Íslendingaslagur endaði jafn í Danmörku Andri Broddason skrifar 1. ágúst 2026 18:16 Ísak Snær Þorvaldsson og Mikael Anderson mætturst þegar Lyngby og AGF gerðu jafntefli í dönsku úrvalsdeildinni. Getty Davíð Helgi Aronsson og Ísak Snær Þorvaldsson voru í byrjunarliði Lyngby sem mætti Mikael Anderson og félögum í dönsku úrvalsdeildinni. Leikurinn endaði jafn eftir mikla dramatík í lok leiksins.
Lyngby tók á móti AGF í annarri umferð dönsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í dag. Íslendingar mættust í leiknum þar sem Davíð Helgi Aronsson, Ísak Snær Þorvaldsson og Daníel Freyr Kristjánsson spila fyrir Lyngby en Mikael Anderson og Tómas Óli Kristjánsson spila fyrir AGF. AGF náði forystu leiksins á 33. mínútu eftir mark úr vítaspyrnu. Dómarinn dæmdi fyrst ekki vítaspyrnu en var sendur í skjáinn og leiðrétti dóminn. Kristian Arnstad fór á punktinn og skoraði örugglega úr vítaspyrnunni. Lyngby lagði ekki árar í bát eftir að hafa lent undir í leiknum og náði liðið loks að jafna metin á 67. mínútu þegar Casper Winther skoraði. Stuttu eftir markið kom Frederik Gytkær á völlinn fyrir Ísak Snæ og seinna meir kom Daníel Freyr Kristjánsson einnig á völlinn. Undir lok leiksins komst Lyngby í forystu eftir að Gytkjær skoraði úr vítaspyrnu þegar aðeins tvær mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma. Lyngby virtist vera að sigla heim þremur stigum gegn ríkjandi Danmerkurmeisturunum en svo reyndist ekki. Jens Jønsson náði að jafna metin í uppbótartíma leiksins með frábærum skalla. Frederik Emmery gaf frábæra sendingu í teiginn sem Jønsson skallaði vel í markið. Leikurinn endaði því með dramatísku jafntefli 2-2. Eftir tvær umferðir hefur hvorugt liðið náð sigri. AGF hefur fengið jafntefli í báðum leikjunum en Lyngby tapaði fyrsta leik sínum í deildinni.
Danski boltinn Íslendingar erlendis Mest lesið „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn Komu lykilleikmanni fljótt til varnar Körfubolti Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti „Guð morning!“ Enski boltinn Uppgjörið: KR-Breiðablik 8-3 | Ellefu mörk og markamet í Vesturbænum Íslenski boltinn Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Körfubolti Lárus Orri hættur með ÍA og Heimir sagður á leiðinni Íslenski boltinn Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Siggi Raggi getur gert NSÍ að Færeyjameisturum í dag Infantino segist njóta gríðarlegs stuðnings Vafi um réttan markafjölda Ronaldo eftir umdeilt mark „Við munum reyna að vernda hann fyrir sjálfum sér“ Strákarnir hans Freys klífa upp töfluna Markahæsta umferð sögunnar De Zerbi kátur eftir leik: „Nú er þetta fullmótað lið“ Sjá meira