Maður dagsins á HM: Af hverju fór Messi að gráta og átti að reka hann út af? Sindri Sverrisson skrifar 17. júní 2026 10:03 Lionel Messi þurrkaði tárin í treyjuna eftir að hafa komið Argentínu í 1-0. Getty/Ulrik Pedersen Lionel Messi felldi tár eftir að hann skoraði fyrsta markið sitt af þremur í 3-0 sigri Argentínu gegn Alsír á HM í fótbolta í nótt. Sumir sparkspekingar töldu hann eiga að fá rautt spjald í leiknum en Messi endaði á að jafna markametið í sögu HM.
Það er engum blöðum um það að fletta hver var maður dagsins á HM. Erling Haaland skoraði vissulega tvennu í sínum fyrsta leik á stórmóti og Kylian Mbappé skoraði einnig tvö. Messi toppaði þá hins vegar með þrennu og sýndi að þrátt fyrir að hann verði 39 ára í næstu viku og hafi spilað í bandarísku deildinni síðustu þrjú ár þá er hann enn sami snillingur og leiddi Argentínu að heimsmeistaratitlinum 2022, eftir að hafa rakað inn titlum hjá Barcelona og einnig PSG. Fyrirliðinn skoraði fyrsta markið sitt, í 200. landsleiknum, með frábæru skoti á 18. mínútu áður en liðsfélagarnir hópuðust að honum til að fagna. Sjá mátti Messi þurrka tárin eftir á og hann var spurður út í þetta eftir leik. „Af hverju fór ég að gráta? Það snerist um eitthvað allt annað en fótbolta,“ sagði Messi. „Ég gekk í gegnum erfiða daga en ég er þakklátur öllu starfsliðinu og liðsfélögum mínum sem stóðu alltaf þétt við bakið á mér og gáfu mér mikinn styrk til að komast í gegnum þetta,“ sagði Messi. ❤️🩹 Leo Messi: “I cried after the first goal, yes… but it was something completely unrelated to football”.“I went through some difficult days, but I’m grateful to the entire delegation and my teammates because they were always by my side, giving me a lot of strength”. pic.twitter.com/HMJXmnvDtl— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) June 17, 2026 Þessi fyrsta HM-þrenna Messi, á hans sjötta heimsmeistaramóti, gerði hann jafnan Miroslav Klose yfir markahæstu menn í sögu HM, með 16 mörk. Hann er fyrsti maðurinn til að ná að spila á sex heimsmeistaramótum en ljóst er að Cristiano Ronaldo á eftir að ná því líka. Árangur Messi vekur ekki síður athygli í ljósi þess að í síðasta mánuði var honum skipt af velli í leik með Inter Miami vegna vöðvameiðsla. Hann jafnaði sig í tæka tíð til að geta tekið þátt í síðasta leiknum fyrir HM, vináttulandsleiknum við Ísland, og skoraði úr víti sem hann átti stóran þátt í að næla í, strax eftir að hann kom inná sem varamaður í 3-0 sigri. Ekki voru þó allir sáttir við að Messi fengi að klára leikinn í nótt því snemma í seinni hálfleik braut hann af sér og kölluðu sumir eftir því að hann fengi rautt spjald. Messi braut þá á Aissa Mandi og fór nokkuð hátt með takkana en ekki af þannig afli að dómarinn teldi hann verðskulda spjald. "It's 100% a red card for Lionel Messi. It should've been."Ale Moreno and Nedum Onuoha react to Messi's challenge against Algeria's Aïssa Mandi. pic.twitter.com/0h2dMLYk4l— ESPN FC (@ESPNFC) June 17, 2026 „Þetta hefði sennilega átt að vera rautt spjald,“ sagði Nedum Onuoha, fyrrverandi leikmaður Manchester City, á ESPN. „Ég held að dómarinn hafi misst af þessu og ég skil að það gerist en að VAR-dómarinn sjái þetta og hugsi „niii, þetta er allt í lagi“... Mér finnst þetta verðskulda rautt spjald,“ sagði Onuoha og félagi hans, Ale Moreno, tók undir: „Þetta hefði hundrað prósent átt að vera rautt spjald á Lionel Messi.“
HM 2026 í fótbolta Tengdar fréttir Tárvotur Messi jafnaði HM markametið með þrennu Hinn 38 ára gamli Lionel Messi sýndi það og sannaði í nótt af hverju hann er talinn vera besti knattspyrnumaður sögunnar. Messi skoraði þrennu í 3-0 sigri Argentínu gegn Alsír og jafnaði um leið markamet á HM. 17. júní 2026 07:22 Mest lesið Infantino boðar neyðarfund Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Íslenski boltinn Mudryk fær séns til að sanna sig á ný Enski boltinn Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Íslenski boltinn „Þetta er búið, við erum góðir“ Enski boltinn „Það er erfitt að eiga við okkur“ Íslenski boltinn Trabzonspor í formlegum viðræðum við Salah Fótbolti Með fullt hús stiga á leið í úrslitakeppni Handbolti Fleiri fréttir United ekki lengi þjálfaralaust „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Það er erfitt að eiga við okkur“ Infantino boðar neyðarfund Trabzonspor í formlegum viðræðum við Salah „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Sakar Infantino um fjárkúgun Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Sjáðu Blika klúðra fjórum vítum Þúsundir syrgðu Baresi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Stefán Teitur er nýr fyrirliði Hannover Arsenal nálgast kaup á Guimaraes HM hetjan fékk magnaðar móttökur hjá nýju liði Paredes hleypti öllu aftur í bál og brand Uppgjörið: Breiðablik - Aktobe 1-3| Klúðruðu öllum fjórum vítaspyrnunum Wenger tjáir sig loks: Segist ekkert hafa vitað af áætlunum Infantinos Kristall sá til þess að viðtalið fór aldrei í loftið FIFA segir ekkert til í fréttum af neyðarsímtölum Infantinos til Trumps Metfjöldi nýrra þjálfara Viðurkennir að VAR hafi misst af því þegar leikmaður Brann sýndi puttann Gunnar Vatnhamar sagður á förum frá Víkingi Sjáðu alla dramatíkina á Hlíðarenda Semenyo spenntur fyrir því að starfa undir nýja þjálfaranum Mun Vini fara til Arsenal ef hann semur ekki við Real Madrid? „Vorum miklu betri allan tímann“ „Sigurinn var innan seilingar“ Uppgjörið: Valur - Stjarnan 2-3 | Örvar tryggði langþráðan og mikilvægan sigur Sjá meira
Tárvotur Messi jafnaði HM markametið með þrennu Hinn 38 ára gamli Lionel Messi sýndi það og sannaði í nótt af hverju hann er talinn vera besti knattspyrnumaður sögunnar. Messi skoraði þrennu í 3-0 sigri Argentínu gegn Alsír og jafnaði um leið markamet á HM. 17. júní 2026 07:22