar
Telma Tómasson les kvöldfréttir í kvöld.
Telma Tómasson les kvöldfréttir í kvöld.

Breytingar eru á fylgi flokkanna í Reykjavíkurborg í nýrri könnun Maskínu. Við sýnum glænýja könnun í kvöldfréttum og ræðum við stjórnmálafræðinginn Ólaf Þ. Harðarson um stöðuna sem er að teiknast upp.

Fjórir sitja nú í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar á ætluðum innflutningi á fjórtán lítrum af amfetamínbasa með gámaflutningaskipinu Dettifossi. Við förum yfir málið í kvöldfréttum. Þá verður rætt við þingmenn og ráðherra að loknum hitafundi um ESB sem fór fram í utanríkismálanefnd í dag og við kíkjum á Andrésar Andar leikana á Akureyri.

Klippa: Kvöldfréttir 24. apríl 2026

Auk þess verðum við í beinni útsendingu frá Vestmannaeyjum þar sem tónlistarhátíðin Hljómey fer fram í kvöld en þar munu listamenn koma fram í heimahúsum íbúa. 

Við verðum einnig í beinni útsendingu frá tískusýningu fatahönnuða framtíðarinnar. Nemendur sem eru að útskrifast úr fatahönnun í Listaháskóla Íslands sýna verk sín í Hörpu í kvöld. Í Sportinu hittum við síðan Katrínu Ásbjörnsdóttur sem verður í nýju hlutverki í kringum Bestu deild kvenna í fótbolta í sumar.

Þetta og margt fleira á samtengdum rásum Bylgjunnar, Sýnar og Vísis klukkan 18:30.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×