Afhjúpa alþjóðlegt net manna sem byrla og brjóta gegn konum Hólmfríður Gísladóttir skrifar 3. júlí 2026 08:38 Líkt og gerðist í máli Gisele Pelicot eru mörg brotanna framin í nánum og langvarandi samböndum. Getty/Arnold Lögregluyfirvöld á Bretlandseyjum segjast hafa afhjúpað alþjóðlegt tengslanet þar sem menn eiga samskipti á internetinu og skipuleggja nauðganir og önnur kynferðisbrot gegn konum, eftir að þeim hefur verið byrlað.
Gerendurnir eru meðal annars sagðir eiga samskipti til að skipuleggja brot sín og til að taka þau upp. Þá segja yfirvöld áberandi að í mörgum tilvikum sé um að ræða brot í nánum og oft langvarandi samböndum, líkt og átti sér stað í tilfelli Giséle Pelecot í Frakklandi. Stofnunin National Crime Agency segist hafa borið kennsl á yfir 270 gerendur í tengslum við rannsókn sína og hafa sent 210 upplýsingapakka til löggæsluyfirvalda á Bretlandseyjum og víðar. Raunar hafa um 90 prósent málanna varðað brot utan Bretlands. Á Bretlandseyjum hefur verið ráðist í að minnsta kosti fjórtán rannsóknir í kjölfarið og átta þolendum bjargað. „Við höfum séð notendur eiga í virkum samskiptum við aðra einstaklinga, þar sem þeir ræða í smáatriðum hvernig þeir hyggjast byrla fyrir fórnarlömbum sínum í þeim tilgangi að fremja gróf kynferðisbrot gegn þeim,“ hefur Guardian eftir Nigel Leary, aðstoðarforstjóra NCA. Hann segir menn eiga samtöl um það hvernig sé best að bera sig að við byrlunina, bjóða hvor öðrum að taka þátt í misnotkuninni og óska eftir myndskeiðum sem sýna ákveðnar athafnir. Þá deili þeir einnig ráðleggingum um það hvernig tryggja megi að þeir komist upp með brotin. Leary segir vekja athygli að ekki sé um einangruð tilvik að ræða, eins og menn töldu fyrst þegar Pelicot-málið komst í hámæli, heldur sé um skipulagða brotastarfsemi að ræða. Margt bendi til þess að margir hópar af þessu tagi grasseri sem lögregla hefur ekki enn borið kennsl á. Europol greindi frá því í gær að stofnunin hefði ráðist í aðgerðir með löggæsluyfirvöldum í sjö ríkjum þar sem borin hefðu verið kennsl á 156 þolendur og gerendur.
Kynferðisofbeldi Mál Dominique Pelicot Bretland Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Fleiri fréttir Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Sjá meira