Miðvinstristjórn mynduð í Danmörku Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 1. júní 2026 20:39 Mette Frederiksen tókst að ljúka viðræðum í þriðju umboðsumferð. AP Danir fá nýja ríkisstjórn rúmlega tveimur mánuðum eftir kosningar. Mette Frederiksen starfandi og væntanlega tilvonandi forsætisráðherra greindi frá þessu síðdegis í dag.
Sósíaldemókratar, Moderaterne, Sosialistisk folkeparti og De Radikale hafa komið sér saman um stjórnarmyndun í þriðju umferð eftir tilraunir til allra átta. Lars Løkke Rasmussen, formaður Moderaterne, hefur verið í lykilstöðu í viðræðunum en miðjuflokkur hans hafði fram að þessu hvorki viljað mynda meirihluta til vinstri með Frederiksen né til hægri með Troels Lund Poulsen, formanni Venstre sem er stærsti borgaralegi flokkurinn á danska þinginu. Frederiksen hefur sagt að lítið sem ekkert um innihald stjórnarsáttmála líti dagsins ljós fyrr en á morgun. Þá verði tilkynnt um útdeilingu ráðherrastóla á miðvikudag. Þessi nýja ríkisstjórn Dana verður að mörgu leyti ólík undanfara sínum þó Mette Frederiksen muni að öllum líkindum sitja áfram sem forsætisráðherra. Fyrir það fyrsta er um miðvinstristjórn að ræða en ekki breiðfylkingunni þvert yfir miðju eins og fráfarandi ríkisstjórn Mette. Í öðru lagi verður þetta minnihlutastjórn varin vantrausti af Enhedslisten Pelles Dragsted sem þykir ansi róttækur vinstri flokkur og óhætt er að segja að þeir Pelle og Lars Løkke séu ekki um margt sammála svo dæmi sé tekið. Viðræðufundir stóðu yfir í dag milli fyrrnefndra flokka í Marienborgarhöll í útjaðri Kaupmannahafnar en formennirnir þurftu að flýta sér vestur á Fjón þar sem þar er Friðrik kóngur staddur um þessar mundir í skemmtisiglingu. Mette Frederiksen fór um borð til konungshjónanna og tilkynnti um myndun nýju ríkisstjórnarinnar seint í kvöld.
Danmörk Þingkosningar í Danmörku Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Vučić játar ósigur Erlent Nóg sé komið af Trump Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Leikur á hnífsegg í Brasilíu Erlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira