Grunnur að bjartri framtíð Sigrún Bjarnadóttir skrifar 7. maí 2026 21:33 Mikil umræða hefur verið um menntamál að undan förnu og margt hefur þar verið ritað og sagt. Þó þar hafi komið fram eitt og annað sem er á misskilningi byggt er umræða alltaf til góðs. Við erum svo lánssöm sem vinnum að skólamálum í Kópavogi að skólarnir hafa notið sjálfstæðis. Menntasvið og forysta bæjarfélagsins hefur staðið þétt við bakið á okkur starfsmönnum í daglegu amstri og þeim áskorunum sem við mætum. Skólarnir njóta ríkrar og mikilvægrar sérfræðingsþjónustu af ýmsu tagi frá menntasviði bæjarins. Jafnframt höfum við búið vel að hæfu starfsfólki, þ.e. kennurum og öðru fagfólki sem leggur sig fram í störfum sínum alla daga með hagsmuni barnanna að leiðarljósi. Því hefur starfið í menntamálum í Kópavogi verið áhugavert, ögrandi og gefandi. Forysta Kópavogs í þróun og breytingu á leiksskólastiginu hefur vakið verðskuldaða athygli enda hafa þær skilað tilsettum árangri. Þar var haft víðtækt samráð við alla hagaðila sem skilaði góðri niðurstöðu, hefur aukið öryggi og vellíðan barna ásamt því að bæta starfsaðstæður í leikskólum Kópavogs. Nú geta öll 12 mánaða börn fengið dagvistun í Kópavogi og er það vel. Starfsmenn leikskólanna og stjórnendur hafa opinberlega fagnað þessum árangri. Það er því ekki aðeins gott að búa í Kópavogi, það er einnig mjög gott að starfa í Kópavogi. Grunnskólinn næst á dagskrá Með víðtæku samráði við grunnskólasamfélagið í Kópavogi þ.e. foreldra, nemendur, kennara og annað fagfólk skólanna voru sett af stað sextán umbótaverkefni undir nafninu „Framtíðin í fyrsta sæti“. Markmiðið er að efla gæði náms og kennslu í samráði við skólasamfélagið. Jafnframt að koma til móts við ákall um betri yfirsýn yfir námsstöðu og aukin gæði í skólastarfi. Einnig að auka vellíðan og öryggi í skólum Kópavogs. Við í Sjálfstæðisflokknum í Kópavogi ætlum að leggja enn meiri áherslu á farsælli framtíð barna og ungmenna með markvissum aðgerðum í skóla og frístundastarfi. Markmið okkar er skýrt, að skólar Kópavogs séu ávallt í fremstu röð og leiðandi í umbótum, þar sem velferð, þekking og metnaður fer saman. Við ætlum að efla fagmennsku í skólum bæjarins með því að fjölga faglærðum kennurum. Það gerum við meðal annars með því að styðja leiðbeinendur til náms og tryggja að starfsfólk fái tækifæri til að þróast í starfi. Um leið viljum við setja skýrari mælikvarða á námsárangur til að tryggja gagnsæi og stöðugar umbætur. Í því samhengi teljum við mikilvægt að innleiða fleiri samræmd próf, meðal annars í náttúrufræði, svo hægt sé að fylgjast betur með stöðu nemenda og grípa tímanlega inn í ef þörf krefur. Samstarf heimila og skóla er lykilatriði í árangursríku námi. Við viljum auka aðgengi foreldra að upplýsingum um nám barna sinna og styrkja tengslin milli skóla og heimilis. Kópavogur hefur verið brautryðjandi í notkun spjaldtölva í kennslu og við ætlum að halda þeirri forystu áfram með því að rýna markvisst í áhrif tækninnar. Sérstök áhersla verður lögð á að meta áhrif á námsárangur og tryggja hóflegan og heilbrigðan skjátíma barna. Fartölvur og átak í íslenskukennslu tvítyngdra Til að undirbúa nemendur enn betur fyrir framtíðina ætlum við að tryggja að allir nemendur á unglingastigi hafi aðgang að fartölvum. Jafnframt viljum við endurhugsa stuðning inn í grunnskóla til að mæta breyttum þörfum samfélagsins. Við leggjum sérstaka áherslu á að mæta betur þörfum bráðgerra barna og vinna gegn skólaleiða með fjölbreyttari og krefjandi námsumhverfi. Íslenskan er lykill að þátttöku í samfélaginu. Því viljum við efla markvissa þjálfun í íslensku með því að koma á móttökuverum í hverjum skóla fyrir börn af erlendum uppruna. Með sterkari grunn í tungumálinu verða þau betur í stakk búin til að takast á við nám og samfélagsþátttöku. Við ætlum einnig að auka sveigjanleika og frelsi skóla til að bjóða upp á fjölbreyttari valfög sem undirbúa nemendur fyrir framhaldsskóla og lífið sjálft. Þar má nefna aukna áherslu á fjármálalæsi, raungreinar, hugbúnaðarþróun og verklegt nám. Leikskólinn er fyrsta skólastigið og þar leggjum við grunn að áframhaldandi námi og velferð barna. Við viljum að leikskólar í Kópavogi séu fyrsta val foreldra. Í Kópavogsmódelinu tryggjum við fullmannaða leikskóla og áreiðanlega þjónustu. Við munum áfram leggja áherslu á að koma rausnarlega til móts við tekjulægri heimili og tryggja jafnt aðgengi að gæða menntun fyrir öll börn. Við viljum einnig bæta stuðning við foreldra yngstu barnanna með því að bjóða upp á heimgreiðslur frá 15 mánaða aldri og stefnum að því að lækka aldurinn niður í 12 mánuði. Með því aukum við valfrelsi fjölskyldna og gerum þeim kleift að velja það fyrirkomulag sem hentar þeim best. Með þessum aðgerðum leggjum við traustan grunn að bjartri framtíð í Kópavogi – þar sem hvert barn fær að njóta sín, þroskast og blómstra í öflugu og styðjandi námsumhverfi. Höfundur er skólastjóri og skipar 9. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sjálfstæðisflokkurinn Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Skóla- og menntamál Kópavogur Mest lesið Hamfarir Hildar – seinni hluti Haraldur Freyr Gíslason Skoðun Urriðaholt svikið um almennilega sundlaug Laufey Gunnþórsdóttir Skoðun Innantóm loforð um hjúkrunarheimili Gunnsteinn R. Ómarsson,Berglind Friðrikisdóttir,Pálmi Þór Ásbergsson,Bryndís Sigurðardóttir Skoðun Fangelsi fyrir fjölskyldur - Ekki nota börn sem peð í pólitískri skák Alma Mjöll Ólafsdóttir Skoðun Ást mín á íþróttum og silfurleysið í Peking Bjarni Fritzson Skoðun Það sem Sjálfstæðisflokknum líður verst með Arnar Þór Ingólfsson Skoðun Aukið aðgengi að áfengi? Lísbet Sigurðardóttir Skoðun Menntamálin sem við forðumst að ræða Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun Öll börn eiga rétt á öryggi Arna Magnea Danks Skoðun Leðurblökur í ráðhúsinu Elías Blöndal Guðjónsson Skoðun Skoðun Skoðun Grunnur að bjartri framtíð í Kópavogi Sigrún Bjarnadóttir skrifar Skoðun Strætó, bílar, rafhjól og gangandi fólk Unnar Jónsson skrifar Skoðun Að kjósa af yfirvegun Morgan Bresko skrifar Skoðun Öll börn eiga rétt á öryggi Arna Magnea Danks skrifar Skoðun Umhverfið er okkar mál - Gaman að plokka í Garðabæ Guðfinna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Samfélag fyrir sum börn - framtíðarsýn sveitarfélaga fyrir fötluð börn Harpa Júlíusdóttir skrifar Skoðun Nauðsynlegar umbætur í menntamálum Inga Sæland skrifar Skoðun Urriðaholt svikið um almennilega sundlaug Laufey Gunnþórsdóttir skrifar Skoðun Hver bað um þessa illsku við eignalausa? Guðmundur Hrafn Arngrímsson,Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Stöndum með skólasamfélaginu í Garðabæ! Harpa Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Fangelsi fyrir fjölskyldur - Ekki nota börn sem peð í pólitískri skák Alma Mjöll Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ferilsskrá í stað fagurgala Vigdís Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Börnin aftur í aftursætið? Heiðdís Geirsdóttir skrifar Skoðun Innantóm loforð um hjúkrunarheimili Gunnsteinn R. Ómarsson,Berglind Friðrikisdóttir,Pálmi Þór Ásbergsson,Bryndís Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ást mín á íþróttum og silfurleysið í Peking Bjarni Fritzson skrifar Skoðun Aukið aðgengi að áfengi? Lísbet Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þegar loforð duga ekki: Leikskólakerfið í Kópavogsbæ Nína Berglind Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Leðurblökur í ráðhúsinu Elías Blöndal Guðjónsson skrifar Skoðun Um kennaranám Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Reynsla Íslands á erindi við umheiminn Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Garðabær er lifandi samfélag með aðlaðandi umhverfi, menningu og mannlíf Stella Stefánsdóttir skrifar Skoðun Árleg óvissa um NPA samninga er óboðleg Rúnar Björn Herrera Þorkelsson,Þorbera Fjölnisdóttir skrifar Skoðun Frelsi felst í fleiri valkostum Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Mismunum grunnskólabarna í sumarfrístundakerfi Reykjavíkurborgar Guðrún Sif Friðriksdóttir skrifar Skoðun Viljum við að fatlað fólk mennti sig? Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Bið, endalaus bið Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Kársnesið okkar á betra skilið Thelma Árnadóttir skrifar Skoðun Er íslenskan að missa pláss í eigin landi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fleiri talmeinafræðinga og biðlistana burt Tinna Steindórsdóttir skrifar Skoðun Verkakonuskattur leikskólakerfisins Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Sjá meira
Innantóm loforð um hjúkrunarheimili Gunnsteinn R. Ómarsson,Berglind Friðrikisdóttir,Pálmi Þór Ásbergsson,Bryndís Sigurðardóttir Skoðun
Skoðun Samfélag fyrir sum börn - framtíðarsýn sveitarfélaga fyrir fötluð börn Harpa Júlíusdóttir skrifar
Skoðun Hver bað um þessa illsku við eignalausa? Guðmundur Hrafn Arngrímsson,Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar
Skoðun Fangelsi fyrir fjölskyldur - Ekki nota börn sem peð í pólitískri skák Alma Mjöll Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Innantóm loforð um hjúkrunarheimili Gunnsteinn R. Ómarsson,Berglind Friðrikisdóttir,Pálmi Þór Ásbergsson,Bryndís Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Garðabær er lifandi samfélag með aðlaðandi umhverfi, menningu og mannlíf Stella Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Árleg óvissa um NPA samninga er óboðleg Rúnar Björn Herrera Þorkelsson,Þorbera Fjölnisdóttir skrifar
Skoðun Mismunum grunnskólabarna í sumarfrístundakerfi Reykjavíkurborgar Guðrún Sif Friðriksdóttir skrifar
Innantóm loforð um hjúkrunarheimili Gunnsteinn R. Ómarsson,Berglind Friðrikisdóttir,Pálmi Þór Ásbergsson,Bryndís Sigurðardóttir Skoðun