Sport

Elísa fór kíló­metrana 80 á undir níu klukku­stundum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Elísa Kristinsdóttir vann sitt annað mót á Ítalíu á árinu. 
Elísa Kristinsdóttir vann sitt annað mót á Ítalíu á árinu.  Vísir/Ívar

Hlaupadrottningin Elísa Kristinsdóttir gerði sér lítið fyrir og vann hið áttatíu kílómetra Lavaredo-utanvegahlaup á Ítalíu í gær.

Nú er staðfestur tími kominn í ljós og var hún 8:59:57 að hlaupa 80 kílómetra í utanvegahlaupi. Hún var tæplega 13 mínútum sneggri en næsta kona. Marie Goncalves var á 9:12:49.

Aðstæður voru mjög erfiðar enda er hitabylgja að ganga yfir Evrópu um þessar mundir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×