Stelpurnar okkar hálfa leið á HM með sigri Sindri Sverrisson skrifar 4. júní 2026 12:32 Ísland og Úkraína berjast um 3. sæti í sínum riðli í undankeppni HM. Liðið sem endar í 4. sæti fellur í B-deild og þarf að fara í mun erfiðara umspil um sæti á HM. vísir/Diego Með því að forðast tap gegn Úkraínu á morgun getur íslenska kvennalandsliðið í fótbolta tekið risastórt skref í átt að sínu fyrsta heimsmeistaramóti; HM 2027 í Brasilíu. Það myndi nefnilega ryðja úr vegi öllum bestu liðum Evrópu sem mögulegum hindrunum.
Í stuttu máli má segja að með því að forðast tap á morgun sé Ísland öruggt um að þurfa ekki að mæta liðum eins og Frakklandi, Englandi (eða Spáni), Noregi eða Svíþjóð í umspili um að komast á HM. Ekki neinni af níu bestu þjóðum Evrópu og þar með ekki neinni þjóð sem er fyrir ofan Ísland á heimslista FIFA. Í staðinn yrðu erfiðustu andstæðingar sem Ísland gæti þurft að mæta, til að komast á HM í fyrsta sinn, lið á borð við Úkraínu, Sviss, Portúgal eða Belgíu sem Elísabet Gunnarsdóttir stýrir. Vissulega öflug lið en þó öll fyrir neðan Ísland á heimslista og allt opið í tveggja leikja einvígi. Verða að forðast tveggja marka tap Ef Ísland hins vegar tapar með tveggja marka mun og missir Úkraínu upp fyrir sig, í 3. sæti, er leiðin á HM orðin mun torfærari og liðið þarf þá að vinna Spán á þriðjudaginn eða treysta á mjög heppilegan drátt þegar dregið verður í umspilið 18. júní næstkomandi. Hvernig umspil fer Ísland í? Sextán lið leika í A-deild undankeppninnar, í fjórum fjögurra liða riðlum. Sigurlið hvers riðils kemst beint á HM. Liðin í 2. og 3. sæti fara í umspilsleið 1 og spila við lið úr C-deild í tveggja leikja einvígi (til dæmis við Kósovó eða Bosníu). Liðin úr A-deild fá seinni leikinn á heimavelli. Liðin sem enda í 4. sæti fara ásamt sigurliðum riðla í B-deild í umspilsleið 2, gegn liðum sem enda í 2. og 3. sæti úr B-deild. Sigurliðin fjögur úr umspilsleið 1 mæta svo sigurliðum úr umspilsleið 2, í tveggja leikja einvígum um HM-sæti þar sem liðin úr umspilsleið 1 fá seinni leikinn á heimavelli. (Lægst skráða sigurliðið fær þó reyndar ekki HM-sæti heldur fer áfram í umspil við lið úr öðrum heimsálfum en það ætti ekki að skipta Ísland máli.) Thelma Karen Pálmadóttir var í byrjunarliðinu í 1-0 sigrinum gegn Úkraínu í apríl. Nú mætast liðin í Póllandi.vísir/Diego Ísland er í 3. sæti í sínum riðli í undankeppni HM með þrjú stig, á eftir heimsmeisturum Spánar og Evrópumeisturum Englands en fyrir ofan botnlið Úkraínu sem er enn án stiga eftir 1-0 tapið á Laugardalsvelli í apríl. Ágæt markatala Íslands gerir að verkum að Úkraína þarf að öllum líkindum tveggja marka sigur á morgun til að komast upp fyrir Ísland, á innbyrðis úrslitum. Standings provided by Sofascore Það er einnig mikilvægt að halda 3. sætinu upp á að Ísland haldi sér meðal bestu þjóða Evrópu í A-deild Þjóðadeildarinnar á næstu leiktíð. Liðið í 4. sæti fellur beint niður í B-deild en Ísland hefur haldið sig í A-deild frá stofnun Þjóðadeildar kvenna árið 2023.
Landslið kvenna í fótbolta HM 2027 í Brasilíu Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez Sjá meira