Meira en Kaupmannahafnarskilyrðin Erna Bjarnadóttir skrifar 5. ágúst 2026 09:17 Í grein sem birtist á Vísi 4. ágúst undir yfirskriftinni „Aðlögun að hverju? Staða Íslands í aðildarferli Evrópusambandsins“ fjallar Ásta Guðrún Helgadóttir um aðildarferli Íslands að Evrópusambandinu. Hún bendir á að Ísland hafi þegar uppfyllt Kaupmannahafnarskilyrðin þegar sótt var um aðild og að IPA-styrkir hafi hér farið til annarra verkefna en uppbyggingar lýðræðis og réttarríkis. Til að fá heildarmynd af aðildarferlinu þarf þó einnig að skoða það sem tekur við þegar Kaupmannahafnarskilyrðunum hefur verið fullnægt. Ísland er að mörgu leyti frávikstilvik í stækkunarferli Evrópusambandsins. Landið uppfyllir Kaupmannahafnarskilyrðin, hefur í gegnum EES þegar innleitt stóran hluta þess regluverks Evrópusambandsins sem lýtur að innri markaðnum og yrði fyrsta umsóknarríkið frá stækkun Evrópusambandsins árið 1995 sem gengi inn í sambandið sem nettógreiðandi en ekki nettóþegi. Af þessum sökum var eðlilegt að IPA-styrkir til Íslands væru annars eðlis en styrkir til ríkja sem enn glíma við grundvallarkröfur um lýðræði, réttarríki og stjórnsýslu. Þetta endurspeglar einfaldlega að Ísland uppfyllti Kaupmannahafnarskilyrðin áður en sótt var um aðild. „Acquis“ er meira en tilskipanir og reglugerðir Í umræðunni er oft látið eins og acquiscommunautaire sé einfaldlega safn reglugerða og tilskipana Evrópusambandsins. Svo er ekki. Hugtakið nær til allra þeirra réttinda og skyldna sem aðildarríki Evrópusambandsins skuldbinda sig til að virða. Þar undir falla meðal annars stofnsáttmálar sambandsins, afleidd löggjöf, dómaframkvæmd Evrópudómstólsins, alþjóðasamningar sem Evrópusambandið hefur gert og þær meginreglur og stjórnsýsluframkvæmd sem mótast hafa innan sambandsins. Rýniferlið snerist því ekki einungis um að bera saman íslensk lög við einstakar reglugerðir eða tilskipanir. Verkefnið var að meta að hvaða marki íslensk löggjöf, stjórnsýsla og stofnanir væru í samræmi við acquis í hverjum samningskafla fyrir sig og hvaða breytingar þyrfti að gera áður en unnt yrði að ljúka viðræðum um viðkomandi kafla. Þess vegna fól rýniferlið ekki aðeins í sér samanburð við einstakar reglugerðir og tilskipanir heldur heildarmat á því hvort umsóknarríkið væri reiðubúið til að axla skuldbindingar aðildar. Kaupmannahafnarskilyrðin eru upphafið en ekki endapunkturinn Kaupmannahafnarskilyrðin eru grundvallarforsenda aðildar að Evrópusambandinu. Umsóknarríki verður að sýna fram á að það búi við stöðugt lýðræði, réttarríki, virðingu fyrir mannréttindum og virkt markaðshagkerfi áður en eiginlegar aðildarviðræður geta hafist. Þegar þeirri kröfu hefur verið fullnægt lýkur ferlinu hins vegar ekki. Þvert á móti tekur þá við sá hluti aðildarferlisins sem felur í sér rýni á löggjöf og stjórnsýslu umsóknarríkisins. Í þeirri rýni ber framkvæmdastjórn Evrópusambandsins löggjöf, stjórnsýslu og stofnanaramma umsóknarríkisins saman við acquiscommunautaire, metur hvar samræmi er fyrir hendi og hvar breytinga er þörf. Á grundvelli þeirrar vinnu eru ákveðin opnunarskilyrði einstakra samningskafla og síðar lokunarskilyrði sem þarf að uppfylla áður en viðræðum um hvern kafla verður lokið. Það var þetta stig aðildarferlisins sem Ísland stóð frammi fyrir á árunum 2010–2013. Sérstaða Íslands fólst ekki í því að vera undanþegið þessu ferli heldur í því að geta hafið það frá annarri stöðu en flest önnur núverandi umsóknarríki. IPA-styrkir og samanburður við önnur umsóknarríki Þau umsóknarríki sem oftast eru nefnd til samanburðar við Ísland eru enn að vinna að því að uppfylla Kaupmannahafnarskilyrðin og eru því ekki samanburðarhæf við Ísland að þessu leyti. IPA-styrkir í þessum ríkjum beinast eðlilega að því að styðja við uppbyggingu lýðræðis, réttarríkis og stjórnsýslu þannig að þau geti uppfyllt grunnskilyrði aðildar. Að uppfylltum Kaupmannahafnarskilyrðunum standa þessi ríki hins vegar frammi fyrir sama stigi aðildarferlisins og Ísland stóð frammi fyrir á árunum 2010–2013. Þá hefst rýni á löggjöf og stjórnsýslu umsóknarríkisins, metið er hvort skilyrði séu til að opna einstaka samningskafla og síðar hvort þeim verði lokað á grundvelli þess að umsóknarríkið uppfylli þær kröfur sem gerðar eru til aðildar á hverju málefnasviði. IPA-styrkirnir endurspegla annars vegar að Ísland þurfti ekki að verja fjármunum til að uppfylla Kaupmannahafnarskilyrðin og hins vegar að undirbúa stjórnsýsluna fyrir það aðildarferli sem tók við, meðal annars með eflingu þýðingamiðstöðvar, þróun tölfræðivinnslu Hagstofunnar og endurnýjun tollakerfis. Þeir gefa hins vegar ekki tilefni til þeirrar ályktunar að Ísland hafi verið undanþegið rýniferlinu, opnunar- og lokunarskilyrðum samningskafla eða samræmismati við acquiscommunautaire. Raunar má færa rök fyrir því að verkefni á borð við eflingu þýðingamiðstöðvar, endurnýjun tollakerfis og önnur stjórnsýsluverkefni hafi verið hluti af undirbúningi Íslands fyrir þetta næsta stig aðildarferlisins. Þau voru því ekki andstæða þess ferlis heldur þáttur í því. Eftir Kaupmannahafnarskilyrðin Ísland uppfyllti Kaupmannahafnarskilyrðin þegar sótt var um aðild að Evrópusambandinu árið 2009. Þar með hafði Ísland uppfyllt þær grundvallarforsendur sem Evrópusambandið gerir áður en eiginlegar aðildarviðræður geta hafist. Frá þeim tímapunkti snerust viðræðurnar um það mats- og samningsferli sem lýst hefur verið hér að framan. Af þeirri ástæðu verður ekki dregin sú ályktun af því hvernig IPA-styrkir voru nýttir hér á landi að aðildarferli Íslands hafi verið í eðli sínu frábrugðið því sem önnur umsóknarríki standa frammi fyrir þegar þau hafa uppfyllt Kaupmannahafnarskilyrðin. Munurinn fólst í upphafsstöðu Íslands en ekki í eðli aðildarviðræðnanna. Höfundur er hagfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Evrópusambandið Danmörk Erna Bjarnadóttir Mest lesið Hver á lokaorðið? Hópur meðlima í Ungum gegn ESB-aðild Skoðun Verum ekki lítil - Ákall til ungu kynslóðarinnar Kristrún Ágústsdóttir Skoðun Það vaknar enginn með sæstreng í bakgarðinum Jóna Þórey Pétursdóttir Skoðun Pylsa á stærð við bankakerfi Hjálmar Vilhjálmsson Skoðun Já til að sjá hvað? Geir Finnsson Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson Skoðun Við getum valið að hætta að rífast – um krónuna Dagbjört Hákonardóttir Skoðun Amma og afi, plís ekki kjósa gegn okkur Hnikarr Bjarmi Franklínsson Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff Skoðun Til unga fólksins Illugi Jökulsson Skoðun Skoðun Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff skrifar Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Fullveldi er ekki stofustáss María Kristín Gylfadóttir skrifar Skoðun Þarf kerfi sem er sjálft búið að greina skort á samfellu rof á samfellu meðan verið er að laga skort á samfellu? Spyr amma Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Á matur að vera ódýr? Sæmundur Jón Jónsson skrifar Skoðun Baráttan um Ísland Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Verum ekki lítil - Ákall til ungu kynslóðarinnar Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun Af hverju þarf þolandinn alltaf að færa sig? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Er erfitt að taka ákvörðun? Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Hugrekki til að breyta Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Fljótlegasta leiðin til að lækka verðbólgu og vexti er að segja NEI 29. ágúst Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Ósýnileg stjórnarskrárákvæði Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Pylsa á stærð við bankakerfi Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Já til að sjá hvað? Geir Finnsson skrifar Skoðun Íslenskur landbúnaður til framtíðar: Hvaða tækifæri gætu falist í Evrópusamstarfi? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Við getum valið að hætta að rífast – um krónuna Dagbjört Hákonardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst meðan sól gyllir haf Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæði-til hvers ? Egill Þórir Einarsson skrifar Skoðun Er Ísland nógu gott fyrir Evrópu? Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Path Dependencies and Critical Junctures: A Response to Baudenbacher Maximilian Conrad skrifar Skoðun Umræðan í aðdraganda kosninga Geir Rögnvaldsson skrifar Skoðun Suðurlandi allt Sandra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Amma og afi, plís ekki kjósa gegn okkur Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Hver á lokaorðið? Hópur meðlima í Ungum gegn ESB-aðild skrifar Skoðun Nei við ESB er ekki nei við Evrópu Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Kjörklefinn er síðasti hlekkurinn, ekki sá fyrsti Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Það vaknar enginn með sæstreng í bakgarðinum Jóna Þórey Pétursdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar
Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Þarf kerfi sem er sjálft búið að greina skort á samfellu rof á samfellu meðan verið er að laga skort á samfellu? Spyr amma Kristín Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Fljótlegasta leiðin til að lækka verðbólgu og vexti er að segja NEI 29. ágúst Eggert Sigurbergsson skrifar
Skoðun Íslenskur landbúnaður til framtíðar: Hvaða tækifæri gætu falist í Evrópusamstarfi? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Path Dependencies and Critical Junctures: A Response to Baudenbacher Maximilian Conrad skrifar