Fótbolti

HM-minning: Fékk ekki þrennuna sína fyrr en þrjá­tíu árum eftir dauða sinn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Bert Patenaude stillir sér hér upp fyrir einn af leikjum bandaríska landsliðsins á HM 1930.
Bert Patenaude stillir sér hér upp fyrir einn af leikjum bandaríska landsliðsins á HM 1930. @USMNT

Tuttugasta og þriðja heimsmeistaramótið í fótbolta hefst eftir þrjá daga og Vísir ætlar að telja niður í mótið með því að kafa ofan í sögubækur heimsmeistaramóts karla í fótbolta. Í dag minnumst við tímamótaafreks sem viðkomandi fékk aldrei staðfest á meðan hann lifði.

Bandaríkjamanninum Bert Patenaude er nú eignaður heiðurinn af fyrstu þrennunni í sögu HM í knattspyrnu en það var ekki svo í sögubókum á síðustu öld. Það tók í raun 76 ár fyrir hann að fá eitt af þessum þremur mörkum skráð á réttan mann.

Þökk sé sönnunargögnum frá ýmsum sagnfræðingum og knattspyrnuáhugamönnum, auk ítarlegra rannsókna og staðfestingar frá bandaríska knattspyrnusambandinu, var Bert Patenaude loksins skráður í bækur FIFA með afturvirkum hætti sem fyrsti leikmaðurinn til að skora þrennu í sögu HM í knattspyrnu. 

Þetta er vegna þriggja marka hans í 3-0 sigri Bandaríkjanna á Paragvæ í Montevideo í Úrúgvæ þann 17. júlí 1930.

Lengi vel var Argentínumaðurinn Guillermo Stabile talinn vera fyrsti leikmaðurinn til að skora þrjú mörk í leik á HM. Þann 19. júlí 1930 skoraði argentínski framherjinn þrennu í 6-3 sigri þjóðar sinnar á Mexíkó, en eins og nú hefur verið staðfest, var það tveimur dögum eftir þrjú mörk Patenaude.

Patenaude skoraði fyrsta markið á tíundu mínútu. Annað mark á fimmtándu mínútu hafði verið eignað ýmsum aðilum: sem sjálfsmark Aurelio González, sem venjulegt mark Bandaríkjamannsins Tom Florie (samkvæmt opinberri leikskýrslu FIFA) eða sem annað mark Patenaude (samkvæmt bandaríska knattspyrnusambandinu). Mark frá Patenaude á fimmtugustu mínútu tryggði Bandaríkjunum 3–0 sigur á Suður-Ameríkönum.

FIFA tilkynnti svo þann 10. nóvember 2006 að Patenaude hefði verið fyrsti maðurinn til að skora þrennu í úrslitakeppni HM með því að staðfesta að öll mörkin voru hans.

Patenaude lést í nóvember 1974, á 65 ára afmælisdegi sínum. Hann fékk því ekki þrennuna sína staðfesta fyrr en þrjátíu árum eftir dauða sinn.

Patenaude lék aðeins fjóra landsleiki en skoraði sex mörk í þeim. Fjögur fyrstu mörkin hans komu á heimsmeistaramótinu 1930.


Tengdar fréttir

HM-minning: Þegar Norður-Kórea komst lengra en Brasilía á HM

Brasilíumenn eru sigursælasta þjóð í sögu heimsmeistarakeppninnar með fimm heimsmeistaratitla og eru eina þjóðin sem hefur alltaf verið með. Tuttugasta og þriðja heimsmeistaramótið í fótbolta hefst eftir átta daga og Vísir ætlar að telja niður í mótið með því að kafa ofan í sögubækur heimsmeistaramóts karla í fótbolta og nú er komið að því að skoða mótið þegar Norður-Kórea náði betri árangri en Brasilía.

HM-minning: „Leyfið þeim að kyssast“

Austurríki gegn Alsír virkar kannski ekki eins og mest spennandi leikurinn á HM. Þar fá Alsíringar hins vegar tækifæri til að hefna fyrir einn stærsta skandal fótboltasögunnar, þegar Austurríki tapaði viljandi á HM 1982 til að senda Alsír heim.

HM-minning: Óheiðarlegasta heimsmeistarakeppni allra tíma

Það þarf ekki að fara mjög langt aftur í HM-söguna til að finna dæmi um gróf áhrif spillingar á úrslit heimsmeistaramóts í fótbolta. Tuttugasta og þriðja heimsmeistaramótið í fótbolta hefst eftir níu daga og Vísir ætlar að telja niður í mótið með því að kafa ofan í sögubækur heimsmeistaramóts karla í fótbolta.

HM-minning: Leyfði herbergisfélaganum að vera hetjan

Tuttugasta og þriðja heimsmeistaramótið í fótbolta hefst eftir tíu daga. Vísir ætlar að telja niður í mótið með því að kafa ofan í sögubækur heimsmeistaramóts karla í fótbolta og í dag minnumst við þess þegar Vestur-Þjóðverjar unnu sinn þriðja og síðasta heimsmeistaratitil undir nafni Vestur-Þýskalands. Hetja liðsins kom þá úr óvæntri átt.

HM-minningin: Maðurinn sem pissaði á völlinn

Þrettán dagar eru þar til HM í fótbolta hefst vestanhafs. Vísir mun daglega rifja upp skemmtilegar minningar frá fyrri mótum fram að upphafsflauti. Byrjum á argentínskum markverði sem pissaði á völlinn.

HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af?

Diego Maradona skoraði tvö af frægustu mörkum fótboltasögunnar gegn Englandi á HM 1986. Allir vita að markið sem hann skoraði með „hendi guðs“ hefði aldrei átt að standa, en hefði líka átt að dæma draumamarkið af?

HM-minning: Leið yfir móður hans þegar hún fékk fréttirnar

Það voru margar hetjur þegar Frakkar urðu heimsmeistarar í fyrsta sinn sumarið 1998. Ein af þeim óvæntu sá til þess að þeir fengu tækifæri til að spila til úrslita um heimsmeistaratitilinn. Tuttugasta og þriðja heimsmeistaramótið í fótbolta hefst eftir sjö daga og Vísir ætlar að telja niður í mótið með því að kafa ofan í sögubækur HM karla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×