Ellefu mörk í Mosfellsbænum Valur Páll Eiríksson skrifar 24. apríl 2026 21:21 Stefán Þór Pálsson skoraði tvö marka ÍR í kvöld. Facebook/ÍR Lengjudeild karla hófst með látum í Mosfellsbæ í kvöld. ÍR vann ótrúlegan 7-4 sigur á Aftureldingu.
ÍR-ingar mættu ákveðnir til leiks í kvöld gegn Aftureldingarliði sem féll úr Bestu deildinni síðasta haust og ætlar sér beinustu leið aftur upp. Stefán Þór Pálsson, Orri Bjarkason og Óliver Andri Einarsson voru allir komnir á blað eftir 18 mínútna leik og staðan 3-0 fyrir gestina úr Breiðholti. Joacim Holtan minnkaði muninn skömmu eftir það en Stefán Þór skoraði sitt annað mark og staðan 4-1 í hléi. Í síðari hálfleiknum skoruðu liðin þrjú mörk hvort. Emil Nói Sigurhjartarson skoraði fimmta mark ÍR á 48. mínútu en fimm mínútum síðar var staðan 5-3 vegna marka Arons Elí Sævarssonar og Óðins Bjarkasonar fyrir Aftureldingu. Nóg var eftir og vonarneisti kviknaði hjá Mosfellingum. Sá dofnaði hins vegar mjög skömmu síðar þegar Emil Nói skoraði aftur á 57. mínútu. Jón Arnar Sigurðsson skoraði svo sjöunda mark ÍR sex mínútum síðar. Mark Elmars Kára Cogic á 75. mínútu reyndist það síðasta í leiknum og honum lauk 7-4 fyrir ÍR. Fylkir vann einnig þriggja marka sigur í fyrsta leik Árbæinga. Sá vannst á Ægi í Árbænum þar sem Eyþór Aron Wöhler, Máni Austmann Hilmarsson og Benedikt Daríus Garðarsson skoruðu mörk Fylkismanna. Kári Sigfússon lagði upp öll þrjú mörk Fylkismanna. Upplýsingar um leikina tvo eru fengnar af Fótbolti.net.
Lengjudeild karla ÍR Fylkir Afturelding Ægir Mest lesið Verðlauna stuðningsmenn sína fyrir að nota ekki símana Fótbolti Knattspyrnusamband Asíu tekur U-beygju í málum Infantino Fótbolti Bayern gefur út yfirlýsingu vegna veikinda Kompany Fótbolti Brautryðjendur heiðraðir í Vesturbænum Körfubolti Öll börn eigi að fá að vera hluti af liðinu Sport Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna – Viktor meiddist illa Körfubolti FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Íslenski boltinn Af hverju fékk Veigar Páll eins árs dóm og hvort fellur KA eða Þór? Sport Kompany hneig niður og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Stórleiknum frestað vegna mótmælanna Fótbolti Fleiri fréttir FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verðlaunin „Þetta er bara ólýsanlegt” „Fólk var alveg að efast en ég vissi alltaf að þetta myndi detta” Gylfi: „Við erum ódýrasta liðið í þessari deild“ Bríet Fjóla: „Sjálfstraustið er komið til baka“ Uppgjörið: Þróttur-Grind/Njarðv. 3-2 | Markaveisla í seinni Uppgjörið: ÍBV - Stjarnan 2-0 | Sannfærandi sigur tryggði ÍBV bronsið Uppgjörið: Breiðablik-FH 6-2 | Ása með fimm mörk í meistarasýningu Blika Matthías í stað Viktors við hlið Sölva „Förum inn í daginn til þess að njóta“ Höttur slítur samstarfi og FHL heyrir sögunni til FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Svona missti Aron markið sögulega Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Framlengir í Vesturbænum „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Titillinn undir: „Farið illa með okkur í sumar“ Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu Sjá meira