Íslenski boltinn

Öll mörkin: Sjáðu þrennu vara­mannsins og sturlunina á Akur­eyri

Sindri Sverrisson skrifar
Stjörnukonur fögnuðu góðum sigri gegn ÍBV í gær.
Stjörnukonur fögnuðu góðum sigri gegn ÍBV í gær. vísir/Anton

Tíu marka tryllingur á Akureyri og þrenna varamanns í Kaplakrika var á meðal þess sem stóð upp úr markasúpunni í 7. umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta. Öll mörkin má nú sjá á Vísi.

Nia Christopher kom inná sem varamaður í hálfleik þegar FH var 2-1 undir gegn Fram í Kaplakrika og skoraði þrennu, í 6-2 sigri FH. Hún fékk þó góða aðstoð, meðal annars þegar Ingibjörg Magnúsdóttir krækti í vítaspyrnu í lokin sem Christopher skoraði úr.

Sigurinn þýðir að FH er áfram tveimur stigum á eftir toppliði Breiðabliks sem vann 5-0 stórsigur á nýliðum Grindavíkur/Njarðvíkur.

ÍBV er áfram í 3. sæti þrátt fyrir 2-0 tap gegn Stjörnunni en núna aðeins stigi á undan Þrótti, sem vann Val 1-0, og tveimur á undan Stjörnukonum.

Þór/KA er eina liðið án sigurs, á botninum, eftir 6-4 skellinn gegn Víkingum sem komu sér í burtu frá fallsætunum.

Mörkin úr leikjunum má sjá hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×