Eftirlit með smíði Þjórsárbrúar boðið út í óvissu um kærumál Kristján Már Unnarsson skrifar 19. maí 2026 12:37 Nýja brúin á að koma á móts við þorpið Árnes og tengja saman uppsveitir Árnes- og Rangárvallasýslu. Teikning/Vegagerðin Vegagerðin hefur boðið út eftirlit og ráðgjöf með smíði nýrrar Þjórsárbrúar og gerð Búðafossvegar. Samningur um eftirlitið sem og fyrirhugað verkútboð eru þó háð því að búið verði að útkljá kærumál, sem árum saman hafa tafið bæði Hvammsvirkjun og Þjórsárbrúna.
Útboðsauglýsingin birtist á vef Vegagerðarinnar í gær. Hún er um eftirlit og ráðgjöf með útboðsverki sem nefnist „Búðafossvegur (23), Þjórsárdalsvegur – Landvegur“. „Já, við erum búin að bjóða út eftirlitið en í þeim útboðsgögnum er skilyrði um að hefjist framkvæmdir ekki innan sex mánaða frá undirritun samnings þá falli samningurinn um eftirlitið sjálfkrafa niður,“ segir Einar M. Magnússon, verkefnastjóri á framkvæmdadeild Vegagerðarinnar. -Hvenær er þá ætlunin að auglýsa verkútboðið? „Við erum komin með framkvæmdaleyfi frá báðum sveitarfélögum en það var tekin ákvörðun um að bíða með útboð á meðan kærufrestur vegna framkvæmdaleyfanna er að líða,“ segir Einar en kærufrestur rennur út um næstu mánaðamót. Nýja Þjórsárbrúin kemur skammt ofan við eyjuna Árnes, sem sést ofarlega fyrir miðri mynd. Efst í kvíslinni hægra megin er Búðafoss.Vegagerðin „Vegagerðin er svo sem alveg tilbúin í þetta en staðan verður endurmetin um mánaðamótin,“ segir Einar. Þá verður ljóst hvort kærur hafa borist og aðilar geta metið hvort þeim fylgi miklar tafir eða stöðvun. Haraldur Þór Jónsson, oddviti Skeiða- og Gnúpverjahrepps, segir kærumál samtakanna Náttúrugriða vegna matsskyldu vegagerðarinnar einnig óútkljáða hjá Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála. Segir hann að Vegagerðin gæti boðið heildarverkið út strax eftir mánaðamót, ef ekki verði þá enn óleyst kærumál. Vegagerðin hafði vonast til að geta boðið út framkvæmdir við Þjórsárbrúna og Búðafossveginn snemma árs 2025, en þá var verkinu lýst með myndbandi í þessari frétt: Sunnlendingar vonuðust raunar til þess að smíði brúarinnar hæfist árið 2009, eins og rifja má upp í þessari sautján ára gömlu frétt:
Deilur um Hvammsvirkjun Vegagerð Samgöngumál Skeiða- og Gnúpverjahreppur Rangárþing ytra Vatnsaflsvirkjanir Umhverfismál Skipulagsmál Lax Stangveiði Tengdar fréttir Munu reyna að fá nýju virkjunarleyfi hnekkt Umhverfis- og orkustofnun hefur endurútgefið virkjunarleyfi vegna Hvammsvirkjunar. Fyrra leyfi var fellt úr gildi með dómi Hæstaréttar í júlí. Formaður Náttúrugriða segir nokkuð öruggt að náttúruverndarsamtök og landeigendur reyni að fá leyfinu hnekkt. 13. desember 2025 14:43 Ný Þjórsárbrú bíður í sömu óvissu og Hvammsvirkjun Útboð á smíði nýrrar Þjórsárbrúar á móts við þorpið Árnes ásamt gerð Búðafossvegar er í óvissu eftir að Héraðsdómur Reykjavíkur ógilti virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar í síðasta mánuði. Vegagerðin hafði gefið út að verkið yrði boðið út fljótlega á þessu ári. 5. febrúar 2025 14:44 Ný brú á Þjórsá talin kosta um fimmtung af verði Ölfusárbrúar Ný Þjórsárbrú við Árnes verður boðin út fljótlega eftir áramót. Hún mun ásamt tengivegum sennilega kosta vel innan við fjórðung af því sem Ölfusárbrúin kostar. 19. nóvember 2024 07:07 Árnesingur og Rangæingur grafa fyrir Hvammsvirkjun Verksamningur um framhald framkvæmda við Hvammsvirkjun var undirritaður í dag milli Landsvirkjunar og tveggja sunnlenskra verktaka. Kærumál eru þó enn í gangi en Landsvirkjunarmenn vonast samt til að geta boðið út stærstu verkþættina í sumar. 26. mars 2026 21:21 Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Sjá meira
Munu reyna að fá nýju virkjunarleyfi hnekkt Umhverfis- og orkustofnun hefur endurútgefið virkjunarleyfi vegna Hvammsvirkjunar. Fyrra leyfi var fellt úr gildi með dómi Hæstaréttar í júlí. Formaður Náttúrugriða segir nokkuð öruggt að náttúruverndarsamtök og landeigendur reyni að fá leyfinu hnekkt. 13. desember 2025 14:43
Ný Þjórsárbrú bíður í sömu óvissu og Hvammsvirkjun Útboð á smíði nýrrar Þjórsárbrúar á móts við þorpið Árnes ásamt gerð Búðafossvegar er í óvissu eftir að Héraðsdómur Reykjavíkur ógilti virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar í síðasta mánuði. Vegagerðin hafði gefið út að verkið yrði boðið út fljótlega á þessu ári. 5. febrúar 2025 14:44
Ný brú á Þjórsá talin kosta um fimmtung af verði Ölfusárbrúar Ný Þjórsárbrú við Árnes verður boðin út fljótlega eftir áramót. Hún mun ásamt tengivegum sennilega kosta vel innan við fjórðung af því sem Ölfusárbrúin kostar. 19. nóvember 2024 07:07
Árnesingur og Rangæingur grafa fyrir Hvammsvirkjun Verksamningur um framhald framkvæmda við Hvammsvirkjun var undirritaður í dag milli Landsvirkjunar og tveggja sunnlenskra verktaka. Kærumál eru þó enn í gangi en Landsvirkjunarmenn vonast samt til að geta boðið út stærstu verkþættina í sumar. 26. mars 2026 21:21