Fótbolti

Segir að það sé verið að dæma í hag Argentínu á HM

Andri Broddason skrifar
Mostafa Zico skoraði tvö mörk í gær gegn Argentínu en aðeins annað markið fékk að standa.
Mostafa Zico skoraði tvö mörk í gær gegn Argentínu en aðeins annað markið fékk að standa. Buda Mendes/Getty Images

Mostafa Zico, leikmaður Egyptalands, sagði eftir tapið gegn Argentínu að það væri ljóst að mótið væri spillt. Hann sagði að dómarinn hefði ekki verið sanngjarn í ákvörðunartöku leiksins.

Mostafa Zico má vera svekktur eftir að hafa verið sleginn úr heimsmeistaramótinu í fótbolta gegn Argentínu í gær. Zico skoraði annað mark Egyptalands en á undan því skoraði hann mark sem var dæmt af. Egyptar vilja meina að markið hafi verið ranglega dæmt af.

„Dómarinn var ekki sanngjarn. Óréttlætið var augljóst,“ sagði Zico í viðtali við BBC eftir leik og var ljóst að hann var í uppnámi.

„Við stóðum okkur vel í byrjun leiks en leikurinn var ekki sanngjarn alveg frá byrjun. 2-0 forysta er ekki nóg til að sigra Argentínu. Það er ljóst að verið er að hagræða úrslitum í mótinu en guð mun nægja okkur.“

Í leiknum var mark Egypta dæmt af vegna brots á leikmanni Argentínu í aðdraganda marksins. Einhverjum fannst það ekki vera brot en svipað atvik átti sér stað í þriðja marki Argentínu þegar brotið var á leikmanni Egyptalands í aðdraganda marksins. Það atvik var hins vegar ekki skoðað og sigurmarkið stóð.

Egyptaland hefur aldrei áður komist í 8-liða úrslit heimsmeistaramótsins og var þetta aðeins í annað skiptið sem liðið komst í 16-liða úrslit. Því náðu Egyptar árið 1934 en þá voru aðeins sextán lið sem kepptu.

Argentína er nú komið í 8-liða úrslit heimsmeistaramótsins og mætir Sviss.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×