Fengu upp í kok og fóru eftir 53 mínútur Sindri Sverrisson skrifar 10. maí 2026 20:48 Adrien Rabiot og Christopher Nkunku þurftu að þola tap með AC Milan í kvöld. Getty/Giuseppe Cottini Atalanta veitti AC Milan þungt högg og hjálpaði Roma mikið, í baráttunni um meistaradeildarsæti í ítölsku A-deildinni í fótbolta í kvöld.
Atalanta vann Milan 3-2 á útivelli í kvöld. Mörkin þrjú frá Atalanta komu á fyrstu 53 mínútum leiksins, og var staðan þá 3-0, og þá var stuðningsmönnum Milan nóg boðið. Þeir streymdu í burtu af San Siro og sýndu þannig vonbrigði sín yfir frammistöðunni. 👋 The Curva Sud have seen enough and are leaving San Siro.📹 @PBPcalcio pic.twitter.com/2YebbD6plt— SempreMilan (@SempreMilanCom) May 10, 2026 Stuðningsmennirnir misstu því af spennunni í lokin en Strahinja Pavlovic minnkaði muninn á 88. mínútu. Þá höfðu liðið 300 leikmínútur frá síðasta marki Milan á San Siro. Christopher Nkunku skoraði svo annað mark Milan úr víti á fjórðu mínútu uppbótartíma og fékk færi til að jafna metin. Éderson og Davide Zappacosta höfðu komið Atalanta í 2-0 í fyrri hálfleik og Giacomo Raspadori skoraði þriðja markið svo snemma í seinni hálfleik, eins og fyrr segir. Að missa af meistaradeildarsæti? Tapið gæti reynst afar dýrkeypt fyrir Milan því nú eru aðeins tvær umferðir eftir og er liðið komið niður í 5. sæti en aðeins fjögur efstu liðin komast í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð. Inter er meistari og Napoli í 2. sæti með 70 stig og leik til góða. Juventus er í 3. sæti með 68 stig og Roma og Milan með 67 en markatala Milan er langverst. Milan þarf því núna að treysta á hjálp frá öðrum liðum í síðustu tveimur umferðunum. Atalanta er með 58 stig í 7. sæti og getur ekki endað ofar. Standings provided by Sofascore
Ítalski boltinn Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez Sjá meira