Reykjanesbrautin - við leysum hnútinn Stefán Már Gunnlaugsson skrifar 5. maí 2026 11:18 Hafnfirðingar þekkja vel af eigin raun umferðarhnútana á Reykjanesbrautinni einkum núna þegar Flóttamannavegurinn er lokaður tímabundið. Þetta veldur ekki aðeins löngum töfum, heldur eykst umferðarálag um allan bæ, einkum í miðbænum og Setberginu. Á 25 árum hefur umferðarþunginn meira en tvöfaldast á Reykjanesbrautinni og komið er í óefni, en ekkert hefur verið gert til að takast á við ástandið og áfram er gert ráð fyrir aukningu umferðar næstu ár. Hvað viljum við? Samfylkingin í Hafnarfirði leggur til skýrar og raunhæfar aðgerðir sem miða að því að tryggja öryggi og flæði umferðar: Fara í nauðsynlegar samgönguúrbætur á Reykjanesbraut frá N1 hringtorgi í átt að Kaplakrika og fara í endurbætur á Flóttamannavegi. Endurskoðun samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins með það að markmiði að skoða varanlegar lausnir, þar á meðal jarðgöng undir Setbergshamar. Efla almenningssamgöngur með Borgarlínu og öflugu innanbæjarkerfi strætó. Tillögur okkar á kjörtímabilinu Þessar tillögur eru í samræmi við málflutning okkar i Samfylkingunni á kjörtímabilinu, en við höfum lagt fram fjölmargar tillögur um lausn samgönguvandans á Reykjanesbrautinni, m.a. að hefja viðræður við Vegagerðina um flýtiframkvæmdir, styrkja Flóttamannaveginn og flýta Borgarlínu. Samkvæmt samgöngusáttmálanum er gert ráð fyrir seinkun framkvæmda og að þær hefjist ekki fyrr en árið 2030 og ljúki árið 2033. Allar okkar tillögur voru felldar af meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks sem hafa sofið fast á verðinum árum saman. Það er þó fagnaðarefni að ríkisstjórnin undir forystu jafnaðarfólks hefur tekið ákvörðun um að Flóttamannavegurinn er ekki lengur skilavegur, heldur verður áfram umsjá Vegagerðarinnar og gert er ráð fyrir fjármagni til vegarins í samgönguáætlun. Við erum tilbúin Það er sannarlega verk að vinna í samgöngumálum í Hafnarfirði. Við í Samfylkingunni erum tilbúin að ganga í verkin og munum setja samgöngumál í forgang þegar við tökum við bænum eftir kosningarnar 16. maí næstkomandi. Höfundur er bæjarfulltrúi og skipar 5. sæti á lista Samfylkingarinnar í Hafnarfirði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Goðarnir fóru aldrei – þeir skiptu bara um nafn Ragnar Thorarensen Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen Skoðun Skoðun Skoðun Sammála – leggjum þjóðinni ekki orð í munn Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Goðarnir fóru aldrei – þeir skiptu bara um nafn Ragnar Thorarensen skrifar Skoðun Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Spírallinn Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir skrifar Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir skrifar Skoðun Netöryggi snýst líka um að þora að segja frá Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen skrifar Skoðun Getur maður verið rasisti án þess að gera sér grein fyrir því? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia skrifar Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Sjá meira
Hafnfirðingar þekkja vel af eigin raun umferðarhnútana á Reykjanesbrautinni einkum núna þegar Flóttamannavegurinn er lokaður tímabundið. Þetta veldur ekki aðeins löngum töfum, heldur eykst umferðarálag um allan bæ, einkum í miðbænum og Setberginu. Á 25 árum hefur umferðarþunginn meira en tvöfaldast á Reykjanesbrautinni og komið er í óefni, en ekkert hefur verið gert til að takast á við ástandið og áfram er gert ráð fyrir aukningu umferðar næstu ár. Hvað viljum við? Samfylkingin í Hafnarfirði leggur til skýrar og raunhæfar aðgerðir sem miða að því að tryggja öryggi og flæði umferðar: Fara í nauðsynlegar samgönguúrbætur á Reykjanesbraut frá N1 hringtorgi í átt að Kaplakrika og fara í endurbætur á Flóttamannavegi. Endurskoðun samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins með það að markmiði að skoða varanlegar lausnir, þar á meðal jarðgöng undir Setbergshamar. Efla almenningssamgöngur með Borgarlínu og öflugu innanbæjarkerfi strætó. Tillögur okkar á kjörtímabilinu Þessar tillögur eru í samræmi við málflutning okkar i Samfylkingunni á kjörtímabilinu, en við höfum lagt fram fjölmargar tillögur um lausn samgönguvandans á Reykjanesbrautinni, m.a. að hefja viðræður við Vegagerðina um flýtiframkvæmdir, styrkja Flóttamannaveginn og flýta Borgarlínu. Samkvæmt samgöngusáttmálanum er gert ráð fyrir seinkun framkvæmda og að þær hefjist ekki fyrr en árið 2030 og ljúki árið 2033. Allar okkar tillögur voru felldar af meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks sem hafa sofið fast á verðinum árum saman. Það er þó fagnaðarefni að ríkisstjórnin undir forystu jafnaðarfólks hefur tekið ákvörðun um að Flóttamannavegurinn er ekki lengur skilavegur, heldur verður áfram umsjá Vegagerðarinnar og gert er ráð fyrir fjármagni til vegarins í samgönguáætlun. Við erum tilbúin Það er sannarlega verk að vinna í samgöngumálum í Hafnarfirði. Við í Samfylkingunni erum tilbúin að ganga í verkin og munum setja samgöngumál í forgang þegar við tökum við bænum eftir kosningarnar 16. maí næstkomandi. Höfundur er bæjarfulltrúi og skipar 5. sæti á lista Samfylkingarinnar í Hafnarfirði.
Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar