Miðar teknir af Íran dögum fyrir fyrsta leik Andri Broddason skrifar 9. júní 2026 11:02 Íranir mega ekki dvelja í Bandaríkjunum og þurfa að fljúga til og frá leikjum samdægurs. Orhan Cicek/Anadolu via Getty Images Íranska knattspyrnusambandið hefur misst miðana sem sambandið fékk fyrir heimsmeistaramótið. Stuðningsmenn sem keyptu miða hjá sambandinu eru því miðalausir.
Þeir sem keyptu miða á leiki Íran hjá íranska knattspyrnusambandinu eru ekki lengur með miða á leikina. Margir aðdáendur sem voru búnir að kaupa miða hafa borgað fyrir flug og gistingu en miðunum var kippt frá íranska knattspyrnusambandinu. Verið er að tryggja að íranskir stuðningsmenn geti ekki mætt að styðja sitt lið á heimsmeistaramótinu samkvæmt íranska knattspyrnusambandinu. Samkvæmt reglum FIFA eiga öll knattspyrnusambönd á HM að fá átta prósent af miðum til þess að dreifa til aðdáenda. Samkvæmt íranska knattspyrnusambandinu hafa þessir miðar verið teknir frá þeim aðeins dögum fyrir fyrsta leik íranska landsliðsins. Þetta er ekki fyrsta áfall Íran fyrir heimsmeistaramótið en æfingabúðir liðsins áttu að vera í Arizona í Bandaríkjunum en liðið færði sig til Tijuana í Mexíkó. Vegabréfsáritunin sem írönsku leikmennirnir fengu til að keppa í Bandaríkjunum dugði einungis fyrir Íran til að fljúga til og frá leikjum sínum samdægurs. Þetta var gert þrátt fyrir að reglur Fifa segi að lið eigi að mæta degi fyrr á blaðamannafund fyrir leik. Leikmenn Íran fengu vegabréfsáritunina sína síðasta föstudag en nokkrir starfsmenn liðsinsi hafa ekki ennþá fengið leyfi til að fara til Bandaríkjanna. Sem dæmi hefur formaður knattspyrnusambandsins, Mehdi Taj, ekki fengið leyfi til að fara til Bandaríkjanna. Íran á að spila tvo leiki í riðlinum í Los Angeles og einn í Seattle. Fyrsti leikur Íran er gegn Nýja-Sjálandi eftir viku í Los Angeles.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Allt í rugli í Formúlunni: „Hvaða þvæla er í gangi?“ Formúla 1 Strákarnir sitja fastir Fótbolti Gylfi sárkvalinn: Missti andann og fer í myndatöku Fótbolti Arnar bregst við banni og meiðslum: Þrír nýir með landsliðinu til Tallinn Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Gat ekki munað nafnið eftir sextán hringi Sport Hundur truflaði sigur Skota í Skopje Fótbolti Ánægður með óvænt hrós: „Gaman að heyra þetta frá þér“ Fótbolti Heimir íhugar ekki afsögn og UEFA þurfi að skoða sín mál Fótbolti Dásamaði Ronaldo: „Hættir aldrei að vera merkasta táknmynd Portúgals“ Fótbolti „Við þurfum að gera margt betur“ Körfubolti Fleiri fréttir Heimir íhugar ekki afsögn og UEFA þurfi að skoða sín mál Strákarnir sitja fastir Hundur truflaði sigur Skota í Skopje Arnar bregst við banni og meiðslum: Þrír nýir með landsliðinu til Tallinn Myndaveisla: Flottur sigur Íslands og fötum fækkað í stúkunni Dásamaði Ronaldo: „Hættir aldrei að vera merkasta táknmynd Portúgals“ Ánægður með óvænt hrós: „Gaman að heyra þetta frá þér“ Glódís hélt hreinu í toppslag og Bayern náð 48 í röð án taps Gylfi sárkvalinn: Missti andann og fer í myndatöku „Mikael Anderson kom inn með þvílíka orku“ „Eistar eru með uppskriftina gegn Íslandi“ Einkunnir Íslands: Orri Steinn og Hákon Arnar báru af Yamal með glæsimark í enn einum sigri Spánar „Lærði bara mikilvæga reglu“ Eistar bjuggu til toppslag við Íslendinga Sjáðu mörk Orra og Mikaels gegn Búlgaríu „Erum að spila á móti ofboðslega slöku liði“ „Ég get alveg sagt þér að hann er ekki sáttur“ Söguleg niðurlæging í Króatíu Sex breytingar: Aron Einar byrjar og Gylfi á bekkinn Uppgjörið: Ísland - Búlgaría 3-0 | Einstaklingsgæði tryggðu þrjú stig Lagði upp í öruggum sigri Sjáðu þegar upp úr sauð á fundi Heimis Klopp býður við rasískum ásökunum Er katastrófa að vinna ekki í dag? Blaðamannafundi slitið snemma og Ísraelar brjálaðir Étur hatt sinn vegna ummæla um Gylfa Sjáðu mörkin sem felldu Víking og Val Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn Sjá meira