Húsnæðisöryggi er stærsta velferðarmálið Gundega Jaunlinina skrifar 12. maí 2026 08:21 Stór hluti þeirra sem halda uppi grunnstoðum samfélagsins á Íslandi er af erlendum uppruna - fólk sem nemur um fimmtungi vinnumarkaðarins. Þau halda mörgum af grunnstoðum samfélagsins gangandi á hverjum degi; í umönnun, þjónustu, ferðaþjónustu, iðnaði og fjölmörgum öðrum störfum sem skipta samfélagið gríðarlegu máli. Samt á þessi hópur oft ekki sterka rödd í samfélagsumræðunni, og okkur ber skylda til að tryggja að þau búi við mannsæmandi kjör, öryggi og raunveruleg tækifæri til þátttöku. Lengri vinnuvika, lægri laun Nýleg kjarakönnun Verkalýðsfélagsins Hlífar, sem Gallup vann fyrir félagið haustið 2025, sýnir svart á hvítu hversu skökk staðan er. Félagsfólk af erlendum uppruna vinnur að meðaltali 44,3 stundir á viku en íslenskt félagsfólk 41,5 stundir. Samt eru meðallaun erlends félagsfólks 676 þúsund krónur á mánuði - heilum 105 þúsundum lægri en hjá íslensku félagsfólki. Helmingur erlends félagsfólks hefur áhyggjur af fjárhag sínum, 28 prósent þekkja dæmi um kjarasamningsbrot á sínum vinnustað, og aðeins 57 prósent telja sig búa við mikið starfsöryggi. Sláandi munur á húsnæðismarkaði Húsnæðisóöryggi er stór áskorun fyrir margar þessara fjölskyldna. Hjá Hlíf er hlutfall félagsfólks á leigumarkaði orðið 52,3 prósent - meira en tvöfalt hærra en árið 2019, þegar það var 24,7 prósent. Munurinn eftir uppruna er sláandi: tæp 80 prósent erlends félagsfólks Hlífar eru á leigumarkaði, en aðeins fjórðungur íslensks félagsfólks. Aðeins 16,5 prósent erlends félagsfólks býr í eigin húsnæði á móti 45 prósentum íslensks félagsfólks. Hjá þeim sem starfa við ræstingar eru 87 prósent á leigumarkaði. Og leigjendur eru í mun verri fjárhagsstöðu - 56 prósent þeirra hafa miklar áhyggjur af fjárhag sínum og 22 prósent hafa átt í erfiðleikum með að standa skil á húsnæðiskostnaði síðustu 12 mánuði. Börnin bera afleiðingarnar Hátt leiguverð og mikil óvissa á almennum leigumarkaði leiðir oft til endurtekinna flutninga milli hverfa og skóla. Það hefur ekki aðeins áhrif á fjárhag heldur líka á líðan og félagslegt öryggi barna - barna sem þurfa nú þegar aukinn stuðning, enda er íslenska ekki móðurmál þeirra. Öll börn eiga rétt á öryggi, stöðugleika og jöfnum tækifærum, óháð því hvaðan þau koma. Þau eiga ekki að bera afleiðingar húsnæðisóöryggis foreldra sinna. Við vitum hvað þarf að gera Þess vegna ætlar Samfylkingin í Hafnarfirði að ráðast í kraftmikla og fjölbreytta húsnæðisuppbyggingu á næsta kjörtímabili. Lykilatriði þeirrar stefnu er stóraukið og markvisst samstarf við óhagnaðardrifin leigufélög á vegum verkalýðshreyfingarinnar - til dæmis Bjarg. Reynslan sýnir að þetta er sú leið sem virkar best til að halda leigu niðri fyrir þá hópa sem mest þurfa á því að halda; ungt fólk og fyrstu kaupendur, námsmenn, eldri íbúa, fólk með fötlun og tekjulægri fjölskyldur. Samhliða ætlar Samfylkingin að fjölga félagslegum íbúðum bæjarins, stytta biðlista og tryggja raunhæf úrræði fyrir þá sem standa frammi fyrir heimilisleysi. Það er ekki nóg að þakka fólkinu sem heldur samfélaginu gangandi. Við verðum að tryggja að það geti raunverulega búið hér með reisn og stöðugleika - og það byrjar með öruggu þaki yfir höfuðið. Þannig verðum við sterkari saman! Höfundur skipar 16. sæti á lista Samfylkingarinnar í Hafnarfirði og er varaformaður verkalýðsfélagsins Hlífar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Samfylkingin Hafnarfjörður Mest lesið Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson Skoðun Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson Skoðun DARVO: Sálfélagslegur glundroði Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Menntakerfið pólitískur leikvöllur? Anna Kristín Sigurðardóttir Skoðun Hvað þarf að laga á Íslandi – hver ber ábyrgð? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir Skoðun Halldór 12.09.2026 Halldór Síðan hvenær er ég enginn? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Þegar andstæðingum eru eignuð orð Erna Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun DARVO: Sálfélagslegur glundroði Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun Menntakerfið pólitískur leikvöllur? Anna Kristín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað þarf að laga á Íslandi – hver ber ábyrgð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar andstæðingum eru eignuð orð Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Síðan hvenær er ég enginn? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Af bíómiðum og baðlónum María Rut Ágústsdóttir skrifar Skoðun Hvað verður minna þegar ríkið tekur meira? Íris Ósk Gísladóttir skrifar Skoðun Hver er okkar Napóleon Bónaparte? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Samfélagsumræðan og nunnan Ingibjörg Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun 0,01% er ekki undanþága frá ábyrgð Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Óréttlæti lífeyriskerfisins gagnvart ungu fólki Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við erum froskar í vatni sem nálgast suðu Isla Sweet,Jóhanna Malen Skúladóttir skrifar Skoðun Sögulegt skref fyrir dýr í Danmörku Linda Karen Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Áður en við greinum barn þurfum við að skilja allt barnið Tara Khoshkhoo skrifar Skoðun Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun Þegar tengsl geta skipt sköpum Steinunn Bergmann,María Björk Ingvadóttir skrifar Skoðun Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Má þjóðin aðeins fá að anda? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun EES er ekki eina leiðin og kannski ekki sú skynsamlegasta lengur Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Hver fær að skilgreina hvað þjóðin sagði? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Fjórfrelsið og EES fyrir Ísland Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Já heilbrigðisráðherra - sóknarfærin eru mörg þegar kemur að lýðheilsu barna Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Að PISA upp í vindinn – getur gervigreind þýtt námsefni fyrir börn? Steinþór Steingrímsson skrifar Skoðun Öldungaráð Reykjavíkurborgar tekið úr sambandi Viðar Eggertsson skrifar Skoðun Stöðugleiki á leigumarkaði Benedikt S. Benediktsson skrifar Skoðun Hálfsársuppgjör staðfestir áhyggjur af fjármálum Seltjarnarness Kristinn Ólafsson skrifar Sjá meira
Skoðun Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir skrifar
Skoðun Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar
Skoðun Já heilbrigðisráðherra - sóknarfærin eru mörg þegar kemur að lýðheilsu barna Halla Þorvaldsdóttir skrifar
Skoðun Að PISA upp í vindinn – getur gervigreind þýtt námsefni fyrir börn? Steinþór Steingrímsson skrifar
Skoðun Hálfsársuppgjör staðfestir áhyggjur af fjármálum Seltjarnarness Kristinn Ólafsson skrifar