„Þessi sigur sýnir hvað hópurinn er þéttur“ Hjörvar Ólafsson skrifar 12. júlí 2026 23:17 Jóhannes Karl Guðjónsson og lærisveinar hans hjá FH hafa náð í níu stig af síðustu 15 mögulegum. Vísir / Hulda Margrét Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FH, var sáttur við karakterinn, spilamennskuna og liðsheildina hjá liðinu sem hann segir hafa lagt grunninn að sigrinum gegn Val í kvöld. FH er nú taplaust í síðustu fimm deildarleikjum sínum. „
Frammistaðan í þessum leik var bara heilt yfir nokkuð góð. Við vorum flottir í fyrri hálfleik og fengum nokkur færi til þess að skora tvö til þrjú mörk. Valsmenn komu sterkir inn í seinni hálfleik og náðu yfirhöndinni en við náðum svo vopnum okkar aftur og sigldum sigrinum heim,“ sagði Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FH, að leik loknum. „Það sem gleður mig mest er að við höldum áfram að pressa á réttum mómentum og vorum hugrakkir í spilinu þegar það átti við. Bæði í fyrri hálfleik og svo aftur eftir að Valur náði tökum á leiknum í upphafi seinni hálfleiks,“ sagði Jóhannes Karl enn fremur. „Við fáum tvö dauðafæri áður en við skorum mörkin tvö sem Gils gerir vel í. Við fengum ferskar lappir inn á völlinn með skiptingunum. Þeir sem komu inná í dag voru gjörsamlega frábærir og hjálpuðu okkur að ná í sigurinn. Það er góður andi í leikmannahópnum þrátt fyrir rýra stigasöfnun. Það sást í dag hvað við erum með stóran, flottan og þéttan hóp,“ sagði hann stoltur um leikmenn sína. „Strákarnir eiga hrós skilið fyrir vinnusemi, samheldni og spilamennskuna. Sem dæmi um það er varnarleikurinn hjá Gils sem hjálpaði Baldri Kára á varnarhelmingnum auk þess að skora tvö góð mörk. Við sýndum allir karakter og brugðumst vel við alls konar aðstæðum í þessum leik sem sýnir liðsheildina sem er í hópnum,“ sagði Jóhannes Karl.
Íslenski boltinn Besta deild karla FH Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Liverpool - Chelsea | Stórleikur í deildarbikarnum Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Sjá meira