Veita sextán milljarða evra til Ungverjalands Sigurgeir Þorkelsson skrifar 31. maí 2026 17:10 Peter Magyar, nýr forsætisráðherra Ungverjalands, á blaðamannafundi ásamt forseta framkvæmdastjórnar ESB, Úrsúlu von der Leyen. Getty Úrbætur nýrrar ríkisstjórnar Ungverjalands gera Evrópusambandinu kleift að losa um sextán milljarða evra fjárframlög til landsins. Fjárframlögin höfðu verið fryst í valdatíð Viktors Orbán sem færði Ungverjaland fjær grunngildum Evrópusambandsins um lýðræði og mannréttindi.
Frysting fjármunanna á sínum tíma átti að beina stjórnvöldum aftur á beinu brautina. Ný ríkisstjórn Peters Magyar, sem tók við völdum eftir kosningar í apríl síðastliðnum, tók strax til hendi við að vinda ofan af mörgum þeim breytingum sem komið var á í sextán ára langri valdatíð Orbans. Var þar ýmislegt sem gramdist Evrópusambandinu, þrengt var að frelsi fjölmiðla og háskóla og réttindi hinsegin fólks skert svo eitthvað sé nefnt. Milljarðarnir sextán, í evrum talið, jafngilda um það bil þrettán prósentum af fjárlögum ungverska ríkisins á ársgrundvelli. Þeir eru eflaust kærkomnir og munu verða mikil innspýting inn í ungverskan efnahag sem hefur nánast staðið í stað síðustu þrjú ár. Þá erfir Peter Magyar fjárlagahalla upp á sex komma tvö prósent vergrar landsframleiðslu frá forvera sínum í embætti. Sá þótti ansi gjafmildur í aðdraganda þingkosninganna, en allt kom fyrir ekki og nýr flokkur var kosinn til valda. „Við ætlum að koma með þennan pening heim, líkt og lofað var, til að endurbyggja Ungverjaland, hrinda efnahagnum í gang, bæta opinbera þjónustu og styrkja samkeppnishæfni,“ hefur fréttastofan Reuters eftir Peter Magyar. Þá sagði hann að aðgerðir núverandi ríkisstjórnar gegn þeirri spillingu sem ríkti undir Viktori Orban bæru þegar árangur en þær hefðu verið eitt grunnskilyrða Evrópusambandsins fyrir því að losað yrði um fjármunina.
Ungverjaland Evrópusambandið Tengdar fréttir Orbán hættir á þingi Viktor Orbán ætlar að hætta á þingi eftir að hafa lotið í lægra haldi í kosningum fyrr í mánuðinum. Hann hafði verið forsætisráðherra í samfleytt sextán ár en galt afhroð í nýyfirstöðnum þingkosningum. 25. apríl 2026 19:03 Orbán játar sig sigraðan Viktor Orbán, forsætisráðherra Ungverjalands, játar sig sigraðan í ungversku þingkosningunum og óskar Péter Magyar, formanni stjórnarandstöðuflokksins Tisza, til hamingju með sigurinn. Fyrstu tölur úr kjörkössum benda til þess að Tisza vinni stórsigur. 12. apríl 2026 19:28 Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Fleiri fréttir Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Sjá meira
Orbán hættir á þingi Viktor Orbán ætlar að hætta á þingi eftir að hafa lotið í lægra haldi í kosningum fyrr í mánuðinum. Hann hafði verið forsætisráðherra í samfleytt sextán ár en galt afhroð í nýyfirstöðnum þingkosningum. 25. apríl 2026 19:03
Orbán játar sig sigraðan Viktor Orbán, forsætisráðherra Ungverjalands, játar sig sigraðan í ungversku þingkosningunum og óskar Péter Magyar, formanni stjórnarandstöðuflokksins Tisza, til hamingju með sigurinn. Fyrstu tölur úr kjörkössum benda til þess að Tisza vinni stórsigur. 12. apríl 2026 19:28