Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Eiður Þór Árnason skrifar 6. júlí 2026 18:40 (f.h) Natasha Slayton, Paula van Oppen, Simone Battle, Emmalyn Estrada og Lauren Bennett í hópnum G.R.L. árið 2013. Wikimedia/CC 3.0/Adam Bielawski Tónlistarkonan Lauren Bennett er látin, 37 ára að aldri. Hún var hluti af sveitunum Paradiso Girls og G.R.L. auk þess að vera þekkt fyrir framkomu sína í laginu Party Rock Anthem sem kom út með LMFAO árið 2011. „
Hjörtu okkar eru brotin og við getum ekki með orðum lýst hversu miklu máli hún skipti fyrir okkur,“ segir í yfirlýsingu á Instagram frá Natasha Slayton, Emmalyn Estrada og Paula van Oppen sem skipuðu G.R.L. ásamt Bennet. „Við munum að eilífu varðveita ástina, hláturinn og þær óteljandi minningar sem hún gaf okkur. Falleg sál hennar snerti líf svo margra og hennar verður sárt saknað og hún verður elskuð að eilífu.“ Variety greinir frá en ekkert hefur verið sagt um dánarorsök. Lauren Bennett hóf feril sinn í tónlistarbransanum sem meðlimur Paradiso Girls sem Robin Antin, stofnandi Pussycat Dolls, myndaði. Þessi fimm manna sveit vakti athygli árið 2009 með útgáfu fyrstu smáskífu sinnar Patron Tequila með Eve og Lil’ Jon. Sveitin leystist upp eftir að plötufyrirtækið Interscope rifti samningi sínum við þær ári síðar. Bennett gekk þá til liðs við sveitina G.R.L., sem kom fram í laginu Wild Wild Love með Pitbull árið 2014 og gaf út plötu sama ár. Á þeirri plötu mátti finna smáskífuna Ugly Heart sem komst á topp 20 lista í Bretlandi, Ástralíu, Nýja-Sjálandi og víðar. Gekk til liðs við Paradiso sautján ára Bennett fæddist í Meopham í Kent á Englandi og keppti ung í hæfileikakeppnum. Fjórtán ára gömul myndaði hún dúett með vinkonu sinni og kom fram á krám og börum áður en hún tók þátt í raunveruleikaþáttunum X Factor, að því er fram kemur í frétt Variety. Þar komst hún í tólf keppenda úrslit áður en hún var send heim. Frammistaða hennar í þáttunum leiddi til þess að hún fékk símtal og var boðið í prufu fyrir Paradiso Girls. Þegar hún komst í hópinn flutti hún til Los Angeles í Bandaríkjunum aðeins 17 ára gömul.
Andlát England Bretland Tónlist Hollywood Mest lesið Diljá Mist á lausu Lífið Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Sahara Ray látin Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Píparapæja selur pent „penthouse“ Lífið Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Costanza á klakanum Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Lífið Fleiri fréttir Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Sjá meira