Halli ríkissjóðs eykst um tugi milljarða milli ára Árni Sæberg skrifar 11. júní 2026 15:19 Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra. Vísir/Anton Brink Samkvæmt bráðabirgðamati er afkoma hins opinbera á fyrsta ársfjórðungi 2026 áætluð neikvæð um 23,7 milljarða króna, sem jafngildir 1,8 prósentum af vergri landsframleiðslu tímabilsins. Til samanburðar er áætlað að afkoma hins opinbera hafi verið nálægt jafnvægi á fyrsta ársfjórðungi 2025, þótt heildarafkoma þess árs sé metin neikvæð um 120,1 milljarð króna.
Í tilkynningu þess efnis á vef Hagstofu Íslands segir að talnaefni fyrir 2025 byggi enn á bráðabirgðagögnum og niðurstöður muni því taka breytingum þegar uppgjör liggur fyrir í september næstkomandi. Hagstofan vekur athygli á því að samhliða útgáfu bráðabirgðamats hafi farið fram endurskoðun á talnaefni, sem hafi áhrif á skatttekjur ríkissjóðs og þar með afkomu hins opinbera árin 2023-2025. Í heild sé áætlað að tekjur hins opinbera hafi aukist um 3,8 prósent frá fyrsta ársfjórðungi 2025. Þar af bendi bráðabirgðatölur til þess að skatttekjur séu að aukast um 1,9 prósent á tímabilinu á meðan aðrar tekjur hins opinbera aukist um 11,5 prósent. Hærri arðgreiðslur frá fyrirtækjum í eigu ríkissjóðs séu helsta skýring á aukningu í öðrum tekjum hins opinbera. Vaxtagjöld jukust um fimmtung Áætlað sé að heildarútgjöld hafi aukist um 8,3 prósent á fyrsta ársfjórðungi 2026. Þar vegi þyngst að áætluð útgjaldaaukning vegna félagslegra tilfærsla til heimila sé 13,0 prósent, vegna vaxtagjalda 20,4 prósent og 8,3 prósent vegna samneyslu. Vert sé að hafa í huga að afmörkun hins opinbera í þjóðhagsreikningum og í talnaefni um fjármál hins opinbera miðist við evrópska þjóðhagsreikningastaðalinn (ESA2010). Með hinu opinbera teljist meðal annars lánasjóðir ríkissjóðs, sem hafi veruleg áhrif á vaxtatekjur og gjöld þess. Í greinagerð sem gefin var út 30. nóvember 2020 og er aðgengileg á vef Hagstofunnar sé fjallað sérstaklega um aðferðafræðilegan grundvöll geiraflokkunar og úrlausn álitamála sem snúa að flokkun fyrirtækja og stofnana í eigu ríkisins. Fengu uppfærð gögn Samhliða birtingu fjármála hins opinbera fyrir fyrsta ársfjórðung 2026 birti Hagstofa Íslands niðurstöður endurskoðunar á skatttekjum ríkissjóðs árin 2023 til 2025. Frá því bráðabirgða tölur fyrir árið 2025 voru birtar 12. mars síðastliðinn hafi Hagstofunni borist uppfærð gögn um þróun tekna af sköttum á vöru og þjónustu fyrir árin 2023 til 2025. Samkvæmt uppfærðum gögnum sé ljóst að skatttekjur höfðu verið ofmetnar fyrir árið 2024 í fyrri útgáfum. Nú hafi verið tekið tillit til þess og tímaröð leiðrétt á grundvelli ítarlegri gagna og viðbótarupplýsinga. Leiðréttingin hafi áhrif á tekjur og þar af leiðandi á afkomu hins opinbera árin 2023 til 2025. Jafnframt hafi uppfærð gögn um skatttekjur ársins 2025 verið tekin til greina og bráðabirgðatölur endurmetnar í samræmi við það.
Rekstur hins opinbera Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Efnahagsmál Alþingi Mest lesið Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum Viðskipti innlent „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Viðskipti innlent Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés Viðskipti erlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Fleiri fréttir Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Sjá meira