Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. júlí 2026 21:02 Rio Ngumoha er langt frá því að vera eini táningurinn í fyrsta byrjunarliði Andoni Iraola. Getty/Gaspafotos Spánverjinn Andoni Iraola stýrir Liverpool í fyrsta sinn í kvöld þegar liðið mætir Sunderland í æfingaleik í Bandaríkjunum. Hann gefur mörgum ungum leikmanni risastórt tækifæri.
Liverpool og Sunderland mætast í kvöld á Geodis Park í kántrýborginni Nashville. Iraola hefur valið fyrsta byrjunarliðið sitt sem má sjá hér fyrir neðan.Það vantar auðvitað leikmenn sem fóru langt á heimsmeistaramótinu í sumar og hafa ekki skilað sér til baka eftir sumarfrí. Joe Gomez er fyrirliði Liverpool í þessum fyrsta leik. Reynsluboltarnir sem fá að byrja leikinn eru menn eins og markvörðurinn Giorgi Mamardashvili. Curtis Jones, Kostas Tsimikas og Jeremie Frimpong en meðal varamanna eru öflugir leikmenn eins og Dominik Szoboszlai, Federico Chiesa og Milos Kerkez. Í byrjunarliðinu eru ungir leikmenn eins og James McConnell, Will Wright, Kieran Morrison og Mor Talla Ndiaye. Ndiaye er 18 ára senegalskur miðjumaður, Wright er 18 ára framherji, Morrison er 19 ára norðurírskur miðjumaður og McConnell er 21 árs miðjumaður. Hinn 17 ára Rio Ngumoha er í byrjunarliðinu sem og hinn 23 ára Harvey Elliott sem lenti í martröð hjá Aston Villa á síðustu leiktíð. Það eru því fjórir táningar sem byrja fyrsta leik Iraola með Liverpool.Iraola hætti með Bournemouth eftir síðasta tímabil og fljótlega varð ljóst að hann yrði eftirmaður Arne Slot hjá Liverpool.Liverpool mætir einnig Wrexham og Leeds United í þessari Bandaríkjaferð sinni og spilar svo heimaleiki við Mónakó og Como þegar það snýr aftur heim til Liverpool.Fyrsti leikur tímabilsins er síðan á móti Newcastle United á útivelli 23. ágúst næstkomandi. The Reds to take on Sunderland in Nashville 🔴Watch the game LIVE on All Red Video:— Liverpool FC (@LFC) July 25, 2026
Enski boltinn Liverpool FC Mest lesið Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Íslenski boltinn Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn City marði Coventry Enski boltinn Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Norðmaðurinn fjórði en reif kjaft: „Hvaða lúsera er ég að keppa við?“ Sport Fleiri fréttir Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Sjá meira