Meloni segir Trump skrökva upp á sig Agnar Már Másson skrifar 20. júní 2026 10:38 Meloni, sem er formaður fjarhægri flokksins Bræðra Ítalíu, lætur Trump heyra það eftir að hann sagði hana hafa sárbeðið hann um ljósmynd saman. Getty Ummæli Bandaríkjaforseta um ítalska forsætisráðherrann Giorgiu Meloni hafa hleypt illu blóði í ítalska diplómata. Utanríkisráðherra Ítalíu hefur aflýst heimsókn sinni til Bandaríkjanna vegna málsins.
Þegar Donald Trump var aftur svarinn inn sem Bandaríkjaforseti í janúar 2025 var Meloni eini Evrópuleiðtoginn á gestalistanum enda hefur hún verið einn af hans dyggustu bandamönnum í álfunni síðustu ár. En nú virðist milliríkjasamband þeirra í uppnámi eftir að ítalski forsætisráðherrann sakaði Trump í gær um að spinna um sig sögur þegar hann sagði í viðtali við ítalska miðilinn La7- TV að Meloni hefði sníkt mynd með sér. „Hún sárbað mig um að taka með sér mynd,“ sagði Trump um Meloni eftir leiðtogafund G7-ríkjanna. „Ég vorkenndi henni. Hún hefur sennilega verið glöð að ég hafi talað við hana.“ „Hún sárbað mig um að taka með sér mynd. Ég vorkenndi henni. Hún hefur sennilega verið glöð að ég hafi talað við hana.“Getty Meloni kvaðst í samfélagsmiðlafærslu vera orðlaus yfir ummælum Trumps og birti myndskeið af sér þar sem hún sagði þau kalla á hiklaus viðbrögð af sinni hálfu. „Ummæli Donalds Trump Bandaríkjaforseta eru hreinn uppspuni. Satt best að segja er ég slegin. Ég skil ekki hvers vegna forseti Bandaríkjanna hagar sér svona gagnvart bandamönnum sínum og þetta er ekki í fyrsta sinn sem þetta gerist,“ sagði Meloni í myndskeiði á X. Io e l’Italia non imploriamo mai. pic.twitter.com/sTpKlqWB67— Giorgia Meloni (@GiorgiaMeloni) June 19, 2026 „Ég get aðeins sagt hvað það er mikil skömm að hann hafi ekki sama metnað gagnvart óvinum hins vestræna heims, gagnvart óvinum Bandaríkjanna, leiðtogum hverra hann virðist talsvert bónbetri,“ bætti Meloni við. Síðar í gær ítrekaði Trump fyrri gagnrýni í garð Meloni. „Ég vil ekkert eiga hana að sem aðdáanda,“ sagði Trump, „vegna þess að hún var ekki til staðar – rétt eins og NATO-hópurinn – hvað varðar Hormússund.“ Þetta er ekki í fyrsta sinn sem ósætti hefur orðið milli Trump og Melóní. Fyrr á þessu ári kom Meloni páfanum Leó XIV til varnar eftir að Trump hjólaði í hann fyrir að gagnrýna stríðið í Íran.
Ítalía Donald Trump Bandaríkin Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Sjá meira