Titillinn undir: „Bæði lið hafa spilað feykilega vel“ Valur Páll Eiríksson skrifar 7. maí 2026 11:32 Ágúst Jóhannsson segir mikilvægt að stilla spennustigið rétt. vísir/Anton „Við erum bara spenntir. Við erum búnir að hvíla okkur vel síðustu tvo daga og fara ágætlega yfir okkar leik. Við ætlum að mæta tilbúnir til leiks í kvöld á okkar heimavelli,“ segir Ágúst Jóhannsson, þjálfari karlaliðs Vals í handbolta, fyrir hreinan úrslitaleik hans manna við FH um Íslandsmeistartitilinn í kvöld.
Valur og FH hafa skipst á sigrum í úrslitaeinvíginu og bæði unnið sína heimaleiki, tvo hvert. Það er því komið að oddaleik um titilinn í kvöld. Því fylgja væntanlega taugar? „Þetta er aðallega tilhlökkun. En auðvitað er spenna í mannskapnum, annað væri mjög óeðlilegt. Þetta er auðvitað stórleikur og mikið húllumhæ í kringum leikinn. Við reynum að stilla spennuna rétt, orkuna rétt. Mætum fullir tilhlökkunar til leiks og ætlum að gera vel,“ segir Ágúst. FH vann síðasta leik liðanna í Kaplakrika á mánudagskvöldið var. Sá leikur var mikil skemmtun og þurfti að tvíframlengja hann til að knýja fram sigurvegara. Valur hafði verið í eltingaleik allan leikinn og komst ekki yfir í fyrsta sinn fyrr en í framlengingunni. Var erfitt fyrir Valsmenn að hrista það af sér? „Menn voru fúlir þarna um kvöldið en svo höfum við nýtt tímann til að stilla okkur aðeins betur af og fínpússa lítil atriði. Leikurinn var gríðarlega vel leikinn af báðum liðum, mér fannst þetta frábær handboltaleikur og ég á bara von á því að við mætum vel tilbúnir í leikinn í kvöld og eflaust FH-ingarnir líka. Ég held að þetta verði járn í járn eins og þetta er búið að vera. Bæði lið hafa spilað feykilega vel og vonandi náum við að lenda þessu yfir línuna okkar megin í kvöld,“ segir Ágúst. En hvar vinnst leikur kvöldsins? „Það er voða auðvelt og einfalt að segja að þetta ráðist á vörn og markvörslu sem er alltaf mjög stór faktor í þessu. Við þurfum að vera aðeins betri varnarlega í 60 mínútur. Ef við náum upp okkar vörn og fáum Bjögga í gang er ég vongóður um að við náum að landa þessu.“ Leikur Vals og FH hefst klukkan 19:30 í kvöld að Hlíðarenda. Honum verður lýst beint á Vísi.
Valur Olís-deild karla FH Mest lesið Gunnlaugur Árni á U.S. Open Golf Gunnlaugur fékk ekki að klára hringinn en endaði á fugli Golf Freyr varð dapur: „Fáir en valdamiklir menn sem fannst þetta góð hugmynd“ Fótbolti Rekin fyrir falsfrétt um að pabbi Messi væri dáinn Fótbolti Birtir myndband af því þegar fyrirliði KR brotnaði á báðum Íslenski boltinn Cristiano Ronaldo eftir Kongó-klúðrið: „Það vantaði ekkert upp á“ Fótbolti Hakimi dreginn fyrir dóm: „Aldrei orðið mál ef ég væri ekki frægur“ Fótbolti Reyndur lýsandi ruglaðist á liðum á HM og var rekinn Fótbolti Sjáðu innslagið um Gunnlaug Árna í útsendingu US Open Golf Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Handbolti Fleiri fréttir Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Sjá meira