„Leið eins og við værum búnir að vinna þennan leik svona fimm sinnum“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 4. maí 2026 22:19 Daníel Freyr Andrésson reyndist hetja FH-inga í kvöld. Vísir/Anton Brink Daníel Freyr Andrésson reyndist hetja FH-inga þegar hann varði víti á lokasekúndunum í tvíframlengdum leik FH og Vals í úrslitaeinvígi Olís-deildar karla í handbolta í kvöld.
FH-ingar voru með bakið upp við vegg fyrir leik kvöldsins og þurftu sigur til að tryggja sér oddaleik um Íslandsmeistaratitilinn. Þrátt fyrir að hafa verið yfir nánast allan leikinn þurftu FH-ingar þó tvær framlengingar til að knýja fram eins marks sigur, 37-36. „Tilfinningin er náttúrulega bara rosalega góð. Mér leið eins og við værum búnir að vinna þennan leik svona fimm sinnum, en við náðum alltaf að missa það niður,“ sagði Daníel í leikslok. „En það gerir það bara sætara að hafa klárað þetta svona og bara geggjað að fá oddaleik á fimmtudaginn,“ bætti Daníel við. Þegar allt er talið saman þurfu liðin að spila áttatíu mínútna langan handboltaleik í kvöld og af þeim voru FH-ingar í forystu í um 75 mínútur. Daníel segir það mikinn karakter að liðið hafi alltaf haldið áfram, þrátt fyrir að missa svo gott sem unnin leik niður í framlengingar. „Það er rosalega sterkt. Það hefði verið auðvelt að brotna í eitthvað af þessum skiptum, en við sýndum góðan karakter og náðum að klára þetta.“ Eins og áður segir reyndist Daníel hetja FH-inga þegar hann varði víti á lokasekúndunum. Hann hefði hins vegar auðveldlega getað reynst skúrkurinn, því það var hann sem fékk dæmt á sig vítið. Hann segist þó ekki hafa verið að reyna að stela fyrirsögnum með því að fá á sig dæmt víti og verja það síðan. „Nei, alls ekki. Ég hef bara aldrei séð þessa stöðu koma upp í handbolta áður. Ég var inni í teig og það er skrýtið að ég fari ekki í boltann. Ég veit bara ekki hvernig reglurnar eru með þetta. En jú, þetta gerir sigurinn kannski bara ennþá sætari.“ FH og Valur þurfa nú að mætast í oddaleik um Íslandsmeistaratitilinn að Hlíðarenda næstkomandi fimmtudag. Daníel segir engan leikmann hafa tíma til að finna fyrir þreytu. „Það er enginn að pæla í þreytu í svona úrslitaeinvígi í oddaleik. Það er skemmtilegt að hafa stutt á milli og nú er bara að fylla Valsheimilið,“ sagði Daníel að lokum.
Olís-deild karla FH Valur Mest lesið Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn PSG - Arsenal | Bikarinn sem beðið hefur verið eftir Fótbolti Fleiri fréttir Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Rúnar sigraði á móti sínum gömlu íslensku lærisveinum Donni og félagar komnir í úrslit Allt jafnt í úrslitaeinvíginu Einar Rafn snýr aftur í Fjörðinn Haukur mikilvægari en Gidsel Haukur fær nýjan samning eftir ótrúlega leiktíð Sjá meira