Árni Tómas Ragnarsson er látinn Hólmfríður Gísladóttir skrifar 18. maí 2026 07:34 Árni Tómas Ragnarsson. Árni Tómas Ragnarsson læknir lést 27. apríl síðastliðinn.
Frá þessu greinir Morgunblaðið. Árni Tómas var fæddur í Reykjavík 19. janúar 1950, sonur Ragnars Tómasar Árnasonar útvarpsþular og verslunarmanns og Jónínu Vigdísar Kristjánsdóttur Schram læknaritara. Hann átti fjögur systkini; Kristján Tómas, Láru Margréti, Ástu Kristrúnu og Hallgrím Tómas. Árni lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1969 og kandídatsprófi frá læknadeild Háskóla Íslands 1976. Hann stundaði sérnám við Karólínska sjúkrahúsið í Stokkhólmi og víðar í Svíþjóð og fékk sérfræðileyfi í gigtlækningum 1982. Árni starfaði á flestum sjúkrahúsum í Reykjavík og var héraðslæknir á Sigufirði og í Stykkishólmi. Þá var hann yfirlæknir á Grund í nær 30 ár. Árni rak einnig eigin stofu í Reykjavík þar sem hann sinnti gigtarsjúklingum og starfaði um tíma sem sérfræðingur í Svíþjóð. Fyrrverandi eiginkona Árna er Selma Guðmundsdóttir píanóleikari. Eftirlifandi eiginkona hans er Jóhanna Andrea Jónsdóttir foreldra- og uppeldisráðgjafi. Dóttir Árna og Jóhönnu er Andrea Elizabeth Gavern Árnadóttir, f. 1999. Börn Árna og Selmu eru Guðmundur, f. 1969, d. 1994, Ragnar lögmaður, f. 1970, Kristján Tómas, f. 1978, sérfræðingur í heimilislækningum, og Selma Lára, f. 1993, grafískur hönnuður. Samkvæmt Morgunblaðinu var Árni alla tíð mikill Vesturbæingur og aðdáandi KR. Árni var töluvert í fréttum síðustu ár en hann aðhylltist skaðaminnkandi nálgun gagnvart fíknisjúkdómum og skrifaði upp á morfínlyf fyrir sjúklinga sína. Hann var sviptur leyfinu til að ávísa lyfjum árið 2024, sem var gagnrýnt af ýmsum samstarfsmönnum hans.
Andlát Mest lesið Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Fleiri fréttir Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Sjá meira