Handbolti

„Eitt allra eftir­minni­legasta íþrótta­lið síðasta ára­tuginn“

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Leikmenn Selfoss tollera Patrek Jóhannesson eftir að liðið tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn vorið 2019.
Leikmenn Selfoss tollera Patrek Jóhannesson eftir að liðið tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn vorið 2019. vísir/vilhelm

Eftirminnileg endurkoma karlaliðs Selfoss í handbolta gegn Haukum í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn 2019 er til umfjöllunar í þrettánda þætti Augnablikanna, „Enn ein endurkoman.“

Patrekur Jóhannesson tók við þjálfun Selfoss sumarið 2017 og á fyrsta tímabilinu undir hans stjórn komst liðið í undanúrslit Íslandsmótsins þar sem það tapaði fyrir FH í oddaleik.

Tímabilið á eftir fóru Selfyssingar alla leið í úrslit þar sem þeir mættu Haukum. Selfoss vann fyrsta leikinn en Haukar leik tvö og voru í kjörstöðu til að vinna þriðja leikinn. Þegar skammt var til leiksloka voru Hafnfirðingar með fimm marka forystu, 26-21.

Á þessum árum voru Selfyssingar gjarnir á að koma til baka eftir að hafa lent í ógöngum og það gerðu þeir, einu sinni sem oftar, í leiknum gegn Haukum á Ásvöllum. Miklu munaði um frammistöðu Sölva Ólafssonar sem varði helming þeirra skota sem hann fékk á sig í þriðja leiknum í úrslitaeinvíginu 2019.

„Þetta er eitthvað það óvæntasta sem maður hefur séð. Þegar þú horfir til baka yfir þessi tvö tímabil var markvarslan alltaf lítil sem engin og það var alltaf það sama, ef þeir væru með þennan eða hinn og gætu ruslað upp 37 prósenta markvörslu væru þeir óstöðvandi,“ sagði Tómas Þór Þórðarson í Augnablikunum en hann stýrði Seinni bylgjunni á árunum 2017-19. 

Klippa: Augnablikin - Enn ein endurkoman

„Þetta var leik eftir leik eftir leik. Meira að segja þegar þeir voru að vinna var talað um að þeir hefðu getað unnið þetta enn stærra og stundum voru þeir í leikjum sem voru spennandi en þurftu ekkert að vera spennandi því markvarslan var ekki.“

Patrekur tók leikhlé í stöðunni 26-21 fyrir Haukum og lagði línurnar fyrir lokasprettinn. Hann bætti aukamanni í sóknina fyrir síðustu mínútur leiksins.

„Sóknarlega vorum við mjög sjaldan í sjö á sex. Mér fannst ég vera með þannig lið að við ættum að geta klárað þetta sex á sex. Það var líka ánægjulegt, að það gekk upp fyrir okkur. Ég man að við vorum búnir að fara ágætlega yfir það ef Haukarnir færu í sjö á sex og þeir gerðu það allavega í framlengingunni,“ sagði Patrekur en Selfyssingum tókst að jafna metin og tryggðu sér svo sigurinn í framlengingu, 30-32. Þeir unnu svo fjórða leikinn á heimavelli og urðu því Íslandsmeistarar.

„Þetta var ógleymanlegt og eitt það alskemmtilegasta sem maður hefur gert á sínum ferli. Það er ekki spurning að þetta er eitt allra eftirminnilegasta íþróttalið, og sigurlið þvert á íþróttir, síðasta áratuginn,“ sagði Tómas.

Brot úr „Enn einni endurkomunni“, þrettánda þætti Augnablikanna, má sjá í spilaranum hér fyrir ofan. Þátturinn verður sýndur á Sýn Sport Ísland klukkan 18:30 í kvöld. Þáttinn má svo nálgast á efnisveitu Sýnar Sport.


Tengdar fréttir

„Þegar ég sá hann fara ofan í var ég bara: Guð minn góður“

Þegar Hulda María Agnarsdóttir var nýorðin sautján ára setti hún niður risastóra þriggja stiga körfu á ögurstundu í oddaleik um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta. Fjallað er um körfuna hennar Huldu í tólfta þætti Augnablikanna, „Draumaþristur á Eurovision-kvöldi.“

Pabbi Hemma fór úr Höllinni og sá aldrei þristinn fræga

Í níunda þætti Augnablikanna er fjallað um fræga þriggja stiga körfu Hermanns Haukssonar í bikarúrslitaleik Njarðvíkur og Keflavíkur 1999. Njarðvíkingar voru í ómögulegri stöðu þegar skammt var til leiksloka en tryggðu sér framlengingu eftir ótrúlegan endasprett og unnu leikinn á endanum.

Ferðalagið hans Jeb Ivey: Spurði Inga hvort hann væri brjálaður

Flestir blótuðu eldgosinu í Eyjafjallajökli í sand og ösku en ekki fólkið í Stykkishólmi. Í þriðja þætti Augnablikanna er sagan af ótrúlegu ferðalagi Jebs Ivey fyrir annan leik Snæfells og Keflavíkur í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta karla 2010 rakin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×