Uggur í ferðaþjónustu fyrir vestan: „Sjö afbókanir í nótt, fjórar á morgun“ Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 10. júní 2026 12:45 Birna Mjöll Atladóttir á Breiðuvík og Björn Samúelsson eru á meðal þeirra sem vilja Baldur heim í Breiðafjörðinn. Vísir „Það rekur hér hvert kjaftshögg annað,“ segir Birna Mjöll Atladóttir, staðarhaldari á Hóteli Breiðavíkur við Látrabjarg. Hún lenti nýverið í klóm netþrjóta sem bjóða upp á norðurljósaferðir í júlí í nafni hótelsins og segir sömuleiðis að það rigni inn afbókunum vegna óvissu með Breiðafjarðarferju.
Rekendur gististaða á Vestfjörðum hafa margir svipaða sögu að segja. Ferðamenn treysta sér misvel í akstur um Breiðafjarðarströnd Vestfjarða og á því ber að þeir ákveði að sleppa Vestfjörðunum í heild sinni geti þeir ekki siglt aðra leiðina eða báðar. Birna Mjöll segir starfsemina í Breiðuvík verða af talsverðu fé vegna afbókana af völdum vandræða með Breiðafjarðarferjuna. Sömu sögu er að segja af rekendum Hótels Flateyjar sem er ansi háð siglingum um Breiðafjörðinn af augljósum ástæðum. Krefjast afsagnar ráðherra Flateyingar eru mjög óánægðir með stöðu mála og stóðu meðal annars fyrir mótmælum úti í eynni á dögunum. Björn Samúelsson, einn skipuleggjenda mótmælanna og varamaður í sveitarstjórn Reykhólahrepps, segir fjölda ferðamanna hafa þegar átt bókaða ferð með Baldri í júní sem þarf að endurgreiða svo hægt sé að endurbóka ferð með Særúnu, ferjunni sem hleypur í skarðið. Hann er einnig meðal aðstandenda að undirskriftalista þar sem þess er krafist að Baldri verði skilað í Breiðafjörðinn sem fyrst. Þess er einnig krafist að Eyjólfur Ármannssonn innviðaráðherra og þingmaður Norðvesturkjördæmis segi af sér „enda ófær um að verja hagsmuni kjördæmisins“. Stefnt er að 4600 undirskriftum, sem er einmitt kjörfylgi Eyjólfs í kjördæminu. Mikið tekjutap Birna Mjöll í Breiðuvík segir litla fyrirtækið sitt hafa orðið af hundruðum þúsunda vegna afbókana. „Og svo á aftur og aftur að taka ferjuna af okkur. Nú er bara nóg komið,“ segir hún. Birna Mjöll, annar eiganda hótelsins í Breiðuvík.Hótel Breiðavík Ferjumálin eru ekki þau einu sem há starfseminni á Hóteli Breiðuvíkur um þessar mundir en sólmyrkvinn í ágúst er að laða þvílíkan fjölda ferðamanna og alþjóðlega athygli á litlu byggðirnar á sunnanverðum Vestfjörðum að Birna talar frekar um hann sem náttúruhamfarir en stjarnfræðiatburð. Tölvuþrjótar brutust inn í bókunarkerfi hótelsins í síðasta mánuði og fóru að selja gistipláss sem þegar var bókað á háar upphæðir. Þeir hafa sömuleiðis bryddað upp á ýmsum nýjungum og eru farnir að selja norðurljósaskoðunarferðir yfir hásumarið og dagsferðir frá Látrabjargi á Mývatn. Af Patreksfirði.Vísir/Vilhelm Andri Fannar Helgason á Hótel West við Aðalstræti á Patreksfirði horfir einnig upp á afbókanir. „Þetta er mjög slæmt fyrir okkur í ferðaþjónustunni fyrir vestan. Því miður er ofboðslega mikið um þetta,“ segir hann. „Rosalega mikið af afbókunum“ Jónas Sigurður Kristinsson eigandi Gistiheimilis Tálknafjarðar heldur í vonina að viðgerðum á Herjólfi ljúki samkvæmt áætlun en er misvongóður. „Það er rosalega mikið af afbókunum. Þetta telur á tugum. Vandamálið virðist vera að allavega hérna á sunnanverðum Vestfjörðum að meirihlutinn af túristum sem eru að koma eru að koma frá Snæfellsnesi. Kortaforritin virðast segja að eina leiðin hingað vestur sé Baldur. Það virðist ekki vera hægt að útskýra þetta fyrir túristunum að það sé önnur leið.“ „Það voru sjö afbókanir hjá mér í nótt. Fjórar fyrir kvöldið,“ segir hann. Hann er skipstjórnarmenntaður og spyr sig einnig hvers vegna Herjólfur II, sem á að vera varaskip til siglinga milli lands og Eyja, liggi sem fastast í Reykjavík þegar á því er þörf. „Af hverju er ekki löngu búið að grípa í það að gera við þetta skip til að það sé ferðahæft?“
Flatey Ferðaþjónusta Ferjan Baldur Vesturbyggð Reykhólahreppur Stykkishólmur Samgöngumál Látrabjarg Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Sjá meira