Viðskipti erlent

Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri

Freyja Þórisdóttir skrifar
Fjöldi ferðalanga sitja strand eftir að flugfélagið sendi frá sér tilkynninguna í morgun.
Fjöldi ferðalanga sitja strand eftir að flugfélagið sendi frá sér tilkynninguna í morgun. Getty

Bandaríska lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hefur hætt allri starfsemi og fellt öll skipulögð flug niður frá og með í dag, laugardaginn 2. maí. Í tilkynningu frá félaginu segir að hækkun olíuverðs og misheppnuð tilraun fyrirtækisins til að endurskipuleggja reksturinn hafi spilað inn í niðurlagninguna.

Lágfargjaldaferðalangar eru að öllum líkindum í óðaönn eftir að fréttirnar breiddust út en félagið, sem var á sínu 34. starfsári, bauð upp á flug innan Bandaríkjanna sem og til um fimmtíu alþjóðlegra áfangastaða, svo sem San Jósé í Kosta Ríka og Cartagena í Kólumbíu.

„Það er með miklum trega sem Spirit Airlines hefur hafið niðurlagningu á alþjóðlegri starfsemi sinni, sem tekur gildi þegar í stað,“ birti flugfélagið á samfélagsmiðlum sínum í nótt. „Öllu flugi hefur verið aflýst og þjónustuver er ekki lengur tiltækt.“

Síðustu flug félagsins fóru í loftið í gærkvöldi, föstudaginn 1. maí, en í frétt sem birt var á The Washington Post segir að fjöldi annarra flugfélaga hafi þegar auglýst svokölluð „björgunarfargjöld“ eða sett þak á verð fyrir viðskiptavini hins gjaldþrota flugfélags.

Sumir sitja uppi með ekki neitt

Í tilkynningu Spirit segir að endurgreiðslur fyrir öll aflýst flug sem keypt voru á vefsvæði þess með kredit- eða debetkorti verði unnar sjálfkrafa. Flugfélagið sagði að viðskiptavinir sem bókuðu flug í gegnum ferðaskrifstofu ættu að hafa samband beint við þann þriðja aðila til að biðja um endurgreiðslu.

Fyrir þá sem keyptu miða á annan hátt er staðan óljósari. Í tilkynningunni segir að bætur til viðskiptavina sem notuðu aðferðir eins og inneignarmiða, fluginneign eða vildarpunkta „verði ákveðnar síðar í gjaldþrotaskiptaferlinu“.

Flugfélagið sagðist ekki geta endurgreitt farþegum „fyrir tilfallandi ferðakostnað sem tengist aflýstum ferðum“. Sömuleiðis er ekki lengur hægt að innleysa punkta né færa þá yfir til annars flugfélags eða vildarkerfis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×